Má ég koma ein eða einn?
Já. Gönguklúbburinn er öllum opinn og nýir þátttakendur eru alltaf hjartanlega velkomnir. Fjölmörg dæmi eru um vinahópa sem hafa orðið til í reglulegum göngum með Veseni og vergangi.
Þarf ég að vera félagi?
Nei. Gönguklúbburinn er öllum opinn. Greitt er fyrir þátttöku í hreyfihópa og ferðir og skráning fer fram í bókunarkerfinu Abler. Göngur án endurgjalds eru auglýstar í Facebook-hópi Vesens og vergangs.
Hvernig vel ég hóp?
Hóparnir eru misléttir, frá Brölti upp í Meira brölt, og í Þjóðleiðum eru gengnar gamlar leiðir milli byggða. Á síðunni Hreyfihópar eru þrjár stuttar spurningar sem gefa tillögu að hópi og tafla sem ber hópana saman. Ef hópurinn reynist of léttur eða of erfiður er hægt að sækja um að færa sig í annan hóp.
Get ég prófað áður en ég skrái mig?
Hver önn hefst yfirleitt á opinni upphitunar- eða kynningargöngu sem allir geta komið í og hún er í dagskránni. Viltu vita hvort hægt sé að bætast í hóp á miðri önn eða prófa staka göngu? Sendu okkur línu á info@vesenisferdir.is.
Hvernig kemst ég á upphafsstað?
Þátttakendur koma sér sjálfir á upphafsstað hverrar göngu. Í lokaða Facebook-hópnum kemur fram hvar og hvenær er hist og þar er líka hægt að samnýta bíla. Oft er stungið upp á bílastæði í útjaðri höfuðborgarsvæðisins þar sem fólk hittist og sameinast í bíla. Í sumum ferðum er farið með rútu.
Þarf ég að vera á Facebook?
Upplýsingar um hverja göngu, svo sem tíma, upphafsstað, veðurspá og búnað, eru birtar í lokuðum Facebook-hópi hvers hóps. Þar eru líka tilkynntar breytingar, til dæmis ef ganga frestast vegna veðurs. Ertu ekki á Facebook? Hafðu samband á info@vesenisferdir.is áður en þú skráir þig.
Hvað ef ég næ ekki hraðanum?
Gengið er á hraða hópsins og stoppað öðru hvoru til að skoða umhverfið. Því skiptir máli að velja hóp við hæfi og í lýsingu hvers námskeiðs kemur fram hvaða gönguform þarf. Ef hópurinn reynist of erfiður er hægt að sækja um að færa sig í annan hóp, og formið byggist smám saman upp með reglulegum göngum.
Hvernig fæ ég upplýsingar eftir skráningu?
Þegar þú hefur skráð þig og greitt í Abler sækir þú um aðgang að lokaða Facebook-hópnum fyrir þinn hóp. Þar er hver ganga kynnt með eins til þriggja daga fyrirvara, með upplýsingum um leiðina, aðstæður og veðurspá. Í Abler er hægt að sækja kvittun, til dæmis til að sækja um niðurgreiðslu hjá stéttarfélagi eða vinnustað.
Hvaða búnað þarf ég?
Það fer eftir hópnum og árstímanum. Fararstjórar leiðbeina um útbúnað og í lokaða hópnum er farið yfir hvað þarf fyrir hverja göngu. Á síðunni Búnaður eru góð ráð.