Sjálfstætt fólk – heiðarbýlin á Jökuldalsheiði 2025

Yfirbragð heiðarbýlanna á Jökuldalsheiði er sambland harneskjulegra aðstæðna, þrautseigju fólksins sem bjó þar og kannski rómantískrar sýn okkar hinna sem bjuggum ekki á staðnum.
Í batnandi tíðafari um miðja 19. öld og í kjölfar fólksfjölgunar og takmarkaðs landrýmis þá fór svo að fjöldi fólks byggði sér býli inn til heiða. Á Jökuldalsheiði urðu þessi býli tiltölulega mörg á svæði sem er þó í 5-600 m hæð yfir sjávarmáli. Kólnandi veðurfar á seinni hluta 19. aldar og gosið í Öskju 1875 neyddi fólk á brott og margir fóru vestur um haf. Einhver býli byggðust aftur upp en búsetu lauk fyrir miðja 20. öld.


Margir þekkja bækur Ólafs Jóhanns Sigurðssonar, Huldu, Gunnars Gunnarssonar, Jóns Trausta, Halldórs Laxness og jafnvel Guðrúnar frá Lundi sem fjalla með einum eða öðrum hættu um lífsbaráttuna í litlum kotbýlum við erfiðar aðstæður. Það setur bækurnar í nýtt samhengi að koma á staðinu sjálfa og skynja náttúruna og umhverfið. Lyktin af gróðrinum, golan á vangann og fjöllin í fjarska gera þetta enn innihaldsríkara.
Við ætlum að skoða okkur um á þessum slóðum í lok júlí og heimsækja nokkur bæjarstæði og velta fyrir okkur afdrifum fólksins. Við verðum með bækistöð í hinu endurbyggða Sænautaseli, göngum gamlar götur, höldum kvöldvöku og njótum þess að vera í heiðarloftinu á besta tíma ársins.
Fararstjóri í ferðinni verður Einar Skúlason.

Gestreiðarstaðir á Jökuldalsheiði

DAGSKRÁ

Sunnudagurinn 27. júlí – nokkur heiðarbýli
Þau sem komast þennan dag geta komið með í göngutúra að tóftum nokkurra heiðarbýla. Við sjáum til eftir veðri hvað við heimsækjum mörg. Hittumst kl. 15 að Sænautaseli, sameinumst í bíla og förum á rúntinn. Göngurnar eru fremur stuttar, á bilinu 500 m til 3 km.
Um kvöldið verður súpufundur í veitingaskálanum að Sænautaseli þar sem við kynnumst og spáum í ferðadaga framundan. Athugið að mögulega verður dagskrá næstu tveggja daga víxlað ef veðurspá gefur ástæðu til, en kvöldvakan verður þó engu að síður á mánudagskvöldinu.

 

Gular leiðir eru á sunnudegi, rauða leiðin á mánudegi og græna á þriðjudegi. Mánudags- og þriðjudagsgöngum gæti verið víxlað ef veðurspáin gefur tilefni til þess.

 

Mánudagurinn 28. júlí – Gamla póstleiðin frá Hákonarstöðum að Sænautaseli
Eftir morgunmatinn sameinumst við í bíla í Sænautaseli og keyrum niður í Jökuldal. Þar kíkjum við á Stuðlagilið fræga og göngum svo frá Hákonarstöðum og upp á Jökuldalsheiðina. Við tökum eðlileg stopp á leiðinni eins og landpóstarnir forðum. Við stöldrum við hjá hinni hlöðnu Víðirhólarétt, tóftunum að Víðirhólum (í eyði 1905) og hjá tóftum Veturhúsa (í eyði 1941) og endum á að ganga að Sænautaseli (í eyði 1943). Það er frekar greiðfært að ganga þessa dagleið og má þakka það öskufallinu úr Öskjugosinu 1875. Það er ekki grýtt nema á stuttum köflum og eitthvað er um mýrlendi sem þarf að krækja framhjá og læki sem þarf að stikla. Það þarf að vaða einu sinni til tvisvar en það er auðvelt. Eftir göngu þarf að skutla bílstjórum til að sækja bílana niður í Jökuldal.
Um kvöldið er kvöldvaka í veitingaskálanum að Sænautaseli. Páll Pálsson frá Aðalbóli ætlar að vera með okkur á kvöldvökunni. Hann er hafsjór af fróðleik um mannlífið á Jökuldalsheiði fyrrum og kann urmul sagna af ábúendum.
Vegalengd göngu ca 20 km og uppsöfnuð hækkun um 450 m

 

Þriðjudagur 29. júlí – fleiri heiðarbýli og Skessugarður
Eftir morgunmat keyrum við að Heiðarseli (í eyði 1946) og kíkjum á tóftirnar (samtals ganga 2 km). Svo keyrum við að Netseli og göngum að tóftunum (samtals 2 km). Göngum svo að tóftum Grunnavatns (í eyði 1923) og þaðan alla leið að Sænautaseli ca 6,5 km leið og tökum síðbúið hádegishlé og sækjum bíla þangað sem við skildum þá eftir. Eftir hlé keyrum við að Grjótgarðshálsi og skoðum Skessugarð og göngum svo þaðan til baka ca 5 km leið að Sænautaseli meðfram Sænautafelli. Þau sem vilja geta toppað fellið í leiðinni.
Samtals vegalengd göngu þennan dag er því um 15,5 km.

