Hreyfihópur · Þjóðleiðir

Þjóðleiðir og svoleiðis brölt árið 2025

Þessu námskeiði er lokið

ATH, nú er tveimur göngum lokið og enn er pláss fyrir nokkra í áskrift. Því hefur verð verið lækkað. (17. feb 2025)

Í þessum hópi munum við ganga um tólf gamlar leiðir frá einum stað til annars um það bil mánaðarlega. Á öllum leiðunum er frá ýmsu markverðu að segja og við munum því ferðast um söguna ekki síður en um landslagið.
Búið er að taka saman þessar fjölbreyttu tólf leiðir sem við stefnum á að ganga. Þær eru allar á sunnan- og vestanverðu landinu nema tvær sem eru á Norðurlandi. Í september stefnum við norður á Akureyri og dveljum yfir helgi og göngum tvær þjóðleiðir yfir Vaðlaheiði.

Þau sem kaupa aðgang munu ganga í þjóðleiðahópinn á Facebook. Þar er fyrir nokkur hópur fólks og verður fólki gefinn kostur á að kaupa sig inn í stakar göngur ef það vill ekki binda sig allt árið.
Í þjóðleiðahópnum á Facebook verða útbúnir viðburðir fyrir göngurnar með ca tveggja daga fyrirvara með nánari upplýsingum um fyrirkomulag, veður og útbúnað. Þá verður einnig miðlað fræðslu í hópnum og umræða getur verið í tengslum við þjóðleiðir og póstleiðir almennt. Þess vegna er þetta skráð sem námskeið enda munu þátttakendur eiga kost á því að læra þó nokkuð um þjóðleiðirnar og göngur almennt. Tekið skal fram að almennt er miðað við að fjöldi í göngu fari ekki yfir 50 manns.

Gengið var um Gjábakkastíg í þjóðleiðahópnum.

DAGSKRÁ
Hér að neðan má sjá áætlaða dagskrá og við munum reyna að standa við að fara þessar leiðir á árinu, en við hikum ekki við að víxla leiðum milli dagsetninga út frá veðri og færð. Allar áætlaðar leiðir voru hestfærar og því er engin þeirra mjög brött, en drjúg hækkun engu að síður í nokkrum.

#DagurAthugasemd
1Lau 25. janúarGamla leiðin um Miðnesheiði auk fjöruskoðunar við Hvalsnes 11 km/70 m
2Lau 15. febrúarMjóanes, Þingvellir 13 km/100 m
3Lau 15. marsSelstígar á Reykjanesskaga: Straumssel og Óttarsstaðasel 10 km/100 m
4Lau 12. aprílMilli hrauns og hlíðar frá Hellisheiði í Hagavík í Grafningi 17 km/350 m
5Lau 17. maíHálsaleið 1 (Skorradalur, Flókadalur) 13 km/550 m
6Lau 28. júníHálsaleið 2 (Flókadalur, Reykholtsdalur, Hálsasveit) 16,5 km/370 m
7Lau 23. ágústGamla leiðin meðfram Esjurótum á Kjalarnesi 11 km/150 m
8Lau 27. septemberÞjóðleiðahelgi á Akureyri: Bíldsárskarð 11 km/550
9Sun 28. septemberÞjóðleiðahelgi á Akureyri: Þingmannavegur 11,5 km/660 m
10Lau 18. októberSkarðsheiðarvegur 15 km/500 m
11Lau 15. nóvemberHríshálsvegur í Hvalfirði 8 km/200 m
12Sun 28. desemberGrafningsháls 9 km/240 m

Ef þarf að fresta göngu vegna veðurs þá er yfirleitt sunnudagurinn til vara. Gefin er upp áætluð vegalengd og uppsöfnuð hækkun. Ef þarf að panta rútu þá er sá kostnaður til viðbótar við skráningarkostnað. Við reynum annars að leysa bílamál með skutli og að sameinast í bíla þegar það er hægt, en ef fyrirsjáanlegt er að það taki of langan tíma þá pöntum við rútu.

Á Þingmannavegi, horft til Fnjóskadals.

UMSJÓN
Leiðbeinandi er Einar Skúlason. Hann stofnaði gönguhópinn Vesen og vergang og Wapp, Walking app leiðsöguapp. Hann hefur skrifað töluvert um gönguleiðir og er sérstakur áhugamaður um þjóðleiðir. Einar mun njóta aðstoðar frá fararstjórum í Veseni og vergangi.

Verð og bókanir

Kostar kr. 60.000 fyrir manninn fyrir allt árið (frá og með 17. feb hefur áskriftarverð verið lækkað í kr. 51.000 fyrir allt árið enda er tveimur göngum lokið af tólf).
Upplýsingar um afsláttarkjör eru neðar.

Bókanir fara fram á https://www.sportabler.com/shop/vesenisferdir (þið smellið á tengilinn, skráið ykkur inn og veljið það námskeið sem passar, greiðið og þá er allt klappað og klárt). Hægt er að prenta út kvittun í kerfinu og nýta til niðurgreiðslu stéttarfélags eða vinnustaðar. Athugið að færslur frá bókunarkerfinu á bankareikningi eru merkt sem „æfingagjöld“. Ef þið lendið í vandræðum með innskráningu þá eru leiðbeiningar hér.

Þá er það mögulegt að greiða með millifærslu. Greiðsla jafngildir bókun og merkið færsluna „Þjóðleið“. Greiðið inn á reikning 0515-26-530314 kt. 530314-0650 og sendið staðfestingu á einarskula@hotmail.com.
Munið að sækja um aðgang að þjóðleiðahópnum á Facebook: https://www.facebook.com/groups/1802465456801358

Afsláttarkjör:
15% afsláttur er veittur fyrir þau sem voru á vesenisnámskeiði haust 2024 eða eru í vor 2025. Sami afsláttur er fyrir elli- og örorkulífeyrisþega. Hægt er að sækja um fjölskylduafslátt sem virkar þannig að meðlimur í fjölskyldu nr 2 með sama lögheimili fær 15% afslátt. Látið vita á einarskula@hotmail.com.
Ekki er hægt að leggja saman afslátt til að fá hærra (hámarksafsláttur á hvern er 15%).

Hægt að taka með sér gest og hann borgar kr. 7000 fyrir gönguna og 14.000 fyrir þjóðleiðahelgina á Akureyri. Ítrekað er að rútukostnaður bætist við í þeim tilvikum sem rúta er pöntuð.

Myndin er tekin af leiðinni um Bíldsárskarð.

SKILMÁLAR
Athugið að Vesen og vergangur (Vesenisferðir ehf) tryggir hvorki farþega sína né farangur þeirra. Þátttakendur ferðast með á eigin ábyrgð. Félagið hvetur fólk til að kaupa ferða- og slysatryggingar, vera vel útbúið og kynna sér veður áður en lagt er af stað. Athugið að námskeiðsgjald fæst ekki endurgreitt eftir að námskeið er hafið en hægt er að framselja það til annars.
Fyrirvari er settur um röskun á prógramminu vegna Covid-19 eða hliðstæðra ástæðna eða veðurs en alltaf stefnt á að klára tilskilinn fjölda af göngum þó að þær fari á aðrar dagsetningar eða vikudaga.

Úr göngu þjóðleiðahópsins um Selvogsgötu.

Hreyfihópar

Skoðaðu líka

Allir hóparnir