Ferð · Suður-Grænland

Grænlandsævintýri

22. til 26. júní 2027. Fimm daga ferð um eitt fallegasta svæði Suður-Grænlands, þar sem sagan er við hvert fótmál.

Suður-Grænland er einstakur heimur þar sem grænir dalir, há fjöll, jöklar og djúpir firðir mætast. Ísjakar fljóta um firðina og öðru hvoru heyrast brestir í stillunni þegar jakarnir brotna. Hér liggja litlar byggðir dreifðar með ströndinni og enn má sjá mikil ummerki norrænu byggðarinnar sem hófst þegar Eiríkur rauði settist að á svæðinu fyrir meira en þúsund árum.

Í þessari fimm daga ferð förum við um eitt fallegasta svæði Suður-Grænlands þar sem sagan er við hvert fótmál. Við siglum að jöklunum í Qalerallit, heimsækjum Narsaq, Qassiarsuk (Brattahlíð), Tasiusaq við Sermilik-fjörð, Igaliku (Garða), Hvalseyjarkirkju og Qaqortoq, göngum milli byggða og minjastaða og siglum um firði þar sem ísjakar reka fram hjá. Á leiðinni kynnumst við bæði sögu norrænu byggðarinnar og grænlensku samfélagi nútímans.

Gisting er að mestu í tveggja manna herbergjum með morgunmat og eina nótt er gist í einfaldari bændagistingu. Farangur er fluttur milli gististaða þegar við göngum milli byggða og því þarf almennt aðeins að bera dagpoka.

Dagskrá

Dagur 1 · þriðjudagur 22. júní

Keflavík → Qaqortoq → Qalerallit → Narsaq

Við fljúgum með Icelandair frá Keflavík kl. 09:30 og lendum í Qaqortoq kl. 11:30 að staðartíma.

Við komuna höldum við niður að höfn og siglum af stað. Stefnt er á Qalerallit-fjörðinn þar sem skriðjöklar ganga niður úr Grænlandsjökli og ísfylltur fjörðurinn býður upp á stórbrotið landslag. Við komumst í návígi við jöklana og ísinn áður en siglt er áfram til Narsaq.

Narsaq er fallegur bær við Tunulliarfik-fjörð og þar gistum við fyrstu nóttina. Við stefnum á göngutúr fyrir eða eftir kvöldmat.

Gisting í Narsaq.

Siglt um fjörð á Suður-Grænlandi, grænlenski fáninn við skut bátsins
Siglt um firðina

Dagur 2 · miðvikudagur 23. júní

Narsaq → Qassiarsuk → Tasiusaq

Eftir morgunmat kveðjum við Narsaq og siglum inn Eiríksfjörð til Qassiarsuk, þar sem Brattahlíð Eiríks rauða stóð á tímum norrænu byggðarinnar.

Hér hófst norrænt landnám á Grænlandi undir lok 10. aldar og við skoðum minjar og endurgerðar byggingar sem tengjast þessari sögu.

Frá Qassiarsuk leggjum við af stað gangandi til Tasiusaq við Sermilik-fjörð. Gangan er um 7 km með um 350 m hækkun og liggur um fallegt heiðarlandslag. Þegar nær dregur opnast útsýni yfir fjörðinn, sem er gjarnan fullur af ís, enda þýðir Sermilik „Ísafjörður“. Farangurinn er fluttur sérstaklega til gististaðarins.

Boðið verður upp á aukagöngu síðdegis fyrir þau sem vilja, 5 til 10 km meðfram ströndinni.

Við gistum í bændagistingu hjá grænlensku bændahjónunum Aviaju og Klaus og fáum kvöldverð á heimili þeirra.

Kvöldmatur og gisting í Tasiusaq.

Stytta Leifs heppna í Qassiarsuk og ísjakar á firðinum fyrir neðan
Stytta Leifs heppna í Qassiarsuk
Ís á firði á Suður-Grænlandi, fjöll handan fjarðarins

Dagur 3 · fimmtudagur 24. júní

Tasiusaq → Qassiarsuk → Itilleq → Igaliku

Eftir morgunmat göngum við aftur frá Tasiusaq til Qassiarsuk, um 7 km.

Þaðan tekur bátur við og flytur okkur stutta leið yfir fjörðinn til Itilleq. Þaðan göngum við um 4 km eftir Kóngsveginum, gömlu leiðinni yfir til Igaliku. Hækkunin er um 150 m og farangurinn er fluttur á gististaðinn á meðan við göngum.

