Gengið er í hverri viku í brölthópunum og allir eru þeir með ákveðin markmið og lista yfir gönguleiðir eða fjöll sem er stefnt að því að klára. Svo sjá fararstjórar um að fylgjast með veðri, færð og aðstæðum að öðru leyti og raða niður göngunum til að hámarka öryggi eftir því sem hægt er og um leið ánægju.
Vesen og brölt eru með láglendisgöngur og aflíðandi brekkur. Vesen og millibrölt eru göngur á fellin og lægri fjöllin á suðvesturhorninu og ýmsar þjóðleiðir. Vesen og langbrölt eru hærri og lengri göngur en millibröltið, en ekki er farið á bröttustu fjöllin og ekki stefnt á jökla. Vesen og meira brölt stefnir á hærri fjöllin og brattari brekkur og jöklagöngur. Auk þess hafa verið sögugönguhópar í samstarfi við Stefán Pálsson sagnfræðing og stöku léttgönguhópar á vegum Vesenisins og stundum í samstarfi við SÍBS.
Sumarbröltið er röð þægilegra láglendisgönguferða í maí og júní sem eru eins konar framhald af sama vorprógrammi í Vesen og brölt. Það miðast meðal annars við að koma fólki í form fyrir sumargöngur en einnig til að njóta á björtum dögum og kvöldum. Gengið er einu til tvisvar í viku á höfuðborgarsvæðinu og skynsamri akstursfjarlægð og er miðlað fróðleik um náttúru, umhverfi og útbúnað. Hist er kl. 18 í kvöldgöngum en yfirleitt um níuleytið í dagsgöngum.
Stofnaður verður lokaður Facebook hópur fyrir þátttakendur og þar er tilkynnt um hverja göngu með eins til þriggja daga fyrirvara og birtast allar upplýsingar um gönguna, um veðurspá og útbúnað, útskýrt hvernig á að komast á staðinn og settur staður á höfuðborgarsvæðinu til að hittast og sameinast í bíla.
DAGSKRÁ
Mán 12.5.2025 Kvöld: Smalaholt 6 km/200 m
Mán 19.5.2025 Kvöld: Úlfarsfell eftir veginum 5 km/200 m
Sun 25.5.2025 Dagsganga: Knarrarósviti – Eyrarbakki 12 km/50 m
Mán 26.5.2025 Kvöld: Urriðakotsvatn og Stekkjahraun 6 km/100 m
Mán 2.6.2025 Kvöld: Skógrækt við Krýsuvíkurveg 7 km/100 m
Lau 9.6.2025 Dagsganga: Klukkustígur á Þingvöllum 12 km/100 m
Mán 16.6.2025 Kvöld: Umhverfis Mosfell 6 km/200 m
Lau 21.6.2025 Dagsganga: Háifoss að Gjánni og Stöng í Þjórsárdal 10 km/250 m
Mán 23.6.2025 Kvöld: Guðnahellir á Mosfellsheiði 7 km/100 m
Lau 28.6.2025 Dags: Marardalur 10 km/400 m
Athugið að dagskráin er sett fram með fyrirvara um veður og aðstæður. Við áskiljum okkur rétt til að víxla göngum eða fella niður og taka aðrar inn í staðinn.
UMSJÓN
Gunnar Gunnarsson og Rakel G. Magnúsdóttir stýra prógramminu og leiða göngurnar.
VERÐ OG BÓKANIR
Þetta eru alls tíu göngur, sex kvöldgöngur og fjórar dagsgöngur. Hægt er að taka allt prógrammið (og þá er afsláttur fyrir þau sem voru í vorprógrammi eða eru á lífeyri) eða taka annað hvort kvöldgöngurnar eða dagsgöngurnar. Hægt verður að kaupa sig inn í stakar göngur (verð kr. 5000 í staka kvöldgöngu og 7000 í staka dagsgöngu).
1. Allur pakkinn 33.000 kr.
2. Allur pakkinn með afslætti 28.050 kr.
3. Aðeins kvöldgöngur 20.500 kr.
4. Aðeins dagsgöngur 18.500 kr.
5. Bland í poka (tvær dagsgöngur og þrjár kvöldgöngur að eigin vali) 21.500 kr.
Bókanir fara fram á https://www.sportabler.com/shop/vesenisferdir (þið smellið á tengilinn, skráið ykkur inn og veljið það námskeið sem passar, greiðið og þá er allt klappað og klárt). Hægt er að prenta út kvittun í kerfinu og nýta til niðurgreiðslu stéttarfélags eða vinnustaðar. Athugið að færslur frá bókunarkerfinu á bankareikningi eru merkt sem „æfingagjöld“.
