Hér er sagt frá því hvaða upplýsingar Vesen og vergangur fær um þig, til hvers þær eru notaðar og hvaða rétt þú átt.
Hver ber ábyrgð
Vesenisferðir ehf, kt. 530314-0650, Mávahlíð 33, 105 Reykjavík, ber ábyrgð á meðferð persónuupplýsinga hjá Veseni og vergangi. Spurningar um persónuvernd má senda á info@vesenisferdir.is.
Fyrirspurnir
Þegar þú sendir fyrirspurn í gegnum vefinn fáum við nafn þitt, netfang og það sem þú skrifar. Við notum upplýsingarnar eingöngu til að svara þér. Formið er hjá Netlify, sem hýsir vefinn, og skilaboðin berast okkur í tölvupósti.
Póstlisti
Ef þú skráir þig á póstlistann fáum við nafn þitt og netfang og sendum þér öðru hvoru fréttabréf um komandi göngur og ferðir. Póstlistinn er í kerfinu Zenter. Þú getur afskráð þig hvenær sem er með hlekk í fréttabréfinu.
Bókanir og greiðslur
Skráning og greiðsla í hreyfihópa og ferðir fer fram í bókunarkerfinu Abler. Við fáum þær upplýsingar um þátttakendur sem þarf til að halda utan um hópinn eða ferðina og hafa samband ef eitthvað breytist, til dæmis nafn og samskiptaupplýsingar. Um meðferð upplýsinga hjá Abler gilda skilmálar Abler. Ef greitt er með millifærslu fáum við upplýsingar um greiðandann frá bankanum. Bókhaldsgögn eru geymd eins og lög um bókhald gera ráð fyrir.
Facebook-hópar
Upplýsingar um hverja göngu eru birtar í lokuðum Facebook-hópum. Þátttakendur sækja sjálfir um aðgang og um það sem þar fer fram gilda skilmálar Meta, sem rekur Facebook.
Vefurinn
Vefurinn sjálfur notar hvorki vafrakökur né vefmælingar. Letrið er sótt til Google Fonts og upplýsingar og myndir af opnum námskeiðum og ferðum til Abler. Á sumum síðum eru kort frá Wikiloc eða myndbönd sem geta notað sínar eigin vafrakökur.
Hverjir fá upplýsingarnar
Við seljum aldrei persónuupplýsingar. Þær fara ekki til annarra en fararstjóra Vesens og vergangs og þeirra þjónustuaðila sem nefndir eru hér að ofan og vinna með þær fyrir okkur, nema lög krefjist þess.
Hversu lengi
Við geymum upplýsingar ekki lengur en þörf er á vegna þess sem þær voru fengnar til, eða eins lengi og lög krefjast.
Réttindi þín
Þú átt rétt á að vita hvaða upplýsingar við höfum um þig og að fá þær leiðréttar eða þeim eytt. Sendu okkur línu á info@vesenisferdir.is. Ef þú telur að ekki sé rétt farið með upplýsingar um þig getur þú leitað til Persónuverndar.
Síðast uppfært 19. nóvember 2026.