Suður-Grænland er einstakur heimur þar sem grænir dalir, há fjöll, jöklar og djúpir firðir mætast. Ísjakar fljóta um firðina og öðru hvoru heyrast brestir í stillunni þegar jakarnir brotna. Hér liggja litlar byggðir dreifðar með ströndinni og enn má sjá mikil ummerki norrænu byggðarinnar sem hófst þegar Eiríkur rauði settist að á svæðinu fyrir meira en þúsund árum.
Í þessari sex daga ferð förum við um eitt fallegasta svæði Suður-Grænlands þar sem sagan er við hvert fótmál. Við heimsækjum Narsaq, Qassiarsuk (Brattahlíð), Tasiusaq við Sermilik-fjörð, Igaliku (Garða), Hvalseyjarkirkju og Qaqortoq, göngum milli byggða og minjastaða og siglum um firði þar sem ísjakar reka fram hjá. Á leiðinni kynnumst við bæði sögu norrænu byggðarinnar og grænlensku samfélagi nútímans.
Hægt er að velja um hóflegar göngur eða lengri leiðir og einnig er val um hvort farið er í návígi við Grænlandsjökulinn. Gisting er að mestu í tveggja manna herbergjum með morgunmat og eina nótt er gist í einfaldari bændagistingu. Farangur er fluttur milli gististaða þegar við göngum milli byggða og því þarf almennt aðeins að bera dagpoka.
Dagskrá
Dagur 1 · laugardagur 12. júní
Keflavík → Qaqortoq → Narsaq
Við fljúgum með Icelandair frá Keflavík kl. 17:00 og lendum í Qaqortoq kl. 19:00 að staðartíma.
Við komuna höldum við niður að höfn þar sem bátar taka á móti hópnum. Þaðan siglum við beint yfir til Narsaq. Kvöldsiglingin gefur okkur strax góða tilfinningu fyrir landslaginu sem einkennir ferðina; fjöll rísa upp úr sjónum, jöklar liggja inn af fjörðunum og ísjakar reka um hafið.
Narsaq er fallegur bær við Tunulliarfik-fjörð og þar gistum við fyrstu tvær næturnar.
Gisting í Narsaq.

Dagur 2 · sunnudagur 13. júní
Narsaq og valfrjáls jöklaferð til Qalerallit
Um morguninn verður boðið upp á valfrjálsa bátsferð frá Narsaq inn í Qalerallit-fjörðinn. Ferðin er ekki innifalin í ferðaverði.
Þar ganga skriðjöklar niður úr Grænlandsjökli og ísfylltur fjörðurinn býður upp á stórbrotið landslag. Ferðin verður farin í minni báti og gefur þeim sem vilja tækifæri til að komast nær jöklunum og ísnum.
Þau sem kjósa að sleppa jöklaferðinni eiga rólegri morgun í Narsaq og geta notið bæjarins og nágrennis á eigin hraða. Eftir hádegi sameinast hópurinn aftur og við verjum síðari hluta dagsins saman í Narsaq og nágrenni.
Gisting í Narsaq.

Dagur 3 · mánudagur 14. júní
Narsaq → Qassiarsuk → Tasiusaq
Eftir morgunmat kveðjum við Narsaq og siglum inn Eiríksfjörð til Qassiarsuk, þar sem Brattahlíð Eiríks rauða stóð á tímum norrænu byggðarinnar.
Hér hófst norrænt landnám á Grænlandi undir lok 10. aldar og við skoðum minjar og endurgerðar byggingar sem tengjast þessari sögu.
Frá Qassiarsuk leggjum við af stað gangandi til Tasiusaq við Sermilik-fjörð. Gangan er um 7 km með um 350 m hækkun og liggur um fallegt heiðarlandslag. Þegar nær dregur opnast útsýni yfir fjörðinn, sem er gjarnan fullur af ís, enda þýðir Sermilik „Ísafjörður“. Farangurinn er fluttur sérstaklega til gististaðarins.
Boðið verður upp á aukagöngu síðdegis fyrir þau sem vilja, 5 til 10 km meðfram ströndinni.
Við gistum í bændagistingu hjá grænlensku bændahjónunum Aviaju og Klaus og fáum kvöldverð á heimili þeirra.
Kvöldmatur og gisting í Tasiusaq.