Þá er einnig mögulegt að greiða með millifærslu. Greiðsla jafngildir bókun og merkið færsluna „sumarbrolt“. Greiðið inn á reikning 0515-26-530314 kt. 530314-0650 og sendið staðfestingu á einarskula@hotmail.com.
Lágmarksfjöldi í hópnum er 20 en hámarksfjöldi 50.
Þegar bókun er lokið er hægt að sækja um aðgang að lokaða hópnum: https://www.facebook.com/groups/336690449402109
Afsláttarkjör
Þau sem voru skráð á Vesenisnámskeið vorið 2025 eða eru elli-og örorkulífeyrisþegar. Einnig er fjölskylduafsláttur fyrir meðlim nr. 2 í fjölskyldu með sama lögheimili (sami afsláttur og fyrrnefndur) en gildir aðeins ef keyptur er allur pakkinn.
SKILMÁLAR
Vesen og vergangur (Vesenisferðir ehf) tryggir hvorki farþega sína né farangur þeirra. Þátttakendur ferðast með á eigin ábyrgð. Félagið hvetur fólk til að kaupa ferða- og slysatryggingar, vera vel útbúið og kynna sér veður áður en lagt er af stað.
Athugið að námskeiðsgjald fæst ekki endurgreitt eftir að námskeið er hafið en hægt er að framselja það til annars.
Fyrirvari er settur um röskun á prógramminu vegna veðurs eða annarra aðstæðna. Ef göngur á reglulegum tímum falla niður þá er réttur áskilinn til að vera með aukagöngur á öðrum vikudögum til að vinna upp tapið og eins að nýta daga í júlí til að klára.
Gert er ráð fyrir að fólk komi sér sjá
lft á upphafsstað gönguferðanna, en við munum skipuleggja staði til þess að hittast á höfuðborgarsvæðinu svo hægt sé að deila bílum. Fólk deilir svo kostnaði við bílferðirnar.
Vesen og millibrölt sumar er röð gönguferða í tæpa tvo mánuði sem allar fela í sér hækkun og myndu teljast miðlungserfiðar og sumar í efri hluta þess flokks. Það má segja að þetta sé fyrir þau sem hafa farið á Úlfarsfellið og svipuð fell og upp að Steini og vilja kynnast nýjum leiðum með hækkandi sól og um leið komast í betra form. Þetta er sérstaklega góður undirbúningur fyrir þau sem hyggja á lengri göngur í sumar eins og til dæmis Laugaveginn, Víknaslóðir, Hornstrandir, Lónsöræfi eða annað sambærilegt eða vilja einfaldlega komast í betra form og sjá fjölbreytt og fallegt landslag.
Þetta eru æfingar í að takast á við meiri hækkun og fjölbreyttar aðstæður. Auk þess er miðlað fróðleik um náttúru, sögu, umhverfi og útbúnað.
Stofnaður verður lokaður Facebook hópur fyrir þátttakendur og þar er tilkynnt um hverja göngu með eins til þriggja daga fyrirvara (með hliðsjón af veðurspá). Sjá tengil inn á lokaða hópinn í kafla um verð og bókanir.
DAGSKRÁ
Lau 10-May-25 Dagsganga: Þyrill í Hvalfirði úr Litlasandsdal 8,5 km/350 m
Þri 13-May-25 Kvöldganga: Geitafell í Þrengslum 8 km/300 m
Þri 20-May-25 Kvöldganga: Sköflungur við Hengilssvæðið 6,5 km/260 m
Lau 24-May-25 Dagsganga: Bjarnarhafnarfjall í Helgafellssveit 8,5 km/750m
Þri 27-May-25 Kvöldganga: Ingólfsfjall að Inghóli 9 km/540 m
Þri 03-Jun-25 Kvöldganga: Hrafnabjörg (og Þjófahnúkur) við Þingvelli 6-8 km/350-500m
Mán 09-Jun-25 Dagsganga: Búrfell í Þjórsárdal 10 km/600 m
Þri 17-Jun-25 Dagsganga: Glymur og Hvalfell í Hvalfirði 13 km/900 m
Þri 24-Jun-25 Kvöldganga: Vörðuskeggi 8 km/650 m
Sun 29-Jun-25 Dagsganga: Tungukollur og Katlaþúfa við Hafnarfjall 10 km/950m
Athugið að dagskráin er sett fram með fyrirvara um veður og aðstæður. Við áskiljum okkur rétt til að víxla göngum eða fella niður og taka aðrar inn í staðinn.
UMSJÓN
Einar Skúlason leiðir flestar göngurnar ásamt Jóhönnu Fríðu, Kristínu Silju og fleiri úr hópi fararstjóra Vesens og vergangs.