ÚTBÚNAÐUR
Varðandi útbúnað þá þarf að vera með góðan dagspoka á bakinu sem hefur góðar mjaðmaólar til að bera þyngdina. Í farteskinu þarf að vera nesti fyrir daginn, gott er að hafa hitabrúsa með heitum drykk. Nánar er farið yfir útbúnað á undirbúningsfundi maí.

GISTING
Nokkrir möguleikar eru í gistingu. Í grunninn er gert er ráð fyrir að þátttakendur mæti með tjöld eða ferðavagna og gisti á tjaldsvæðinu við Sænautasel. Þar er hefðbundin grunnþjónusta við fólk á tjaldsvæðum. Einnig er hægt að bóka uppbúna gistingu á baðstofuloftinu í torfbænum á Sænautaseli á Airbnb ef það er laust. Þar er pláss fyrir fjóra til fimm í gistingu.
Tilboð er til göngugesta frá Hótel Stuðlagili, Skjöldólfsstöðum. Fimm hótelherbergi laus á tilboðsverði kr. 59.000 fyrir tvær nætur 27-29. júlí með morgunverði. Greiðist við bókun og endurgreiðanlegt til 1. júlí 2025. Bókist á info@hotelstudlagil.com. Upplýsingar um tilboðið í síma: 8613677 (Arngrímur Viðar). Akstur frá Sænautaseli tekur rúmar 20 mín.

MATUR
Við verðum með sameiginlegan kvöldmat og kvöldvöku á mánudagskvöldinu og þá verður lambalæri í boði með hefðbundnu meðlæti. Á sunnudagskvöldinu verður kjötsúpa. Á mánudag og þriðjudag verður morgunverðarhlaðborð og í boði að gera tvær samlokur úr hlaðborðinu í nesti. Athugið að ef þið borðið ekki kjöt verður hægt að fá aðra máltíð í staðinn.

Morgunverður í Sænautaseli

VERÐ OG BÓKANIR

Verð fyrir manninn er kr. 36.000 m/vsk.

Innifalin er fararstjórn, kvöldverður tvö kvöld og kvöldvaka og morgunmatur ásamt nesti í tvo daga.

Verð kr. 30.000 m/vsk á mann án morgunverðar og nestis (en með kvöldverð tvö kvöld og kvöldvöku á mánudagskvöldi).

Verð kr. 22.000 m/vsk ef sleppt er öllum máltíðum, morgunmat og nesti.

Ekki innifalið: Gisting eða tjaldsvæði, athugið að ekki er gert ráð fyrir rútu heldur munum við nýta okkar eigin bíla til þess að komast á milli göngustaða.

Bókanir fara fram á https://www.sportabler.com/shop/vesenisferdir (þið afritið tengilinn og setjið í vafra, skráið ykkur inn sem notendur í kerfið, veljið að lokum greiðslufyrirkomulag og þá er allt klappað og klárt). Auðvelt er að hlaða niður pdf kvittun úr kerfinu. Það er hægt að dreifa greiðslum á nokkra mánuði og ekki vaxtakostnaður af slíku.
Millifærsla: Athugið að ef bókunarkerfið þvælist fyrir ykkur er hægt að taka frá pláss í ferðina með því að greiða staðfestingargjald kr. 6.600 inn á reikning: 515-26-530314. Kt. 530314-0650. Senda afrit á einarskula@hotmail.com og merkja „heiði“. Muna að fullgreiða sex vikum fyrir brottför (um miðjan júní).

Þegar búið er að bóka ferð þá er hægt að sækja um aðgang að lokuðum hóp á Facebook. Þar verða ýmsar praktískar upplýsingar fyrir ferð og fleira fyrir þátttakendur.

Víðirhólarétt

SKILMÁLAR
Ígildi staðfestingargjalds í þessa ferð er kr. 6.500 og er innifalið í heildarverði ferðarinnar. Aldrei er hægt að fá staðfestingargjald endurgreitt en hægt er að framselja fullgreidda ferð til nýs farþega sem kemur inn og tekur sætið og fylgir þá staðfestingargjaldið með (ferðin þarf að hafa verið greidd að fullu áður).
Fargjald þarf að greiða að fullu a.m.k. 6 vikum fyrir brottför (miðjan júní). Ef greiðsla hefur ekki borist innan settra tímamarka má búast við að ferðin verði seld öðrum.

Um afbókanir gilda annars eftirfarandi reglur:
Afbókun innan 7 daga frá bókun og meira en 21 degi fyrir brottför: Ferð endurgreidd að staðfestingargjaldi frátöldu.
Afbókun 20-8 dögum fyrir brottför: 50% fargjalds endurgreidd.
Afbókun 7-4 dögum fyrir brottför: 25% fargjalds endurgreidd.
Afbókun 3 dögum fyrir brottför og fram að ferð: Engin endurgreiðsla.
Breytingar: Áskilinn er réttur til að hætta við, fresta ferð eða breyta áætlun vegna veðurs eða annarra utanaðkomandi aðstæðna, svo og ef ekki fæst næg þátttaka. Ef þarf að fella niður ferð er full endurgreiðsla.
Tryggingar: Tryggingar eru fyrir hendi eins og ferðaskrifstofuleyfi gerir ráð fyrir. Farþegar eru engu að síður hvattir til að huga að tryggingarmálum og hafa ferða- og slysatryggingar í lagi.

Share this post

Vesenisferðir ehf

530314-0650
Mávahlíð 33
105 Reykjavík
einarskula hjá gmail.com
Sími: +354 663-2113