Dagur 4 · þriðjudagur 15. júní
Tasiusaq → Qassiarsuk → Itilleq → Igaliku
Eftir morgunmat göngum við aftur frá Tasiusaq til Qassiarsuk, um 7 km.
Þaðan tekur bátur við og flytur okkur stutta leið yfir fjörðinn til Itilleq. Þaðan göngum við um 4 km eftir Kóngsveginum, gömlu leiðinni yfir til Igaliku. Hækkunin er um 150 m og farangurinn er fluttur á gististaðinn á meðan við göngum.
Igaliku er einn fallegasti staður Suður-Grænlands, umlukinn grænum hlíðum og háum fjöllum. Hér voru Garðar, biskupssetur norrænu byggðarinnar á Grænlandi, og enn má sjá hvar dómkirkjan og aðrar byggingar stóðu.
Boðið verður upp á aukagöngu eftir veðri og aðstæðum. Annað hvort förum við hluta eða alla leiðina upp á hásléttuna Narsaarsup Qaava. Öll leiðin er um 15 km með um 300 m hækkun, en styttri leið er um 6 km.
Kvöldmatur og gisting í Igaliku.


Dagur 5 · miðvikudagur 16. júní
Igaliku → Sissarlutoq → Hvalseyjarkirkja → Qaqortoq
Í dag er lengsta ganga ferðarinnar. Við göngum frá Igaliku til Sissarlutoq, um 18 km, með um 500 m uppsafnaða hækkun. Leiðin liggur um fjölbreytt landslag með útsýni yfir firði, fjöll og norrænar minjar.
Þau sem vilja ekki taka löngu gönguna geta átt rólegri dag í Igaliku og farið síðan með bátunum ásamt farangrinum.
Þegar allur hópurinn er kominn í bátana við Sissarlutoq siglum við áfram að Hvalseyjarkirkju. Þar skoðum við eina best varðveittu byggingu norrænu byggðarinnar á Grænlandi og aðrar minjar um byggðina í Hvalseyjarfirði.
Síðan er siglt áfram til Qaqortoq þar sem við gistum síðustu nóttina. Kvöldið er frjálst og þar eru nokkrir veitingastaðir sem þátttakendur geta valið á milli.
Gisting í Qaqortoq. Kvöldmatur á eigin vegum.


Dagur 6 · fimmtudagur 17. júní
Qaqortoq → Keflavík
Við eigum stóran hluta dagsins í Qaqortoq.
Qaqortoq er stærsti bær Suður-Grænlands og fallegur lokapunktur ferðarinnar, með litríkum húsum í hlíðunum niður að höfninni. Hægt verður að skoða bæinn, ganga um hlíðarnar eða að stöðuvatninu ofan við bæinn og njóta dagsins á eigin hraða.
Síðdegis höldum við út á flugvöll. Flug Icelandair til Keflavíkur fer kl. 19:45 og áætluð lending er kl. 23:45.