VERÐ OG BÓKANIR
Þetta eru alls tíu göngur, fimm kvöldgöngur og fimm dagsgöngur. Hægt er að taka allan pakkann (og þá getur afsláttur átt við) eða taka annað hvort kvöldgöngurnar eða dagsgöngurnar eða bland í poka. Það hefst í fyrri hluta maí og stendur fram í lok júní eða í sjö vikur. Hægt verður að kaupa sig inn í stakar göngur (verð kr. 5000 í staka kvöldgöngu og 7000 í staka dagsgöngu).
1. Allur pakkinn 36.000 kr.
2. Allur pakkinn með afslætti 30.600 kr.
3. Aðeins kvöldgöngur 18.500 kr.
4. Aðeins dagsgöngur 23.000 kr.
5. Bland í poka (tvær dagsgöngur og þrjár kvöldgöngur að eigin vali) 22.000 kr.
Bókanir fara fram á https://www.sportabler.com/shop/vesenisferdir (þið smellið á tengilinn, skráið ykkur inn og veljið það námskeið sem passar, greiðið og þá er allt klappað og klárt). Hægt er að prenta út kvittun í kerfinu og nýta til niðurgreiðslu stéttarfélags eða vinnustaðar. Athugið að færslur frá bókunarkerfinu á bankareikningi eru merkt sem „æfingagjöld“.
Þá er einnig mögulegt að greiða með millifærslu. Greiðsla jafngildir bókun og merkið færsluna „millisumar“. Greiðið inn á reikning 0515-26-530314 kt. 530314-0650 og sendið staðfestingu á einarskula@hotmail.com.
Lágmarksfjöldi í hópnum er 20 en hámarksfjöldi 50.
Þegar bókun er lokið er hægt að sækja um aðgang að lokaða hópnum: https://www.facebook.com/groups/2694476527394856
Afsláttarkjör
Þau sem voru skráð á Vesenisnámskeið vorið 2025 eða eru elli-og örorkulífeyrisþegar. Einnig er fjölskylduafsláttur fyrir meðlim nr. 2 í fjölskyldu með sama lögheimili (sami afsláttur og fyrrnefndur) en gildir aðeins ef keyptur er allur pakkinn.
SKILMÁLAR
Vesen og vergangur (Vesenisferðir ehf) tryggir hvorki farþega sína né farangur þeirra. Þátttakendur ferðast með á eigin ábyrgð. Félagið hvetur fólk til að kaupa ferða- og slysatryggingar, vera vel útbúið og kynna sér veður áður en lagt er af stað.
Athugið að námskeiðsgjald fæst ekki endurgreitt eftir að námskeið er hafið en hægt er að framselja það til annars.
Fyrirvari er settur um röskun á prógramminu vegna veðurs eða annarra aðstæðna. Ef göngur á reglulegum tímum falla niður þá er réttur áskilinn til að vera með aukagöngur á öðrum vikudögum til að vinna upp tapið og eins að nýta daga í júlí til að klára.
Gert er ráð fyrir að fólk komi sér sjálft á upphafsstað gönguferðanna, en við munum skipuleggja staði til þess að hittast á höfuðborgarsvæðinu svo hægt sé að deila bílum. Fólk deilir svo kostnaði við bílferðirnar.
ATH – nú er tveimur göngum lokið og enn er pláss fyrir nokkra í áskrift. Því hefur verð verið lækkað. (17. feb 2025)
Í þessum hópi munum við ganga um tólf gamlar leiðir frá einum stað til annars um það bil mánaðarlega. Á öllum leiðunum er frá ýmsu markverðu að segja og við munum því ferðast um söguna ekki síður en um landslagið.
Búið er að taka saman þessar fjölbreyttu tólf leiðir sem við stefnum á að ganga. Þær eru allar á sunnan- og vestanverðu landinu nema tvær sem eru á Norðurlandi. Í september stefnum við norður á Akureyri og dveljum yfir helgi og göngum tvær þjóðleiðir yfir Vaðlaheiði.
Þau sem kaupa aðgang munu ganga í þjóðleiðahópinn á Facebook. Þar er fyrir nokkur hópur fólks og verður fólki gefinn kostur á að kaupa sig inn í stakar göngur ef það vill ekki binda sig allt árið.
Í þjóðleiðahópnum á Facebook verða útbúnir viðburðir fyrir göngurnar með ca tveggja daga fyrirvara með nánari upplýsingum um fyrirkomulag, veður og útbúnað. Þá verður einnig miðlað fræðslu í hópnum og umræða getur verið í tengslum við þjóðleiðir og póstleiðir almennt. Þess vegna er þetta skráð sem námskeið enda munu þátttakendur eiga kost á því að læra þó nokkuð um þjóðleiðirnar og göngur almennt. Tekið skal fram að almennt er miðað við að fjöldi í göngu fari ekki yfir 50 manns.
