Hreyfihópur · Millibrölt

Vesen og millibrölt á þriðjudögum, haust 2026

Millibrölt haust er sería af göngum frá miðjum ágúst og fram í byrjun desember sem hentar þeim sem hafa öðlast góðan grunn í göngum og vilja taka næsta skref. Göngurnar eru meira krefjandi en í Vesen og brölt, bæði hvað varðar undirlag, hækkun og landslag, en áfram er lögð áhersla á góða stemningu, fróðleik og að njóta útiverunnar í góðum félagsskap.

Á dagskrá eru sextán fjölbreyttar göngur sem skiptast í tólf kvöldgöngur á þriðjudögum og fjórar dagsgöngur á laugardögum. Kvöldgöngurnar eru skipulagðar þannig að meirihluti þeirra er snemma um haustið til að nýta birtuna sem best. Auk hreyfingarinnar er miðlað fjölbreyttum fróðleik um náttúru, sögu, örnefni og útbúnað.

Lögð er áhersla á að njóta útiverunnar og stoppa öðru hvoru til að skoða umhverfið og miðla fróðleik um náttúru, sögu og landslag. Markmiðið er að upplifa fjölbreyttar gönguleiðir og byggja smám saman upp meiri færni og sjálfstraust í ólíku undirlagi.

Þátttakendur koma sér sjálfir á upphafsstað hverrar göngu en fá upplýsingar um tíma og stað í lokaða Facebook-hópnum þar sem jafnframt er hægt að samnýta bíla. Hver ganga er kynnt með eins til tveggja daga fyrirvara ásamt upplýsingum um leiðina, aðstæður og veðurspá.

Hist er síðdegis og gengið af stað um kl. 18 á þriðjudögum og um eða upp úr kl. 9 á laugardagsmorgnum. Ef veður er óhagstætt á laugardegi verður sunnudagur varadagur.

Stofnaður hefur verið lokaður Facebook-hópur fyrir þátttakendur þar sem hver ganga er kynnt með eins til tveggja daga fyrirvara og miðlað ýmiss konar fræðslu. Sækið um aðgang að hópnum þegar skráningu er lokið.

Dagskrá

#DagurAthugasemd
1Þri 18. ágústOpin upphitunarganga
2Þri 25. ágústKvöldganga
3Lau 29. ágústDagsganga
4Þri 1. septemberKvöldganga
5Þri 8. septemberKvöldganga
6Þri 15. septemberKvöldganga
7Þri 22. septemberKvöldganga
8Þri 29. septemberKvöldganga
9Þri 6. októberKvöldganga
10Lau 10. októberDagsganga
11Þri 13. októberKvöldganga
12Þri 20. októberKvöldganga
13Þri 27. októberKvöldganga
14Lau 31. októberDagsganga
15Þri 10. nóvemberKvöldganga
16Lau 28. nóvemberDagsganga

Göngurnar

Kvöldgöngur: Þær eru að jafnaði 4 til 8 km að lengd með 100 til 400 metra hækkun og taka yfirleitt 1½ til 2½ klukkustund. Gengið er bæði eftir göngustígum og utan þeirra um fjölbreytt landslag, svo sem hraun, mela, móa, hlíðar og fell. Leiðirnar eru valdar með það að markmiði að veita hæfilega áskorun og auka smám saman úthald, öryggi og færni í fjölbreyttu undirlagi. Við metum aðstæður út frá veðri og færð og tilkynnum hverja göngu í lokaða Facebook-hópnum með eins til tveggja daga fyrirvara.

Stefnt er á eftirfarandi dagsgöngur:

  • Hagafell í Þjórsárdal, um 7,5 km og 500 m hækkun.
  • Glymur, um 7 km og 330 m hækkun.
  • Brekkufjall í Borgarfirði, um 8 km og 400 m hækkun.
  • Fagradalsfjall og nágrenni, um 11,5 km og 250 m hækkun.

Ef aðstæður kalla á breytingar geta aðrar sambærilegar göngur komið í stað þeirra sem hér eru nefndar.

Umsjón

Leiðbeinendur eru Einar Skúlason, Elísabet Snædís, Gunnar Gunnarsson og Rakel G. Magnúsdóttir. Þau hafa öll víðtæka reynslu af fararstjórn og leiðsögn og hafa komið að göngum í brölthópunum undanfarin ár.

Verð og bókanir

Í boði eru fjórir valkostir:

  • Allar göngurnar verð kr. 63.900
  • Einungis kvöldgöngur kr. 54.315
  • Einungis dagsgöngur kr. 26.000
  • Bland í poka (sex kvöldgöngur og tvær dagsgöngur að eigin vali) kr. 37.000

Bókanir fara fram í gegnum íslenska bókunarforritið Abler og einnig er hægt að greiða með millifærslu og greiðsla jafngildir bókun. Þau sem millifæra þurfa að óska eftir reikningi með því að senda á netfangið hér að neðan og tilgreina nafn, kt og hvaða áskrift þau eru með.

Millifærsla: Reikningur: 0515-26-530314. Kennitala: 530314-0650.

Merkið greiðsluna „milliþri“ og sendið greiðslustaðfestingu á einarskula@hotmail.com.

Afsláttarkjör (einungis veitt af heilu prógrammi)

  • Þátttakendur sem voru á Vesenisnámskeiði vorið eða sumarið 2026 fá 15% afslátt.
  • Elli- og örorkulífeyrisþegar fá 15% afslátt.
  • Fjölskylduafsláttur er 15% fyrir annan fjölskyldumeðlim með sama lögheimili.
  • Ekki er hægt að leggja saman afslætti.

Skilmálar

Þátttakendur taka þátt á eigin ábyrgð.

Vesen og vergangur (Vesenisferðir ehf.) tryggir hvorki þátttakendur né farangur þeirra og mælir með að fólk hafi gildar slysa- og ferðatryggingar.

Þátttakendur bera sjálfir ábyrgð á að mæta með fatnað og búnað sem hæfir aðstæðum hverju sinni.

Vesen og vergangur áskilur sér rétt til að gera breytingar á gönguleiðum og dagskrá ef veður, öryggi eða aðrar ófyrirséðar aðstæður krefjast þess.

Námskeiðsgjald fæst ekki endurgreitt eftir að námskeið er hafið en það er heimilt að framselja skráningu til annars þátttakanda í samráði við Vesen og vergang.

Hreyfihópar

Skoðaðu líka

Allir hóparnir