Vesenið
Um okkur
Gönguklúbburinn Vesen og vergangur var stofnaður árið 2011.
Vesen og vergangur er gönguhópur sem skipuleggur skemmtilegar og fjölbreyttar gönguferðir á suðvesturhorninu allt árið og víðar á landinu á sumrin. Einnig eru skipulagðar ferðir erlendis. Vesenisferðir ehf er með ferðaskrifstofuleyfi og eiga því þær reglur við ef um er að ræða alferðir. Vesen og vergangur er í samstarfi við útivistarverslunina Fjallakofann varðandi útbúnað fyrir fararstjóra.
Gönguappið Wapp er dótturfélag Vesens og vergangs. Wapp er ókeypis smáforrit sem inniheldur safn af GPS-leiðarlýsingum með fróðleik um allt Ísland á góðum kortagrunni. Sjá nánar á wapp.is.
Einar Skúlason
Einar Skúlason er stofnandi gönguklúbbsins Vesens og vergangs og gönguappsins Wapp. Hann er margreyndur leiðbeinandi og leiðsögumaður í styttri og lengri gönguferðum á Íslandi, þar á meðal í fjölmörgum gönguverkefnum í samvinnu við SÍBS. Hann er höfundur bókanna „Átta gönguleiðir í nágrenni Reykjavíkur“ og „Lóa með strá í nefi“.
Einar hefur lagt stund á meistaranám í þjóðfræði og vorið 2026 vann hann hagnýtt þjóðfræðiverkefni um gamlar samgönguleiðir í Borgarfjarðardölum, byggt á viðtölum við fólk sem ólst upp í dölunum. Í göngunum er miðlað fróðleik um sögu, örnefni og náttúru. Sjá verkefnið um Borgarfjarðardali.

Fararstjórar
Teymið
Auk Einars eru nokkrir fararstjórar hjá Veseni og vergangi sem eiga það sameiginlegt að hafa brennandi áhuga á útivist.
- Einar SkúlasonStofnandi Vesens og vergangs
- Bjarki Valur BjarnasonFararstjóri í Meira brölti
- Davíð Rósenkrans HaukssonFararstjóri í Millibrölti og Langbrölti
- Elísabet Snædís JónsdóttirFararstjóri í Millibrölti og Langbrölti
- Gunnar GunnarssonFararstjóri í Brölti og Millibrölti
- Jóhanna Fríða DalkvistFararstjóri í Millibrölti og Langbrölti
- Jón T. BjarnasonFararstjóri í Meira brölti
- Rakel G. MagnúsdóttirFararstjóri í Brölti og Millibrölti
- Trausti PálssonFararstjóri í Brölti
- Þórdís SigurgeirsdóttirFararstjóri í Brölti

Samfélagið
Opið öllum
Gönguklúbburinn Vesen og vergangur er öllum opinn. Markmið hans er að skapa samfélag allra sem vilja njóta útivistar og göngu í náttúrunni. Göngur án endurgjalds eru auglýstar með viðburðum í Facebook-hópi Vesens og vergangs. Viltu ganga í hópinn? Sendu póst á info@vesenisferdir.is. Greitt er fyrir þátttöku í ferðir, námskeið og lokaða hreyfihópa (brölthópa).
Vesen og vergangur gætir þess eftir megni að vera í sambandi við landeigendur á þeim svæðum sem farið er um ef ástæða er til. Lögð er áhersla á að versla við heimamenn í nærumhverfi áfangastaða, til dæmis við kaup á leiðsögn, ráðgjöf, gistingu, mat og annan aðbúnað.
Að skipuleggja göngu
Allir í hópnum geta skipulagt göngu á Facebook-síðu Vesens og vergangs og eru hvattir til þess. Sá sem skipuleggur göngu ákveður leiðina með eigin reynslu og þekkingu í huga. Þegar gengið er í hóp er miðað við gönguhraða hópsins, en um leið er fólk beðið um að velja göngur við hæfi út frá viðburðalýsingu og áætluðum gönguhraða. Hlutverk þess sem skipuleggur göngu er að ákveða dagsetningu og tíma, skoða veðurspá og færð og meta áhættu í samræmi við aðstæður.
Auglýsingar í hópnum
Meginreglan er að á vegg hópsins eru auglýstar gönguferðir á vegum Vesens og vergangs. Undantekningar eru göngur sem eru ekki á vegum skipulagðra ferðafélaga, göngur fyrir góðan málstað og sértilboð á búnaði til Vesenisfélaga. Hópurinn Vesen, félagslíf á Facebook leyfir allar auglýsingar.
Myndir
Eitt af því skemmtilega sem gerist eftir göngur er þegar göngumenn deila myndum. Við hvetjum alla sem birta myndir á samfélagsmiðlum að nota myllumerkið #vesenogvergangur eða #vesen og ártalið, til dæmis #vesen26.
Fréttabréf
Fréttabréf Vesens og vergangs er sent öðru hvoru í tölvupósti. Skráðu þig hér með nafni og netfangi.