Þjóðleiðir

Gamlar samgönguleiðir í Borgarfjarðardölum, hagnýtt verkefni í þjóðfræði

Vorið 2026 vann Einar Skúlason hagnýtt þjóðfræðiverkefni sem hluta af lokaverkefni í meistaranámi í þjóðfræði. Tekin voru ellefu viðtöl við fólk sem var uppalið í Skorradal, Lundarreykjadal, Flókadal eða Reykholtsdal og næsta nágrenni. Auk þess var farið yfir töluvert af skriflegum heimildum um svæðin og í framhaldi teknar saman frásagnarþættir eða fræðslumolar sem tengjast gömlum leiðum á svæðinu. Frásagnarmolarnir voru svo tengdir við GPS ferla í stafrænni leiðsögn í Wikiloc forritinu. Nánar er fjallað um frásagnarmolana og verkefnið að öðru leyti hér neðst á síðunni.

Okvegur liggur upp með Valagili við Giljar í Hálsasveit

Yfirlit yfir leiðirnar

Þetta eru sex leiðir sem valdar voru með hliðsjón af sögulegu mikilvægi þeirra, tengingu milli byggða og getu þeirra til að varpa ljósi á samspil landslags, samgangna og félagslegra tengsla í Borgarfjarðardölum. Leiðirnar tengja saman dali, kirkjustaði og sögulega áfangastaði og mynda saman sýn á eldra leiðakerfi svæðisins.
Vissulega er hér ekki um tæmandi upptalningu að ræða á gömlum leiðum á svæðinu. Fjölmargar aðrar komu einnig til greina og auðvelt hefði verið að fjölga leiðunum verulega. Við afmörkun verkefnisins var þó lögð áhersla á að velja hóflegan fjölda leiða sem unnt væri að vinna af nægilegri dýpt og gæðum innan þess ramma sem verkefnið setti.

Leiðirnar eru ólíkar að lengd, erfiðleikastigi og sögulegu hlutverki, en mynda saman heildstæða mynd af þeim farvegum sem tengdu byggðir Borgarfjarðar saman áður en bílaöld hófst.

Göngufólk er minnt á að fylgjast með veðurspám, fara að þeim leiðbeiningum sem eru settar fram í frásagnarmolunum og muna að lítið mál er að fresta ferð eða breyta um áætlun ef aðstæður eru erfiðar.

1. Síldarmannagötur
Frá Botnsvogi að Fitjum í framdal Skorradals.

Gönguleiðin úr Botnsdal í Skorradal kallast Síldarmannagötur og er nokkuð þekkt meðal göngufólks. Hún þykir yfirleitt þægileg og er stundum farin fram og til baka á einum degi, þótt þá tvöfaldist vegalengdin. Útsýnið er víða einstaklega fallegt, bæði yfir Botnsvog og Hvalfjörð sunnan megin og yfir Skorradal og Skorradalsvatn norðan megin. Leiðin er að mestu farin um grófa götu eða troðninga og yfirleitt þarf aðeins að stikla yfir læki, nema í miklum vatnavöxtum. Á veturna getur orðið snjóþungt á þessu svæði og á vorin og fyrri hluta sumars geta aurbleytur torveldað för þar til frost er farið úr jörðu. Vegalengd er rúmir 14 km og uppsöfnuð hækkun um 600 m.

Powered by Wikiloc

2. Krosshólagata
Frá Fitjum í framdal Skorradals að Lundi í Lundarreykjadal.

Meginleiðin milli Háafells og Lundar virðist ýmist hafa verið kölluð Krosshólagata eða Krosshólavegur. Hún var jafnframt þekkt sem Annexíuvegur eða Prestagata þar sem hún þjónaði sem bein leið fyrir prestinn á Lundi til að sinna annexíunni (útkirkjunni) á Fitjum. Leiðin liggur frá kirkjustaðnum Fitjum meðfram Skorradalsvatni að bænum Háafelli. Þaðan liggur hún yfir hálsinn að Snartarstöðum í Lundarreykjadal, á vaði yfir Grímsá og að kirkjustaðnum Lundi. Grímsá getur verið mjög vatnsmikil en það hjálpar að hún er straumlítil á þessum slóðum. Mælt er með því að hafa símasamband við heimilisfólkið á Snartarstöðum varðandi bestu leiðina niður á veg, símanúmer er í upplýsingamola í GPS slóðanum. Vegalengd er um 12 km og uppsöfnuð hækkun um 230 m.

