ÞJÓÐLEIÐIR OG SVOLEIÐIS BRÖLT 2023

Í þessum hópi munum við ganga mánaðarlega um þjóðleiðir, póstleiðir og almennt skemmtilegar leiðir frá einum stað til annars allt árið 2023. Flestum slíkum leiðum fylgir nokkur saga og verða því sögumolar í stoppum.

Oftast eru slíkar leiðir hestfærar og því má búast við því að við förum ekki um mjög mikinn bratta en engu að síður getur verið nokkur hækkun eða frá 100 m uppsafnaðri hækkun upp í allt að 500 m. Vegalengdin getur verið frá ca 10-25 km og að sjálfsögðu höldum við hópinn.
Þessi hópur er innan hins svokallaða millibrölts og því gætu þau komið inn sem eru skráð í helgargöngur millibröltsins, þá er mögulegt að taka með sér gesti gegn greiðslu eins og kemur fram að neðan. Tekið skal fram að almennt er miðað við að fjöldi í göngu fari ekki yfir 50 manns.

Stofnaður er lokaður hópur á Facebook fyrir þau sem eru í hópnum. Þar verða útbúnir viðburðir fyrir göngurnar með ca tveggja daga fyrirvara með nánari upplýsingum um fyrirkomulag, veður og útbúnað. Þá verður einnig miðlað fræðslu í lokaða hópnum og umræða getur verið í tengslum við þjóðleiðir og póstleiðir almennt. Þess vegna er þetta skráð sem námskeið enda munu þátttakendur eiga kost á því að læra þó nokkuð um þjóðleiðirnar og göngur almennt.

DAGSKRÁ
Hér að neðan má sjá áætlaða dagskrá, athugið að yfir hásumarið munum við nýta virka daga og fara af stað upp úr miðjum degi og ganga fram á kvöld. Ekki er útilokað að ferðir frestist vegna veðurs og færðar, en við reynum að standa við dagsetningar og höfum þá möguleika á að velja aðrar þjóðleiðir sem henta betur miðað við aðstæður.

04-Feb Laugard Kirkjustígur yfir Reynivallarháls í Kjós
04-Mar Laugard Prestastígur
01-Apr Laugard Lágaskarðsvegur frá Hveradölum í Ölfus
29-Apr Laugard Skógfellavegur
18-May Uppstigningard Gamli Hellisheiðarvegur
28-Jun Miðvikud Ketilsstígur og Stórhöfðastígur
01-Aug Þriðjud Selvogsgata (Hlíðarvegur)
13-Aug Sunnud Síldarmannagötur
09-Sep Laugard Bláfeldarskarð á Snæfellsnesi
14-Oct Laugard Ólafsskarðsvegur
11-Nov Laugard Gamli Þingvallavegur
02-Dec Laugard Þorlákshöfn – Selvogur

UMSJÓN
Leiðbeinandi er Einar Skúlason. Hann stofnaði gönguhópinn Vesen og vergang og Wapp – Walking app leiðsöguapp. Hann hefur skrifað töluvert um gönguleiðir og er sérstakur áhugamaður um þjóðleiðir. Einar mun njóta aðstoðar frá fararstjórum í Veseni og vergangi.

VERÐ OG BÓKANIR

Kostar kr. 51.000 fyrir manninn fyrir allt árið.

Við reynum að leysa bílamál með skutli og að sameinast í bíla þegar það er hægt, ef það þarf að panta rútu þá bætist sá kostnaður við. Hægt að taka með sér gest og hann borgar kr. 7000 fyrir gönguna (rútukostnaður bætist við).
Það er ekki gefinn afsláttur í þetta prógramm.

Bókanir fara fram á https://www.sportabler.com/shop/vesenisferdir (þið smellið á tengilinn, skráið ykkur inn og veljið það námskeið sem passar, greiðið og þá er allt klappað og klárt). Hægt er að prenta út kvittun í kerfinu og nýta til niðurgreiðslu stéttarfélags eða vinnustaðar. Athugið að færslur frá bókunarkerfinu á bankareikningi eru merkt sem „æfingagjöld“.

Þá er það mögulegt að greiða með millifærslu. Greiðsla jafngildir bókun og merkið færsluna „Þjóðleið“. Greiðið inn á reikning 0515-26-530314 kt. 530314-0650 og sendið staðfestingu á einarskula@hotmail.com.
Þegar bókun er lokið er hægt að sækja um aðgang að lokaða hópnum: https://www.facebook.com/groups/1802465456801358

SKILMÁLAR
Athugið að Vesen og vergangur (Vesenisferðir ehf) tryggir hvorki farþega sína né farangur þeirra. Þátttakendur ferðast með á eigin ábyrgð. Félagið hvetur fólk til að kaupa ferða- og slysatryggingar, vera vel útbúið og kynna sér veður áður en lagt er af stað. Athugið að námskeiðsgjald fæst ekki endurgreitt eftir að námskeið er hafið en hægt er að framselja það til annars.
Fyrirvari er settur um röskun á prógramminu vegna Covid-19 eða hliðstæðra ástæðna eða veðurs en alltaf stefnt á að klára tilskilinn fjölda af göngum þó að þær fari á aðrar dagsetningar eða vikudaga.

 

Share this post

More Stories from Archive

Vesenisferðir ehf

530314-0650
Mávahlíð 33
105 Reykjavík
einarskula hjá gmail.com
Sími: +354 663-2113