DAGSKRÁ
Hér að neðan má sjá áætlaða dagskrá og við munum reyna að standa við að fara þessar leiðir á árinu, en við hikum ekki við að víxla leiðum milli dagsetninga út frá veðri og færð. Allar áætlaðar leiðir voru hestfærar og því er engin þeirra mjög brött, en drjúg hækkun engu að síður í nokkrum.
Ef þarf að fresta göngu vegna veðurs þá er yfirleitt sunnudagurinn til vara. Gefin er upp áætluð vegalengd og uppsöfnuð hækkun. Ef þarf að panta rútu þá er sá kostnaður til viðbótar við skráningarkostnað. Við reynum annars að leysa bílamál með skutli og að sameinast í bíla þegar það er hægt, en ef fyrirsjáanlegt er að það taki of langan tíma þá pöntum við rútu.
UMSJÓN
Leiðbeinandi er Einar Skúlason. Hann stofnaði gönguhópinn Vesen og vergang og Wapp – Walking app leiðsöguapp. Hann hefur skrifað töluvert um gönguleiðir og er sérstakur áhugamaður um þjóðleiðir. Einar mun njóta aðstoðar frá fararstjórum í Veseni og vergangi.
VERÐ OG BÓKANIR
Kostar kr. 60.000 fyrir manninn fyrir allt árið (frá og með 17. feb hefur áskriftarverð verið lækkað í kr. 51.000 fyrir allt árið enda er tveimur göngum lokið af tólf).
Upplýsingar um afsláttarkjör eru neðar.
Bókanir fara fram á https://www.sportabler.com/shop/vesenisferdir (þið smellið á tengilinn, skráið ykkur inn og veljið það námskeið sem passar, greiðið og þá er allt klappað og klárt). Hægt er að prenta út kvittun í kerfinu og nýta til niðurgreiðslu stéttarfélags eða vinnustaðar. Athugið að færslur frá bókunarkerfinu á bankareikningi eru merkt sem „æfingagjöld“. Ef þið lendið í vandræðum með innskráningu þá eru leiðbeiningar hér.
Þá er það mögulegt að greiða með millifærslu. Greiðsla jafngildir bókun og merkið færsluna „Þjóðleið“. Greiðið inn á reikning 0515-26-530314 kt. 530314-0650 og sendið staðfestingu á einarskula@hotmail.com.
Munið að sækja um aðgang að þjóðleiðahópnum á Facebook: https://www.facebook.com/groups/1802465456801358
Afsláttarkjör:
15% afsláttur er veittur fyrir þau sem voru á vesenisnámskeiði haust 2024 eða eru í vor 2025. Sami afsláttur er fyrir elli- og örorkulífeyrisþega. Hægt er að sækja um fjölskylduafslátt sem virkar þannig að meðlimur í fjölskyldu nr 2 með sama lögheimili fær 15% afslátt. Látið vita á einarskula@hotmail.com.
Ekki er hægt að leggja saman afslátt til að fá hærra (hámarksafsláttur á hvern er 15%).
Hægt að taka með sér gest og hann borgar kr. 7000 fyrir gönguna og 14.000 fyrir þjóðleiðahelgina á Akureyri. Ítrekað er að rútukostnaður bætist við í þeim tilvikum sem rúta er pöntuð.
SKILMÁLAR
Athugið að Vesen og vergangur (Vesenisferðir ehf) tryggir hvorki farþega sína né farangur þeirra. Þátttakendur ferðast með á eigin ábyrgð. Félagið hvetur fólk til að kaupa ferða- og slysatryggingar, vera vel útbúið og kynna sér veður áður en lagt er af stað. Athugið að námskeiðsgjald fæst ekki endurgreitt eftir að námskeið er hafið en hægt er að framselja það til annars.
Fyrirvari er settur um röskun á prógramminu vegna Covid-19 eða hliðstæðra ástæðna eða veðurs en alltaf stefnt á að klára tilskilinn fjölda af göngum þó að þær fari á aðrar dagsetningar eða vikudaga.
Vesen og millibrölt (miðvikudagar) er hreyfihópur sem passar fyrir þau sem fara gjarnan á Úlfarsfell eða sambærilegt og geta hugsað sér að fara víðar. Gert er ráð fyrir að þátttakendur bæti þolið og styrkist og æfi sig jafnframt í ólíkum aðstæðum á hinum ýmsu fellum og lægri fjöllum í nágrenni höfuðborgarsvæðisins. Smátt og smátt verða göngurnar örlítið erfiðari til að auka hæfnina og að auki er miðlað fróðleik um náttúru, umhverfi og útbúnað.