Powered by Wikiloc

3. Lundarsneið
Frá Lundi í Lundarreykjadal að Brennistöðum í Flókadal.

Meginleiðin á milli Lundarreykjadals og Flókadals lá upp frá kirkjustaðnum Lundi og yfir Lundarhálsinn að bænum Hrísum og áfram til Hæls og Brennistaða. Í uppgöngu frá Lundi er brattasti og um leið þekktasti hluti þessarar leiðar, sjálf Lundarsneiðin. Hún var þekkt áður fyrr, enda fóru sveitungar þessa leið jafnt fótgangandi sem ríðandi til að sækja böll, sinna smalamennsku eða erindast á milli bæja. Oft var leiðin nefnd eftir Lundarsneiðinni eða talað um að fara yfir Lundarhálsinn. Mikilvægt er að hafa í huga að Flókadalsá getur verið meiri farartálmi en hálsinn sjálfur. Hálsinn getur þó orðið erfiður í aurbleytum á vorin og í byrjun sumars. Vegalengd er tæpir 11 km og uppsöfnuð hækkun um 360 m.

Powered by Wikiloc

4. Kirkjugata yfir Brennistaðaháls
Frá Brennistöðum í Flókadal að Reykholti í Reykholtsdal.

Leiðin yfir Brennistaðaháls hefur verið nefnd Kirkjugata enda stysta leið Flókdælinga til kirkju í Reykholti, en almenna orðalagið mun hafa verið að fara yfir hálsinn og upp hjá Hyrnu. Farið er frá Brennistöðum og upp á Brennistaðahálsinn, framhjá Hyrnu, niður hjá Kópareykjum, yfir Reykjadalsá á vaði og þaðan er stuttur spölur í Reykholt. Löngum höfðu Flókdælingar meiri samskipti við Reykdæla en Lunddælir enda var Flókadalsá meiri hindrun en Geirsá og auk þess kirkjusókn í Reykholti og sami hreppur. Erfiðasti hlutinn er frá vaðinu á Reykjadalsá og upp á veg neðan við Reykholt enda þýft á þeirri stuttu leið. Gott er að hafa samband við heimafólk á Brennistöðum og Kópareykjum og láta vita af sér enda liggur leiðin nánast um hlaðið á báðum bæjum.
Athugið að gatan liggur um hestagirðingu og fara þarf um tvö hlið. Gætið þess að loka hliðum vel á eftir ykkur svo að hrossin fari ekki. Vegalengd leiðar er um 7 km og uppsöfnuð hækkun um 160 m.

