Góð ráð

Skilmálar

Vesen og vergangur er rekið af Vesenisferðum ehf. Skilmálar eru mismunandi eftir því hvort um er að ræða hreyfihópa, ferðir innanlands eða ferðir erlendis.

Við bókun samþykkir þátttakandi þá skilmála sem eiga við um viðkomandi ferð eða námskeið. Ef sérstakir skilmálar eru birtir með ferð eða námskeiði gilda þeir ásamt almennum skilmálum hér að neðan.

Hreyfihópar og námskeið

Bókun og greiðsla

Skráning og greiðsla fara fram með þeim hætti sem tilgreindur er við viðkomandi hreyfihóp eða námskeið. Greiðsla jafngildir bókun nema annað sé sérstaklega tekið fram.

Námskeiðsgjald fæst ekki endurgreitt eftir að námskeið er hafið. Heimilt er að framselja skráningu til annars þátttakanda í samráði við Vesen og vergang.

Breytingar á dagskrá

Vesen og vergangur áskilur sér rétt til að breyta gönguleiðum, tímasetningum og dagskrá ef veður, færð, öryggi eða aðrar aðstæður krefjast þess.

Ef ganga fellur niður er eftir föngum leitast við að færa hana á annan dag eða bæta hana upp síðar á tímabilinu.

Ábyrgð þátttakenda

Þátttakendur taka þátt á eigin ábyrgð og bera sjálfir ábyrgð á að meta hvort þeir séu líkamlega færir um að taka þátt í viðkomandi göngu.

Þátttakendur bera ábyrgð á að mæta með fatnað, skó og annan búnað sem hæfir aðstæðum hverju sinni og fylgja fyrirmælum fararstjóra varðandi öryggi og framkvæmd göngu.

Vesenisferðir ehf. tryggir hvorki þátttakendur né persónulegan farangur þeirra. Þátttakendur eru hvattir til að hafa viðeigandi slysa- og ferðatryggingar.

Samgöngur

Nema annað sé tekið fram koma þátttakendur sér sjálfir á upphafsstað göngu. Þegar samnýting bíla er skipulögð gera þátttakendur það sín á milli og deila kostnaði eftir samkomulagi.

Ferðir innanlands

Þessir skilmálar eiga við um skipulagðar ferðir Vesenisferða innanlands, þar á meðal ferðir með gistingu, rútu- eða bátsferðum og annarri þjónustu.

Sérstök ferðalýsing segir ávallt til um verð, hvað er innifalið, staðfestingargjald, greiðslufrest og lágmarks- og hámarksfjölda þátttakenda.

Bókun og staðfestingargjald

Staðfestingargjald er hluti af heildarverði ferðar og fjárhæð þess kemur fram í lýsingu hverrar ferðar.

Staðfestingargjald er almennt ekki endurgreitt ef þátttakandi hættir við ferð, nema annað leiði af lögum eða sérstökum skilmálum ferðarinnar.

Heimilt er að framselja bókun til annars þátttakanda í samráði við Vesenisferðir, enda uppfylli hinn nýi þátttakandi skilyrði ferðarinnar og hægt sé að framkvæma breytinguna hjá viðkomandi þjónustuaðilum. Kostnaður sem kann að falla til vegna breytingarinnar greiðist af þátttakanda.

Lokagreiðsla

Nema annað sé tekið fram skal ferð greiðast að fullu eigi síðar en sex vikum fyrir brottför.

Hafi greiðsla ekki borist innan tilskilins frests er Vesenisferðum heimilt að líta svo á að þátttakandi hafi fallið frá bókun og bjóða sætið öðrum.

Afbókun þátttakanda

Nema annað sé sérstaklega tekið fram við ferð gilda eftirfarandi reglur:

  • Afbókun 21 degi eða meira fyrir brottför: verð ferðar er endurgreitt að staðfestingargjaldi frátöldu.
  • Afbókun 8 til 20 dögum fyrir brottför: 50% af verði ferðar endurgreitt.
  • Afbókun 4 til 7 dögum fyrir brottför: 25% af verðinu endurgreitt.
  • Afbókun þremur dögum eða skemur fyrir brottför: engin endurgreiðsla.