Við byrjum í janúar og þetta fer rólega af stað en svo fjölgar göngum með hækkandi sól og áður en við vitum af er farið að sjást í græna sprota og það er alltaf sérstakt tilhlökkunarefni að sjá fyrstu vetrarblómin í apríl.
Alls verða sautján göngur frá janúar og fram í maí fyrir utan upphitun og Esjugöngur. Hægt er að taka einungis þátt á miðvikudagskvöldum og þá eru innifaldar þrettán göngur eða einungis um helgar og þá eru það fjórar göngur. Hlutfallslega hagstæðast er að taka allan pakkann.
DAGSKRÁ
Við erum með pott af mögulegum gönguleiðum og svo verður metið hverju sinni hvaða leiðir er best að taka miðað við veður og færð.
Janúar
• Upphitunarganga laugard 11. jan opin öllum
• Miðvikud 22. jan
Febrúar
• Sun 9. feb dagsganga
• Mið 5. feb, mið 19. Feb, mið 26. feb
Mars
• Sun 2. mars dagsganga.
• Mið 12. mars, mið 19. mars, mið 26. mars.
Apríl
• Sun 6. apríl dagsganga og sun 27. apríl
• Mið 2. apríl, mið 9. apríl, mið 16. apríl, mið 23. apríl, mið 30. apríl
Maí
• Mið 7. maí
KVÖLDGÖNGUR: Fell og fjöll og leiðir á suðvesturhorninu og fer eftir veðri og færð. Gjarnan 2-400 m hækkun, jafnvel minna og jafnvel meira ef það er sumarfæri og oft eru þetta 3-8 km. Við förum bara einu sinni hverja leið þannig að fjölbreytni er mikil.
HELGARGÖNGUR
• Bláfjallahryggur, Kerlingarhnúkur og Heiðin há (heiðartoppur) 8 km 330 m
• Elliðahamar á Snæfellsnesi 8 km/600 m
• Drápuhlíðarfjall í Helgafellssveit 6 km/570 m
• Laugarvatnsfjall 8 km/500 m
ESJUÆFINGAR á þriðjudögum fyrstu vikur ársins fram í miðjan mars (kl. 18 við Esjustofu) – ýmist farið hluta af vegalengd upp að Steini eða gengið í Skógræktinni, óformlegt skipulag og allir brölthópar geta tekið þátt
• 2. jan (fimmtud), 7. jan, 14. jan, 4. feb, 25. feb
TEYMIÐ
Teymið sem hefur umsjón með göngunum samanstendur af Einari Skúlasyni og Elísabetu Snædísi Jónsdóttur. Auk þeirra geta Gunnar Gunnarsson, Rakel G. Magnúsdóttir, Kristín Silja Guðlaugsdóttir og Jóhanna Fríða Dalkvist komið inn í göngur. Þau hafa öll mikla og fjölbreytta reynslu af fjallamennsku og að leiða hópa við ýmsar aðstæður í göngum.
VERÐ OG BÓKANIR
Verð
Allar miðvikudagsgöngur og allar dagsgöngur kr. 61.000
Einungis helgargöngurnar kr. 25.000
Einungis miðvikudagsgöngur kr. 45.000
Bókanir fara fram á https://www.sportabler.com/shop/vesenisferdir (þið smellið á tengilinn, skráið ykkur inn og veljið það námskeið sem passar, greiðið og þá er allt klappað og klárt). Hægt er að prenta út kvittun í kerfinu og nýta til niðurgreiðslu stéttarfélags- eða vinnustaðar. Athugið að færslur frá bókunarkerfinu á bankareikningi eru merkt sem „æfingagjöld“. Ef þið lendið í vandræðum með innskráningu þá eru leiðbeiningar hér.
Þá er einnig mögulegt að greiða með millifærslu. Greiðsla jafngildir bókun og merkið færsluna „millimið“. Greiðið inn á reikning 0515-26-530314 kt. 530314-0650 og sendið staðfestingu á einarskula@hotmail.com.
Lágmarksfjöldi í hópnum er 20 en hámarksfjöldi 50.
Þegar bókun er lokið er hægt að sækja um aðgang að lokaða hópnum: https://www.facebook.com/groups/870504525067256
Afsláttarkjör fyrir þau sem kaupa allt prógrammið:
Þau sem voru skráð á Vesenisnámskeið í haust 2023 eða eru elli-og örorkulífeyrisþega fá 15% afslátt. Veljið í bókunarferlinu.