Gisting
Gisting er fimm nætur og morgunmatur fylgir allri gistingu.
Narsaq
Tvær nætur
Gist verður á gistiheimilinu Niviarsiaq sem rekið er með Hotel Narsaq. Gisting er að mestu í tveggja manna herbergjum. Aðstaða er einföld og þægileg.
Tasiusaq
Ein nótt
Gist er í bændagistingu hjá Aviaju og Klaus. Þar eru nokkur tveggja manna herbergi og smáhýsi auk einfaldari gistirýma með kojum. Pör fá forgang í tveggja manna herbergi og smáhýsin.
Igaliku
Ein nótt
Gist er á Igaliku Hotel & Lodges í tveggja manna herbergjum. Morgunmatur og kvöldmatur eru á gististaðnum.
Qaqortoq
Ein nótt
Gist verður á Inuit House. Gisting er í tveggja manna herbergjum og baðaðstaða getur verið ýmist sér eða sameiginleg eftir herbergjum.
Göngurnar
Ferðin hentar fólki sem er vant reglulegri hreyfingu og treystir sér til að ganga nokkra daga í röð.
| Dagur | Leið | Vegalengd | Hækkun |
|---|---|---|---|
| 3 | Qassiarsuk til Tasiusaq | um 7 km | um 350 m |
| 4 | Tasiusaq til Qassiarsuk | um 7 km | um 250 m |
| 4 | Itilleq til Igaliku | um 4 km | um 150 m |
| 5 | Igaliku til Sissarlutoq | um 18 km | um 500 m |
Að auki verða í boði styttri og lengri aukagöngur eftir veðri og aðstæðum. Hægt er að sleppa göngunum ef svo ber undir og fá far með farangri (getur verið aukakostnaður fyrir það í einhverjum tilvikum).
Undirbúningur
Sameiginlegur undirbúningsfundur fyrir ferðina verður haldinn í apríl. Þar verður farið yfir dagskrá, göngur, fatnað og búnað, farangur, nesti, aðstæður á Grænlandi og annað sem gott er að vita fyrir ferðina.
Þátttakendur eru hvattir til að undirbúa sig með reglulegum göngum vikurnar fyrir ferð og ganga skóna vel til. Gott er að æfa sig með 20 til 30 lítra dagpoka og nokkur kíló í pokanum.
Nánari búnaðarlisti verður sendur þátttakendum fyrir ferð.
Innifalið í ferðaverði
- Flug með Icelandair frá Keflavík til Qaqortoq og til baka og farangur samkvæmt farangursheimild flugfélagsins.
- Fimm nætur í gistingu.
- Morgunmatur alla morgna.
- Kvöldmatur í Tasiusaq og Igaliku.
- Allar bátsferðir sem tilgreindar eru í dagskránni, að undanskilinni valfrjálsri Qalerallit-ferð 13. júní.
- Farangursflutningar samkvæmt dagskrá.
- Flutningar til og frá flugvelli og í bátum milli staða samkvæmt dagskrá.
- Fararstjórn og leiðsögn.
- Undirbúningsfundur í apríl.
Ekki innifalið
- Valfrjáls bátsferð til Qalerallit að jöklinum 13. júní.
- Hádegismatur.
- Kvöldmatur í Narsaq og Qaqortoq og aðrar máltíðir sem ekki eru sérstaklega tilgreindar sem innifaldar.
- Drykkir og persónuleg útgjöld.
- Persónulegar ferða-, slysa- og forfallatryggingar.
- Valfrjáls þjónusta eða aðgangseyrir sem ekki er sérstaklega tilgreindur sem innifalinn.
Verð og bókun
439.500 kr. á mann
Staðfestingargjald við bókun er 75.000 kr. Eftirstöðvar, 364.500 kr., greiðast í síðasta lagi 1. apríl 2027. Sé bókað eftir 1. apríl greiðist ferðin að fullu við bókun.
Lágmarksfjöldi er 8 þátttakendur.
Hámarksfjöldi er 17 þátttakendur.
Bókun
Bókað er með því að fylla út bókunarform ferðarinnar. Þar eru skráðar nauðsynlegar upplýsingar um þátttakanda, óskir um gistingu, mataræði og upplýsingar sem máli skipta vegna öryggis í ferðinni.
Við bókun er hægt að velja um greiðslu staðfestingargjalds með greiðslukorti eða millifærslu.
Bókun telst staðfest þegar bókunarform hefur verið sent inn og staðfestingargjald greitt.
Afbókun
Við afbókun gilda eftirfarandi afbókunargjöld:
- Meira en 70 dögum fyrir brottför: staðfestingargjald.
- 43 til 70 dögum fyrir brottför: 40% af ferðaverði.
- 12 til 42 dögum fyrir brottför: 75% af ferðaverði.
- 11 dögum eða skemur fyrir brottför: 100% af ferðaverði.
Að öðru leyti gilda ferðaskilmálar Vesenisferða ehf. um pakkaferðir.
Veður og aðstæður
Ferðalög á Suður-Grænlandi ráðast að nokkru af veðri, sjólagi og ís í fjörðum. Tímasetningar siglinga, gönguleiðir eða röð dagskrár geta því breyst ef aðstæður krefjast þess.
Ákvarðanir um siglingar eru teknar með öryggi hópsins að leiðarljósi og í samráði við staðbundna bátaaðila. Leitast verður við að halda efni og upplifun ferðarinnar eins óbreyttri og kostur er þótt færa þurfi einstaka dagskrárliði.