Ef ferð fellur undir lög um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun gilda jafnframt þau réttindi sem ferðamaður á samkvæmt lögunum, þar á meðal vegna óvenjulegra og óviðráðanlegra aðstæðna sem hafa veruleg áhrif á framkvæmd ferðarinnar.

Breytingar og aflýsing

Vesenisferðir áskilja sér rétt til að breyta dagskrá, gönguleiðum, tímasetningum eða röð dagskrárliða vegna veðurs, færðar, öryggis eða annarra aðstæðna sem hafa áhrif á framkvæmd ferðar.

Vesenisferðir geta aflýst ferð ef lágmarksþátttaka næst ekki eða ef aðstæður gera framkvæmd hennar ómögulega eða óforsvaranlega. Ef Vesenisferðir aflýsa ferð er verðið endurgreitt samkvæmt þeim reglum sem um viðkomandi ferð gilda.

Líkamlegt form og búnaður

Þátttakandi ber ábyrgð á að kynna sér erfiðleikastig ferðar og meta hvort líkamlegt form hans og reynsla hæfi ferðinni.

Þátttakendur þurfa að hafa þann fatnað og búnað sem tilgreindur er í ferðalýsingu eða búnaðarlista og fylgja fyrirmælum fararstjóra varðandi öryggi.

Tryggingar

Vesenisferðir tryggja ekki persónulegan farangur þátttakenda. Þátttakendur eru hvattir til að hafa ferða-, slysa- og eftir atvikum forfallatryggingar í gildi.

Ferðir erlendis

Þessir skilmálar eiga við um ferðir Vesenisferða erlendis. Ferðir sem uppfylla skilyrði laga nr. 95/2018 um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun lúta jafnframt ákvæðum þeirra laga.

Ferðalýsing hverrar ferðar, bókunarstaðfesting og þessir skilmálar mynda saman samning um ferðina.

Bókun og greiðsla

Við bókun greiðist staðfestingargjald samkvæmt ferðalýsingu. Staðfestingargjaldið er hluti af heildarverði ferðar.

Eftirstöðvar af verði ferðar skulu greiddar fyrir þann dag sem tilgreindur er í ferðalýsingu. Sé bókað eftir lokagreiðsludag greiðist ferðin að fullu við bókun.

Bókun telst staðfest þegar umbeðnar upplýsingar hafa borist og staðfestingargjald hefur verið greitt.

Afbókun þátttakanda

Nema annað sé tekið fram við viðkomandi ferð gilda eftirfarandi afbókunargjöld:

  • Meira en 70 dögum fyrir brottför: staðfestingargjald.
  • 43 til 70 dögum fyrir brottför: 40% af verði ferðar.
  • 12 til 42 dögum fyrir brottför: 75% af verðinu.
  • 11 dögum eða skemur fyrir brottför: 100% af verðinu.

Þegar lög um pakkaferðir eiga við getur ferðamaður afpantað ferð án afbókunargjalds ef óvenjulegar og óviðráðanlegar aðstæður á ákvörðunarstað eða í næsta nágrenni hans hafa veruleg áhrif á framkvæmd ferðarinnar eða flutning farþega þangað, samkvæmt nánari ákvæðum laga.

Framsal bókunar

Ferðamaður getur framselt pakkaferð til annars einstaklings sem uppfyllir skilyrði ferðarinnar, enda sé Vesenisferðum tilkynnt um það með hæfilegum fyrirvara.

Komi til kostnaðar vegna nafnbreytinga á flugi, gistingu eða annarri þjónustu greiðir framseljandi eða sá sem tekur við bókuninni þann raunverulega kostnað sem af breytingunni hlýst.

Flug og ferðaskilríki

Þátttakandi ber ábyrgð á að gefa upp fullt og rétt nafn eins og það kemur fram í gildum ferðaskilríkjum.

Þátttakandi ber ábyrgð á að hafa gild ferðaskilríki og uppfylla þær reglur um vegabréf, vegabréfsáritanir eða önnur inngönguskilyrði sem gilda á ákvörðunarstað.