Hægt er að sækja um fjölskylduafslátt sem virkar þannig að meðlimur í fjölskyldu nr 2 með sama lögheimili fær 15% afslátt. Látið vita á einarskula@hotmail.com.
Ekki er hægt að leggja saman afslátt til að fá hærra (hámarksafsláttur á hvern er 15%).
SKILMÁLAR
Athugið að Vesen og vergangur (Vesenisferðir ehf) tryggir hvorki farþega sína né farangur þeirra. Þátttakendur ferðast með á eigin ábyrgð. Félagið hvetur fólk til að kaupa ferða- og slysatryggingar, vera vel útbúið og kynna sér veður áður en lagt er af stað. Athugið að námskeiðsgjald fæst ekki endurgreitt eftir að námskeið er hafið en hægt er að framselja það til annars.
Fyrirvari er settur um röskun á prógramminu vegna Covid-19 eða hliðstæðra ástæðna eða veðurs en alltaf stefnt á að klára tilskilinn fjölda af göngum.
Vesen og millibrölt (þriðjudagar) er námskeið og æfingaáætlun sem passar fyrir þá sem fara gjarnan á Úlfarsfell eða sambærilegt og geta hugsað sér að fara víðar. Gert er ráð fyrir að þátttakendur bæti þolið og styrkist og æfi sig jafnframt í ólíkum aðstæðum á hinum ýmsu fellum og lægri fjöllum í nágrenni höfuðborgarsvæðisins. Smátt og smátt verða göngurnar örlítið erfiðari til að auka hæfnina og að auki er miðlað fróðleik um náttúru, umhverfi og útbúnað.
Við byrjum í janúar og færri göngur eru framan af en svo fjölgar þeim með hækkandi sól. Áður en við vitum af er farið að sjást í græna sprota og það er alltaf sérstakt tilhlökkunarefni að sjá fyrstu vetrarblómin í apríl.
Alls verða sautján göngur frá janúar og fram í maí fyrir utan upphitun og Esjugöngur. Hægt er að taka einungis þátt á þriðjudagskvöldum og þá eru innifaldar þrettán göngur eða einungis um helgar og þá eru það fjórar göngur. Hlutfallslega hagstæðast er að taka allan pakkann.
DAGSKRÁ
Við erum með pott af mögulegum gönguleiðum og svo verður metið hverju sinni hvaða leiðir er best að taka miðað við veður og færð.
Janúar
• Upphitunarganga laugard 11. jan opin öllum
• Þri 21. jan, þri 28. jan
Febrúar
• Þri 11. feb, þri 18. Feb
• Lau 1. feb dagsganga
Mars
• Þri 4. mars, þri 18. mars, þri 25. mars
• Lau 8. mars dagsganga
Apríl
• Þri 1. apríl, þri 8. apríl, þri 15. apríl, þri 22. apríl, þri 29. apríl
• Lau 5. apríl dagsganga
• Lau 26. apríl dagsganga
Maí
• Þri 6. maí
KVÖLDGÖNGUR: Fell og fjöll og leiðir á suðvesturhorninu og fer eftir veðri og færð. Gjarnan 2-400 m hækkun, jafnvel minna og jafnvel meira ef það er sumarfæri og oft eru þetta 3-8 km. Við förum bara einu sinni hverja leið þannig að fjölbreytni er mikil.
HELGARGÖNGUR
• Bláfjallahryggur, Kerlingarhnúkur og Heiðin há (heiðartoppur) 8 km 330 m
• Elliðahamar á Snæfellsnesi 8 km/600 m
• Drápuhlíðarfjall í Helgafellssveit 6 km/570 m
• Laugarvatnsfjall 8 km/500 m
ESJUÆFINGAR á þriðjudögum fyrstu vikur ársins fram í miðjan mars (kl. 18 við Esjustofu) – ýmist farið hluta af vegalengd upp að Steini eða gengið í Skógræktinni, óformlegt skipulag og allir brölthópar geta tekið þátt
• 2. jan (fimmtud), 7. jan, 14. jan, 4. feb, 25. feb
TEYMIÐ
Teymið sem hefur umsjón með göngunum samanstendur af Einari Skúlasyni og Gunnari Gunnarssyni og auk þeirra geta Elísabet Snædís Jónsdóttir, Rakel G. Magnúsdóttir, Kristín Silja Guðlaugsdóttir og Jóhanna Fríða Dalkvist komið inn í göngur. Þau hafa öll mikla og fjölbreytta reynslu af fjallamennsku og að leiða hópa við ýmsar aðstæður í göngum.