Powered by Wikiloc

5. Okvegur
Frá Giljum í Hálsasveit að Egilsáfanga við Kaldadalsveg.

Ein af mikilvægu samgönguleiðum Borgfirðinga fyrrum var Okvegur og ýmist var talað um að fara fyrir Ok eða suður Ok. Hann liggur frá Giljum í Hálsasveit og er farið vestan megin við Oköxl, um Okhryggi og sameinast Kaldadalsveginum skammt suður af Egilsáfanga og Langaási. Einnig var leið upp úr Reykholtsdal með Rauðsgili sem sameinaðist hinni ofan við Rauðsgilsdrög.
Örlítið sunnan við gatnamót Kaldadalsvegar og Okvegar eru svo gatnamót við Uxahryggjaveg, sem var annar mikilvægur heiðavegur. Í þessari lýsingu er gert ráð fyrir að fólk sé gangandi og fari af stað frá Giljum og endi við Egilsáfanga við Kaldadalsveg.
Þarna skiptast á gróðurlitlir og sumpart grýttir melar og gróðurflesjur og jafnvel votlendir kaflar þó að votlendu svæðin séu að mestu neðar. Á vorin og á fyrri hluta sumars má búast við miklum aurbleytum á meðan frost er að fara úr jörðu og misjafnt eftir árferði hvenær svæðið er orðið þurrt. Settir hafa verið inn fræðslumolar á nokkrum stöðum. Þar eru einkum sögur af fólki frá fyrri tímum á Okvegi og nágrenni.
Þetta er löng dagleið, um 26 km og vel yfir 500 m hækkun. Fólk þarf að vera í góðu formi til að ganga hana á einum degi og áætla rúman tíma. Einnig er hægt að bera tjald og skipta leiðinni í tvo áfanga. Reynið að miða við að hafa vindinn í bakið og ganga leiðina í norður ef suðaustanátt er í spákortunum. Guðlaugur Óskarsson stikaði leiðina árið 2022 en lokasprettur syðst er ólíkur þessari leið. Guðlaugur stikaði alla leið í Brunna en í þessari leið er endað á Kaldadalsvegi hjá Egilsáfanga.

Powered by Wikiloc

6. Grillirahryggjaleið
Frá Stóra-Botni í Botnsdal að Efstabæ í framdal Skorradals.

Grillirahryggjaleið er ein af gömlu leiðunum yfir Botnsheiði og var, líkt og Síldarmannagötur, farin milli byggða í Hvalfirði og framdals Skorradals og áfram eftir öðrum leiðum. Þótt Síldarmannagötur séu betur þekktar í dag hefur Grillirahryggjaleið gegnt sambærilegu hlutverki sem leið yfir heiðina. Leiðirnar tvær eiga það sameiginlegt að fylgja klapparholtum og melhólum þar sem hægt var að komast þurrum fótum yfir heiðina. Botnsheiðin er víða votlend og því skipti miklu máli að fylgja þokkalegri leið. Á vetrum, þegar hjarn var traust og skyggni gott, var stundum farið beint af augum yfir, en þess á milli héldu menn sig við göturnar. Uppi á heiðinni liggur leiðin um hinn langa Vegahrygg og áfram um þrjá melhóla sem allir bera nafnið Grillir eins og nánar er fjallað um í lýsingunni. Hægt er að taka útúrdúr sunnan megin með því að fara meðfram Glymsgljúfrinu og sjá hæsta foss Íslands og sleppa því að ganga um Svartahrygg. Þess má geta að Skorradalsmegin liggur leiðin svo upp með Fitjaánni að Eiríksvatni og þaðan upp á veg. Vegalengd ef farið er alla leið upp fyrir Eiríksvatn er tæpir 17 km og uppsöfnuð hækkun um 500 m.

Powered by Wikiloc

Þarna sjást leiðirnar á einu korti

Möguleiki á borgfirskri menningarhringleið
Leiðirnar eru jafnframt þannig valdar að unnt er að tengja þær saman í samfellda hringleið fyrir metnaðarfullt göngufólk. Með því að fara leiðirnar í röðinni Síldarmannagötur, Krosshólagötu, Lundarsneið, Kirkjugötu, Okveg og að lokum Grillirahryggjaleið má hefja göngu í Botnsdal, fara um dali og heiðar Borgarfjarðar og ljúka ferð á ný á upphafsstað. Með þeim hætti verður verkefnið ekki aðeins safn stakra leiða heldur einnig ein heildstæð ferð um sögulegt leiðakerfi svæðisins.

