Langbröltið eru krefjandi göngur þar sem áherslan er frekar á lengri göngur en bröttustu fjöllin. Búast má við fjölbreyttum göngum með góðri hækkun í bland við ágætis vegalengdir eins og sést í dagskránni. Það er því fjör framundan.
Á dagskrá eru 17 fjölbreyttar göngur sem skiptast í tólf kvöldgöngur á fimmtudögum og fimm dagsgöngur á laugardögum. Búist er við að þátttakendur geti farið í krefjandi aðstæður út frá veðri og færð og þurfi því að eiga eða hafa aðgang að viðeigandi búnaði. Keðjubroddar (Esjubroddar) eiga að duga í allar göngur en ekki er útilokað að gott sé að hafa öxi og fjallabrodda þó ekki sé stefnt á að nota slíkan búnað.
Leiðsögufólk veitir leiðbeiningar um útbúnað og stofnaður er lokaður Facebook-hópur þar sem hver ganga er kynnt nánar, farið yfir aðstæður, ferðatilhögun og annað sem þarf að hafa í huga.
Gert er ráð fyrir að hver og einn beri ábyrgð á að koma sér á upphafsstað en við stingum upp á stöðum þar sem hægt er að sameinast í bíla.
Fararstjórn annast Einar Skúlason og Kristín Silja Guðlaugsdóttir ásamt Jóhönnu Fríðu, Elísabetu Snædísi og öðrum fararstjórum Vesens og vergangs.

Dagskrá
Gengið er á fimmtudagskvöldum kl. 18 og farið í dagsgöngur um helgar. Stefnt er á að fara í dagsgöngur á þeim dögum sem merktir eru í dagskránni en aðrir dagar eru til vara ef veður eða aðstæður krefjast breytinga. Hver ganga er tilkynnt í Facebook-hópnum með eins til þriggja daga fyrirvara og leiðir valdar með hliðsjón af veðurspá og aðstæðum.
1 Thu 20-Aug-26 Opin upphitunarganga
2 Thu 27-Aug-26
3 Thu 03-Sept-26
4 Thu 10-Sept-26
5 Sat 12-Sept-26 Dagsganga
6 Thu 17-Sept-26
7 Thu 24-Sept-26
8 Sat 03-Oct-26 Dagsganga
9 Thu 08-Oct-26
10 Thu 15-Oct-26
11 Sat 24-Oct-26 Dagsganga
12 Thu 29-Oct-26
13 Thu 05-Nov-26
14 Sat 07-Nov-26 Dagsganga
15 Thu 12-Nov-26
16 Sat 21-Nov-26 Dagsganga
17 Thu 26-Nov-26
Dagsgöngur
Skyrtunna – 17 km / 1.000 m
Kvígindisfell – 10 km / 650 m
Hestfjallahnúkur – 15 km / 750 m
Vestursúla og Norðursúla – 16,5 km / 1.150 m
Grímsstaðamúli á Mýrum – 12 km / 450 m
Athugið að vegalengd og hækkun segja ekki alla söguna, veður og færð hafa töluvert að segja ásamt undirlagi.

Verð og bókanir
- Allt prógrammið: 73.500 kr.
- Allt prógrammið með 15% afslætti: 62.500 kr.
- Einungis kvöldgöngurnar: 48.500 kr.
- Einungis dagsgöngurnar: 35.500 kr.
- Bland í poka (tvær dagsgöngur og sex kvöldgöngur að eigin vali): 44.000 kr.
Bókanir fara fram í bókunarkerfinu Abler. Þar er hægt að greiða með korti eða greiðsluseðlum og prenta út kvittun til að nýta hjá stéttarfélagi eða vinnustað.
Einnig er hægt að greiða með millifærslu. Merkið færsluna „lang“, greiðið inn á reikning 0515-26-530314, kennitala 530314-0650, og sendið staðfestingu á einarskula@hotmail.com. Greiðsla jafngildir bókun.
Lágmarksfjöldi í hópnum er 20 en hámarksfjöldi 50.
Þegar bókun er lokið er hægt að sækja um aðgang að lokaða Facebook-hópnum. Þau sem taka allt prógrammið og eiga rétt á afslætti (t.d. vegna fyrri þátttöku eða sem elli- og örorkulífeyrisþegar) fá 15% afslátt. Einnig er í boði fjölskylduafsláttur fyrir tvo eða fleiri á sama lögheimili. Afslætti er ekki hægt að leggja saman.

Skilmálar
Athugið að námskeiðsgjald fæst ekki endurgreitt eftir að námskeið er hafið en hægt er að framselja það til annars.
Vesen og vergangur (Vesenisferðir ehf.) tryggir hvorki farþega sína né farangur þeirra. Þátttakendur ferðast á eigin ábyrgð og hvatt er til þess að kaupa ferða- og slysatryggingar, vera vel útbúin og kynna sér veður áður en lagt er af stað.
Fyrirvari er um breytingar á dagskrá vegna veðurs, færðar eða annarra ófyrirséðra aðstæðna en ávallt er stefnt að því að klára tilskilinn fjölda gönguferða.