VERÐ OG BÓKANIR
Verð
Allar þriðjudagsgöngur og allar dagsgöngur kr. 61.000
Einungis helgargöngurnar kr. 25.000
Einungis þriðjudagsgöngur kr. 45.000
Bókanir fara fram á https://www.sportabler.com/shop/vesenisferdir (þið smellið á tengilinn, skráið ykkur inn og veljið það námskeið sem passar, greiðið og þá er allt klappað og klárt). Hægt er að prenta út kvittun í kerfinu og nýta til niðurgreiðslu stéttarfélags- eða vinnustaðar. Athugið að færslur frá bókunarkerfinu á bankareikningi eru merkt sem „æfingagjöld“. Ef þið lendið í vandræðum í innskráningu þá eru leiðbeiningar hér.
Þá er einnig mögulegt að greiða með millifærslu. Greiðsla jafngildir bókun og merkið færsluna „milliþri“. Greiðið inn á reikning 0515-26-530314 kt. 530314-0650 og sendið staðfestingu á einarskula@hotmail.com.
Lágmarksfjöldi í hópnum er 20 en hámarksfjöldi 50.
Þegar bókun er lokið er hægt að sækja um aðgang að lokaða hópnum: https://www.facebook.com/groups/870504525067256
Afsláttarkjör fyrir þau sem kaupa allt prógrammið:
Þau sem voru skráð á Vesenisnámskeið í haust 2024 eða eru elli-og örorkulífeyrisþega fá 15% afslátt. Veljið í bókunarferlinu.
Hægt er að sækja um fjölskylduafslátt sem virkar þannig að meðlimur í fjölskyldu nr 2 með sama lögheimili fær 15% afslátt. Látið vita á einarskula@hotmail.com.
Ekki er hægt að leggja saman afslátt til að fá hærra (hámarksafsláttur á hvern er 15%).
SKILMÁLAR
Athugið að Vesen og vergangur (Vesenisferðir ehf) tryggir hvorki farþega sína né farangur þeirra. Þátttakendur ferðast með á eigin ábyrgð. Félagið hvetur fólk til að kaupa ferða- og slysatryggingar, vera vel útbúið og kynna sér veður áður en lagt er af stað. Athugið að námskeiðsgjald fæst ekki endurgreitt eftir að námskeið er hafið en hægt er að framselja það til annars.
Fyrirvari er settur um röskun á prógramminu vegna Covid-19 eða hliðstæðra ástæðna eða veðurs en alltaf stefnt á að klára tilskilinn fjölda af göngum.
Þetta eru láglendisgöngur og um aflíðandi brekkur þar sem er stoppað oft til að spekúlera í umhverfinu, sögunni og almennt í náttúrunni.
Vesen og brölt vor er sería af göngum frá janúar og fram í maí sem miðast meðal annars við að hjálpa fólki að komast í betra form, en um leið að njóta fallegrar náttúru í vetrartíðinni og inn í vorið þegar grænir sprotar fara að sjást og sumarið er handan við hornið.
Á dagskrá eru sextán fjölbreyttar og þægilegar láglendisgöngur á höfuðborgarsvæðinu og á suðvesturhorninu sem skiptast í tólf mánudagsgöngur og fjórar dagsgöngur (ein af þeim á annan í páskum). Auk hreyfingarinnar þá er miðlað fjölbreyttum fróðleik um náttúru, sögu, örnefni og útbúnað.
SAMFERÐA Í BESTA VEÐRIÐ
Þátttakendur þurfa að koma sér sjálfir á staðinn en fá boð um tíma og stað fyrir hverja göngu til að sameinast í bíla til að minnka mengun og auka samskipti. Hist er síðdegis og gengið af stað um kl. 18 á mánudögum og á milli kl. 9 og 10 á sunnudagsmorgnum. Ef veður er slæmt á sunnudegi þá er laugardagur til vara.
Stofnaður hefur verið lokaður Facebook hópur fyrir þátttakendur og þar er tilkynnt um hverja göngu með 1-3 daga fyrirvara og alltaf ákveðið út frá veðurspá hvert við förum. Þar er einnig miðlað ýmis konar fræðslu. Sækið um aðgang að lokaða hópnum á Facebook á þessum tengli þegar búið er að ganga frá skráningu: https://www.facebook.com/groups/114294955076179
Athugið að þrír möguleikar eru í boði; hægt er að taka allan pakkann, einungis helgargöngur eða aðeins virka daga.
DAGSKRÁ
Janúar:
• 11. (laugard) upphitunarganga með millibrölti opin öllum
• 20. (mánud).
Febrúar:
• 2. (sunnud) dagsganga.
• 10. (mánud), 17. (mánud.)
• 23. (sunnud) dagsganga.