Skjálfandafoss við Síldarmannagötur

Meira um verkefnið

Leiðsögnin er byggð upp sem valkvætt og sveigjanlegt efni. Notandi ræður sjálfur hvort hann opnar hvern mola eða fylgir einfaldlega leiðinni án frekari upplýsinga. Sumir kjósa að ganga leiðina án þess að lesa neitt, aðrir vilja staldra við og lesa stutta fræðslu á völdum stöðum, en sumir vilja kafa dýpra í allt efnið.
Ekki er því ætlast til að allir notendur lesi allt efnið frá upphafi til enda. Verkefnið er ekki hugsað sem samfelldur texti heldur safn sjálfstæðra efnisbrota sem opnast eftir áhuga, tíma og aðstæðum hvers og eins.

Lengd, fjölbreytni og röðun efnis
Þessi nálgun hefur áhrif á gerð og lengd molanna. Sumir eru stuttir og benda fyrst og fremst á örnefni, kennileiti eða staðhætti sem blasa við á vettvangi. Aðrir eru lengri og segja sögur af fólki, ferðalögum, slysum, hjátrú, félagslífi eða búskaparháttum sem tengjast viðkomandi stað.
Leiðirnar eru jafnframt hugsaðar sem sjálfstæðar heildir. Notandi sér eina leið í einu og því þarf hver leið að standa á eigin fótum. Af þeim sökum fylgja inngangsmolar og grunnskýringar hverri leið, jafnvel þótt ákveðin atriði kunni að verða endurtekin milli leiða.
Röðun molanna fylgir að jafnaði ferðastefnu hverrar leiðar. Efnið birtist þannig smám saman eftir því sem leiðin er farin og myndar ákveðna frásagnarröð í landslaginu.

Heimildanotkun í stafrænu formi
Stafræna leiðsögnin er ekki eitt samfellt fræðilegt verk heldur dreifðara safn sjálfstæðra eininga sem lesnar eru í brotum og oft utan hefðbundins lestrarsamhengis. Í slíku formi myndi sameiginleg heimildaskrá aftast nýtast takmarkað. Þess í stað eru heimildir jafnan nefndar beint í sviga inni í textanum þar sem við á, til dæmis með tilvísun til örnefnaskráa, viðtala, bóka, skýrslna eða annarra heimilda.
Markmiðið er þó hið sama og í hefðbundnum fræðilegum verkum: að tryggja gagnsæi, rekjanleika og vandaða heimildanotkun.

Viðtöl og staðþekking
Við framsetningu leiðsagnarinnar var tekin sú ákvörðun að halda heimildafólki nafnlausu og vísa fremur almennt til munnlegra heimilda eða viðtala við heimafólk. Ástæða þess er meðal annars að dreifing efnisins verður með þeim hætti að stakir molar geta gengið sjálfstætt milli notenda og verið lesnir án samhengis. Jafnframt eru upplýsingar í molunum oft brotakenndar og styttar til að varpa ljósi á tiltekna staði eða aðstæður. Því var talið sanngjarnara gagnvart heimildafólki að rekja ekki einstakar frásagnir beint til nafngreindra einstaklinga í þessu miðlunarformi.

Þakkir

Öllum viðmælendum í rannsókninni eru færðar einlægar þakkir fyrir þá þekkingu sem þau miðluðu. Frásagnir þeirra, minningar og staðkunnátta eru einn mikilvægasti hornsteinn þessarar rannsóknar og án þeirra hefði verkefnið orðið allt annað og rýrara.
Rannsóknarsjóði Sigrúnar Ástrósar Sigurðardóttur og Haralds Sigurðssonar eru færðar kærar þakkir fyrir veittan styrk. Sá stuðningur auðveldaði vettvangsferðir, heimildaöflun og vinnslu verkefnisins og skipti verulegu máli fyrir framgang rannsóknarinnar.
Sérstakar þakkir fara til leiðbeinandans Kristins Schram, fyrir leiðsögn, gagnlegar ábendingar og þolinmæði í gegnum rannsóknarferlið.