VESEN OG MEIRA BRÖLT VOR 2023

Meira bröltið er erfiðasti hópur Vesens og vergangs. Prógrammið miðast við að undirbúa fólk fyrir göngur á hærri og erfiðari fjöll og fyrir algengustu skipulögðu jöklagöngurnar. Við munum fara í helgargöngur sem miðast við þetta og stefnum á tvo jökla í prógramminu. Auk þess er gert ráð fyrir að skipulagðar verði tvær sjálfstæðar jöklagöngur í maí/júní sem miðast m.a. við þennan hóp.

Búast má við því að þátttakendur geti farið í krefjandi aðstæður út frá veðri og færð og gert er ráð fyrir að þátttakendur séu í nokkuð góðu líkamlegu formi og tilbúnir til að verja tíma til að komast í enn betra gönguform. Hver og einn þarf að hafa aðgang að búnaði til samræmis við erfiðleikastig ferðanna. Það á við t.d. um gönguöxi (ísöxi) og fjallabrodda (jöklabrodda) eða keðjubrodda (Esjubroddar). Skynsamlegt er að eiga þennan útbúnað enda er þetta staðalbúnaður við vetrarferðir í aðstæðum eins og upp fyrir Stein í Esju eða á Móskarðshnúka.

Leiðsögufólk veitir leiðbeiningar um útbúnað og stofnaður er lokaður Facebook hópur þar sem hver ganga er kynnt og fjallað um aðstæður. Þá verður æfð notkun á gönguöxi og fjallabroddum. Varðandi göngur er gert ráð fyrir að hver og einn beri ábyrgð á að koma sér á staðinn en við stingum upp á stöðum til að hittast og sameinast í bíla.
Gengið er á fimmtudagskvöldum og svo eru helgargöngur á móti. Þá eru fólk í hópnum hvatt til að taka Esjuæfingu upp að Steini á þriðjudögum og á mánudögum er þol- og styrktaræfing sem er innifalin.

DAGSKRÁ

Athugið að helgargöngur eru settar á laugardag og þá er sunnudagur til vara, nema föstudaginn langa þá er laugardagur til vara.

19-Jan-23 Fimmtud
21-Jan-23 Helgarganga: Umhverfis Jósepsdal
26-Jan-23 Fimmtud
4-Feb-23 Helgarganga: Hvalfell
9-Feb-23 Fimmtud
18-Feb-23 Helgarganga: Vestursúla og Norðursúla
23-Feb-23 Fimmtud
2-Mar-23 Fimmtud
11-Mar-23 Helgarganga: Flekkudalshringur í Esju 7-9 tindar
16-Mar-23 Fimmtud
23-Mar-23 Fimmtud
25-Mar-23 Helgarganga: Ölver-Blákollur-Rauðuhnúkafjöll og Svörtutindar í Andakíl
30-Mar-23 Fimmtud
6-Apr-23 Helgarganga: Snæfellsjökull
13-Apr-23 Fimmtud
22-Apr-23 Helgarganga: Helgrindur frá A-B Staðarsveit til Grundarfjarðar
27-Apr-23 Fimmtud
4-May-23 Fimmtud
6-May-23 Helgarganga: Eyjafjallajökull þveraður
11-May-23 Fimmtud

KVÖLDGÖNGUR
Fimmtudagsgöngurnar eru fjölbreyttar og takmarkast af veðri og færð. Við nýtum okkur Esjuna, Akrafjallið, fellin á höfuðborgarsvæðinu, Bláfjallahrygg og nágrenni og aðra fjallshryggi á Reykjanesskaga. Það getur verið að við þurfum að fara sömu leiðir tvisvar enda eru þessar kvöldgöngur í og með æfingagöngur fyrir helgargöngurnar og takmörk fyrir því hvað hægt er að finna margar leiðir með meira en 4-500 m hækkun.

Að auki er mælst til þess að þátttakendur hittist síðdegis á þriðjudögum og fari upp að Steini. Ekki er gert ráð fyrir að fararstjórar mæti sérstaklega í þær göngur.

ÞOLÞJÁLFUN INNIFALIN
Auk þess hafa þau sem eru í hópnum rétt til að mæta á mánudögum kl. 17:45 í fjölbreytta þolþjálfun á ólíkum stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Þolþjálfunin tekur klukkutíma í senn og felur m.a. í sér brekkuæfingar. Þetta verður kynnt nánar í lokaða hópnum.

UMSJÓN
Jón Trausti Bjarnason og Bjarki Valur Bjarnason hafa umsjón með göngunum og stundum koma aðrir fararstjórar Vesens og vergangs við sögu eins og Einar Skúlason og Jóhanna Fríða Dalkvist. Þeir Jón Trausti og Bjarki hafa langa reynslu af fararstjórn í fjölbreyttum ferðum um landið.

VERÐ OG BÓKANIR

Þrír bókunarmöguleikar eru fyrir hendi:

  1. Allur pakkinn: fimmtudagsgöngur og helgargöngur kr. 74.000
  2. Aðeins helgargöngurnar kr. 49.000
  3. Aðeins fimmtudagsgöngurnar kr. 37.000

Bókanir fara fram á https://www.sportabler.com/shop/vesenisferdir (þið smellið á tengilinn, skráið ykkur inn og veljið það námskeið sem passar, greiðið og þá er allt klappað og klárt). Hægt er að prenta út kvittun í kerfinu og nýta til niðurgreiðslu stéttarfélags eða vinnustaðar. Athugið að færslur frá bókunarkerfinu á bankareikningi eru merkt sem „æfingagjöld“.

Þá er einnig mögulegt að greiða með millifærslu. Greiðsla jafngildir bókun og merkið færsluna „meira“. Greiðið inn á reikning 0515-26-530314 kt. 530314-0650 og sendið staðfestingu á einarskula@hotmail.com.
Lágmarksfjöldi í hópnum er 20 en hámarksfjöldi 50.

Þegar bókun er lokið er hægt að sækja um aðgang að lokaða hópnum: https://www.facebook.com/groups/5719334464769424

Afsláttarkjör: Hámarksafsláttur er 10% á mann og er í formi endurgreiðslu eftir að námskeið er hafið og búið að gera það upp. Þau sem voru skráð á Vesenisnámskeið haustið 2022 eða til elli-og örorkulífeyrisþega eða fjölskylduafsláttur fyrir meðlim nr. 2 í fjölskyldu með sama lögheimili. Látið vita á einarskula@hotmail.com og sendið með upplýsingar um námskeið, kennitölu og bankaupplýsingar.

SKILMÁLAR

Athugið að Vesen og vergangur (Vesenisferðir ehf) tryggir hvorki farþega sína né farangur þeirra. Þátttakendur ferðast með á eigin ábyrgð. Félagið hvetur fólk til að kaupa ferða- og slysatryggingar, vera vel útbúið og kynna sér veður áður en lagt er af stað. Athugið að námskeiðsgjald fæst ekki endurgreitt eftir að námskeið er hafið en hægt er að framselja það til annars.
Fyrirvari er settur um röskun á prógramminu vegna Covid-19 eða hliðstæðra ástæðna eða veðurs en alltaf stefnt á að klára tilskilinn fjölda af göngum.

Share this post

More Stories from Archive

Vesenisferðir ehf

530314-0650
Mávahlíð 33
105 Reykjavík
einarskula hjá gmail.com
Sími: +354 663-2113