Flugtímar geta breyst samkvæmt ákvörðun flugfélags. Vesenisferðir upplýsa þátttakendur um breytingar sem berast og gera nauðsynlegar breytingar á dagskrá eftir því sem þörf er á.

Verðbreytingar

Verð pakkaferðar helst óbreytt nema heimilt sé að breyta því samkvæmt lögum um pakkaferðir og sú heimild hafi komið fram við bókun.

Slíkar breytingar geta aðeins byggst á þeim atriðum sem lög heimila, svo sem breytingum á verði farþegaflutninga vegna eldsneytis, sköttum og gjöldum eða gengi gjaldmiðla sem hafa áhrif á kostnað ferðar. Sama regla gildir um verðlækkun þegar við á.

Breytingar á dagskrá

Ferðalög geta raskast vegna veðurs, sjólags, færðar, náttúruaðstæðna, breytinga á flugi eða annarra utanaðkomandi aðstæðna.

Vesenisferðir áskilja sér rétt til að gera óverulegar breytingar á dagskrá ef nauðsyn krefur. Leitast verður við að halda innihaldi og gæðum ferðar eins óbreyttum og mögulegt er.

Ef gera þarf verulega breytingu á megineinkennum pakkaferðar áður en hún hefst verður þátttakanda tilkynnt um hana og réttindi hans samkvæmt lögum um pakkaferðir virt.

Lágmarksþátttaka og aflýsing ferðar

Lágmarksfjöldi þátttakenda kemur fram í ferðalýsingu.

Ef lágmarksfjöldi næst ekki geta Vesenisferðir aflýst ferð innan þess frests sem tilgreindur er fyrir ferðina og í samræmi við lög um pakkaferðir. Greiðslur vegna ferðarinnar eru þá endurgreiddar samkvæmt lögum.

Vesenisferðir geta einnig aflýst ferð ef óvenjulegar og óviðráðanlegar aðstæður koma í veg fyrir framkvæmd hennar. Þátttakendur fá þá verðið endurgreitt samkvæmt gildandi reglum.

Framkvæmd ferðar

Vesenisferðir bera ábyrgð á framkvæmd þeirrar ferðatengdu þjónustu sem innifalin er í samningi um pakkaferð samkvæmt lögum um pakkaferðir, einnig þegar þjónustan er veitt af öðrum þjónustuaðilum.

Verði þátttakandi var við verulegan ágalla eða vanefnd á þjónustu sem innifalin er í ferðinni skal hann tilkynna fararstjóra eða Vesenisferðum um það eins fljótt og unnt er svo hægt sé að bregðast við og ráða bót á aðstæðum.

Líkamlegt form, búnaður og heilsufar

Þátttakandi ber ábyrgð á að kynna sér eðli og erfiðleikastig ferðar og meta hvort hann ráði við þær göngur og þá hreyfingu sem lýst er í dagskrá.

Þátttakendur skulu fylgja leiðbeiningum um fatnað og búnað og fyrirmælum fararstjóra varðandi öryggi.

Ef heilsufarsatriði, ofnæmi eða líkamlegar takmarkanir geta haft áhrif á öryggi þátttakanda eða framkvæmd ferðar er mikilvægt að Vesenisferðir fái nauðsynlegar upplýsingar um það fyrir brottför.

Tryggingar

Þátttakendur eru hvattir til að hafa fullnægjandi ferðatryggingu sem nær meðal annars til slysa, veikinda, farangurs og forfalla eftir því sem við á.

Persónulegar ferða-, slysa- og forfallatryggingar eru ekki innifaldar í verði ferðar nema það sé sérstaklega tekið fram.

Óviðráðanlegar aðstæður

Veður, náttúruhamfarir, verkföll, röskun á samgöngum og aðrir atburðir sem eru utan stjórnunar Vesenisferða geta haft áhrif á framkvæmd ferðar.

Þegar ferð fellur undir lög um pakkaferðir gilda lögbundin réttindi og skyldur ferðamanns og Vesenisferða vegna slíkra aðstæðna.

Trúnaður, lög og varnarþing

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Nánar er fjallað um meðferð persónuupplýsinga í persónuverndarstefnunni.

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

Góð ráð

Skoðaðu líka

Öll góð ráð