Mars:
• 3. (mánud), 10. (mánud), 17. (mánud), 24. (mánud.), 31. (mánud.)
• 30. (sunnud) dagsganga.
Apríl:
• 7. (mánud), 14. (mánud), 28. (mánud).
• 21. (annar í páskum) dagsganga.
Maí:
• 5. (mánud).
Búið er að taka saman nokkrar göngur sem koma til greina og verður metið út frá veðri og aðstæðum hvað verður fyrir valinu hverju sinni. Ef ástæða er til verða enn aðrar göngur teknar á dagskrá og falla þá einhverjar út á móti. Hver ganga er kynnt í lokaða hópnum með eins til tveggja daga fyrirvara og þá er útskýrt nákvæmlega hvar á að mæta og fjallað um gönguleiðina, aðstæður og veðurspána:
Stefnt er á eftirfarandi dagsgöngur um helgar:
• Söguhringur um Akranes 8-10 km
• Sandgerði – Garður 7-9 km
• Miðsandur – Saurbær á Hvalfjarðarströnd 8-10 km/50 m hækkun
• Kóngsvegur frá Efstadal að Úthlíð 8 km/70 m hækkun
Mánudagsgöngur: Þær geta verið á bilinu 4-8 km og fer vegalengd og hækkun eftir aðstæðum, algengasta vegalengdin er um 5 km. Við göngum víða eða til dæmis í upplandi Mosfellsbæjar, Reykjavíkur, Kópavogs, Garðabæjar og Hafnarfjarðar og í nágrenni. Einnig geta verið göngur meðfram sjávarsíðunni og við græn svæði í byggð á höfuðborgarsvæðinu. Við metum aðstæður út frá veðri og færð og tilkynnum hverja göngu í lokaða Facebook hópnum með eins til tveggja daga fyrirvara.
UMSJÓN
Leiðbeinendur eru Einar Skúlason, Gunnar Gunnarsson, Rakel G. Magnúsdóttir og Þórdís Sigurgeirsdóttir. Þau hafa öll komið mikið að göngum í brölthópunum í leiðsögn.
VERÐ OG BÓKANIR
Verð fyrir manninn í allan pakkann er kr. 57.500.
Verð fyrir manninn í einungis helgargöngurnar er kr. 23.000
Verð einungis í mánudagsgöngurnar er kr. 42.000.
Bókanir fara fram á https://www.sportabler.com/shop/vesenisferdir (þið smellið á tengilinn, skráið ykkur inn og veljið það námskeið sem passar, greiðið og þá er allt klappað og klárt). Hægt er að prenta út kvittun í kerfinu og nýta til niðurgreiðslu stéttarfélags- eða vinnustaðar. Athugið að færslur frá bókunarkerfinu á bankareikningi eru merkt sem „æfingagjöld“. Ef þið lendið í vandræðum með innskráningu þá eru leiðbeiningar hér.
Þá er einnig mögulegt að greiða með millifærslu. Greiðsla jafngildir bókun og merkið færsluna „brölt“. Greiðið inn á reikning 0515-26-530314 kt. 530314-0650 og sendið staðfestingu á einarskula@hotmail.com.
Lágmarksfjöldi í hópnum er 20 en hámarksfjöldi 50.
Þegar bókun er lokið er hægt að sækja um aðgang að lokaða hópnum: https://www.facebook.com/groups/114294955076179
Afsláttarkjör: Þau sem voru skráð á Vesenisnámskeið í haust 2024 eða eru elli-og örorkulífeyrisþega fá 15% afslátt. Veljið í bókunarferlinu.
Hægt er að sækja um fjölskylduafslátt sem virkar þannig að meðlimur í fjölskyldu nr 2 með sama lögheimili fær 15% afslátt. Látið vita á einarskula@hotmail.com.
Ekki er hægt að leggja saman afslátt til að fá hærra (hámarksafsláttur á hvern er 15%).
SKILMÁLAR
Athugið að Vesen og vergangur (Vesenisferðir ehf) tryggir hvorki farþega sína né farangur þeirra. Þátttakendur ferðast með á eigin ábyrgð. Félagið hvetur fólk til að kaupa ferða- og slysatryggingar, vera vel útbúið og kynna sér veður áður en lagt er af stað.
Athugið að námskeiðsgjald fæst ekki endurgreitt eftir að námskeið er hafið en hægt er að framselja það til annars.
Fyrirvari er settur um röskun á prógramminu vegna Covid-19 eða hliðstæðra ástæðna eða veðurs en alltaf stefnt á að klára tilskilinn fjölda af göngum.
530314-0650
Mávahlíð 33
105 Reykjavík
einarskula hjá gmail.com
Sími: +354 663-2113