Hreyfihópur · Brölt

Vesen og brölt haust 2026

Vesen og brölt er ætlað þeim sem vilja hreyfa sig reglulega án þess að leggja í erfiðar fjallgöngur. Við göngum á þægilegum hraða um láglendi, skóga, strandir og aflíðandi brekkur og stoppað er reglulega til að njóta útsýnisins og fræðast um náttúruna, söguna og staðina sem verða á vegi okkar.

Námskeiðið hefst með opinni upphitunargöngu í miðjum ágúst og stendur fram í byrjun desember. Á dagskrá eru 16 göngur; tólf kvöldgöngur á mánudögum og fjórar lengri dagsgöngur á sunnudögum.

Markmiðið er að byggja upp þol og sjálfstraust í göngum, kynnast nýjum svæðum og njóta útiveru í góðum hópi. Margir þátttakendur hafa gengið með okkur árum saman og nýir þátttakendur eru alltaf hjartanlega velkomnir.

Hvernig virkar námskeiðið?

Kvöldgöngurnar eru yfirleitt 4 til 8 km að lengd og fara fram á höfuðborgarsvæðinu eða í nágrenni þess. Helgargöngurnar eru ögn lengri og gefa kost á að heimsækja fjölbreytt svæði á Suðvesturlandi.

Göngurnar eru valdar með tilliti til árstíma, birtu og veðurs. Hver ganga er auglýst í lokuðum Facebook-hópi einum til tveimur dögum áður en lagt er af stað. Þar eru einnig birtar upplýsingar um leiðina, veður, útbúnað og ýmislegt fróðlegt um svæðið sem gengið verður um.

Við hvetjum þátttakendur til að sameinast í bíla þegar það á við. Það minnkar akstur, sparar kostnað og hefur reynst frábær leið til að kynnast öðrum í hópnum.

Ef veður hamlar dagsgöngu á sunnudegi er laugardagur til vara.

Fyrir hverja er námskeiðið?

Vesen og brölt hentar þeim sem vilja:

  • komast í betra gönguform,
  • hreyfa sig reglulega í góðum félagsskap,
  • kynnast nýjum gönguleiðum,
  • fræðast um náttúru, sögu og örnefni,
  • njóta útiveru án þess að leggja í mjög krefjandi fjallgöngur.

Ekki er gerð krafa um fyrri reynslu, en þátttakendur þurfa að geta gengið nokkra kílómetra á fjölbreyttu undirlagi.

Dagskrá

Námskeiðið samanstendur af tólf kvöldgöngum á mánudögum og fjórum lengri dagsgöngum á sunnudögum.

Stefnt er á eftirfarandi dagsgöngur:

  • Róleg ganga með Rauðufossum að Auganu (10 km/350m)
  • Herdísarvíkurgata (7-9 km)
  • Akranes á Mýrum (10 km)
  • Haukadalur við Geysi (5-7 km /100m)

Kvöldgöngur fara fram á höfuðborgarsvæðinu og í næsta nágrenni þess. Stefnt er á að fara ekki sömu gönguna tvisvar á hverju misseri.

1 17. ágúst (mán.) Opin upphitunarganga

2 24. ágúst (mán.) Kvöldganga

3 30. ágúst (sun.) Dagsganga

4 7. september (mán.) Kvöldganga

5 14. september (mán.) Kvöldganga

6 21. september (mán.) Kvöldganga

7 28. september (mán.) Kvöldganga

8 5. október (mán.) Kvöldganga

9 12. október (mán.) Kvöldganga

10 18. október (sun.) Dagsganga

11 26. október (mán.) Kvöldganga

12 2. nóvember (mán.) Kvöldganga

13 9. nóvember (mán.) Kvöldganga

14 15. nóvember (sun.) Dagsganga

15 23. nóvember (mán.) Kvöldganga

16 6. desember (sun.) Lokadagsganga

Endanlegt val á gönguleiðum ræðst af veðri, færð og aðstæðum hverju sinni. Hver ganga er kynnt í Facebook-hópnum með eins til tveggja daga fyrirvara.

Leiðbeinendur

Leiðbeinendur eru Einar Skúlason, Gunnar Gunnarsson, Rakel G. Magnúsdóttir og Þórdís Sigurgeirsdóttir sem öll hafa víðtæka reynslu af leiðsögn og útivist.

Verð og bókanir

Í boði eru fjórir valkostir:

  • Allar göngurnar verð kr. 62.900
  • Einungis kvöldgöngur kr. 46.900
  • Einungis dagsgöngur kr. 26.000
  • Bland í poka (sex kvöldgöngur og tvær dagsgöngur að eigin vali) kr. 37.000

Bókun í Abler

Bókanir fara fram í gegnum íslenska bókunarkerfið Abler. Þar er hægt að greiða með greiðslukorti og prenta út kvittun til að sækja um niðurgreiðslu hjá stéttarfélagi eða vinnuveitanda.

Greiðsla með millifærslu: Einnig er hægt að greiða með millifærslu og greiðsla jafngildir bókun. Óski þátttakendur eftir reikningi er hægt að senda beiðni á netfangið hér að neðan.

Reikningur: 0515-26-530314

Kennitala: 530314-0650

Merkið greiðsluna „Brölt“ og sendið greiðslustaðfestingu á einarskula@hotmail.com.

Afsláttarkjör (einungis veitt af heilu prógrammi)

  • Þátttakendur sem voru á Vesenisnámskeiði vorið eða sumarið 2026 fá 15% afslátt.
  • Elli- og örorkulífeyrisþegar fá 15% afslátt.
  • Fjölskylduafsláttur er 15% fyrir annan fjölskyldumeðlim með sama lögheimili.
  • Ekki er hægt að leggja saman afslætti.

Skilmálar

Þátttakendur taka þátt á eigin ábyrgð.

Vesen og vergangur (Vesenisferðir ehf.) tryggir hvorki þátttakendur né farangur þeirra og mælir með að fólk hafi gildar slysa- og ferðatryggingar.

Þátttakendur bera sjálfir ábyrgð á að mæta með fatnað og búnað sem hæfir aðstæðum hverju sinni.

Vesen og vergangur áskilur sér rétt til að gera breytingar á gönguleiðum og dagskrá ef veður, öryggi eða aðrar ófyrirséðar aðstæður krefjast þess.

Námskeiðsgjald fæst ekki endurgreitt eftir að námskeið er hafið en það er heimilt að framselja skráningu til annars þátttakanda í samráði við Vesen og vergang.

Hreyfihópar

Skoðaðu líka

Allir hóparnir