Igaliku er einn fallegasti staður Suður-Grænlands, umlukinn grænum hlíðum og háum fjöllum. Hér voru Garðar, biskupssetur norrænu byggðarinnar á Grænlandi, og enn má sjá hvar dómkirkjan og aðrar byggingar stóðu.

Boðið verður upp á aukagöngu eftir veðri og aðstæðum. Annað hvort förum við hluta eða alla leiðina upp á hásléttuna Narsaarsup Qaava. Öll leiðin er um 15 km með um 300 m hækkun, en styttri leið er um 6 km.

Kvöldmatur og gisting í Igaliku.

Göngufólk í röð með hendur á lofti á malarrifi við Itilleq og spegilmynd hópsins í lóninu
Við Itilleq
Fjórir göngumenn á steinbekk horfa yfir fjörð og græna dali
Áð á Kóngsveginum á leið til Igaliku

Dagur 4 · föstudagur 25. júní

Igaliku → Sissarlutoq → Hvalseyjarkirkja → Qaqortoq

Í dag er lengsta ganga ferðarinnar. Við göngum frá Igaliku til Sissarlutoq, um 18 km, með um 500 m uppsafnaða hækkun. Leiðin liggur um fjölbreytt landslag með útsýni yfir firði, fjöll og norrænar minjar.

Þau sem vilja ekki taka löngu gönguna geta átt rólegri dag í Igaliku og farið síðan með bátunum ásamt farangrinum.

Þegar allur hópurinn er kominn í bátana við Sissarlutoq siglum við áfram að Hvalseyjarkirkju. Þar skoðum við eina best varðveittu byggingu norrænu byggðarinnar á Grænlandi og aðrar minjar um byggðina í Hvalseyjarfirði.

Síðan er siglt áfram til Qaqortoq þar sem við gistum síðustu nóttina. Kvöldið er frjálst og þar eru nokkrir veitingastaðir sem þátttakendur geta valið á milli.

Gisting í Qaqortoq. Kvöldmatur á eigin vegum.

Göngufólk á stíg við vatn, snævi þakin fjöll í fjarska
Á leiðinni frá Igaliku til Sissarlutoq
Hvalseyjarkirkja, hlaðin úr grjóti, á grænni grund við fjörðinn
Hvalseyjarkirkja

Dagur 5 · laugardagur 26. júní

Qaqortoq → Keflavík

Við eigum stóran hluta dagsins í Qaqortoq.

Qaqortoq er stærsti bær Suður-Grænlands og fallegur lokapunktur ferðarinnar, með litríkum húsum í hlíðunum niður að höfninni. Hægt verður að skoða bæinn, ganga um hlíðarnar eða að stöðuvatninu ofan við bæinn og njóta dagsins á eigin hraða.

Síðdegis höldum við út á flugvöll. Flug Icelandair til Keflavíkur fer kl. 19:45 og áætluð lending er kl. 23:45.

Litrík hús í hlíðinni ofan við höfnina í Qaqortoq
Qaqortoq

Gisting

Gisting er fjórar nætur og morgunmatur fylgir allri gistingu.

Narsaq

Ein nótt

Gist verður á gistiheimilinu Niviarsiaq sem rekið er með Hotel Narsaq. Gisting er að mestu í tveggja manna herbergjum. Aðstaða er einföld og þægileg.

Tasiusaq

Ein nótt

Gist er í bændagistingu hjá Aviaju og Klaus. Þar eru nokkur tveggja manna herbergi og smáhýsi auk einfaldari gistirýma með kojum. Pör fá forgang í tveggja manna herbergi og smáhýsin.

Igaliku

Ein nótt

Gist er á Igaliku Hotel & Lodges í tveggja manna herbergjum. Morgunmatur og kvöldmatur eru á gististaðnum.

Qaqortoq

Ein nótt

Gist verður á Inuit House. Gisting er í tveggja manna herbergjum.

Göngurnar

Ferðin hentar fólki sem er vant reglulegri hreyfingu og treystir sér til að ganga nokkra daga í röð.

Helstu göngur (hækkun er uppsöfnuð)
DagurLeiðVegalengdHækkun
2Qassiarsuk til Tasiusaqum 7 kmum 350 m
3Tasiusaq til Qassiarsukum 7 kmum 250 m
3Itilleq til Igalikuum 4 kmum 150 m
4Igaliku til Sissarlutoqum 18 kmum 500 m

Athugið að hægt er að sleppa göngum í ferðinni ef svo ber undir og fá far með farangri (getur verið aukakostnaður fyrir það í einhverjum tilvikum). Að auki verða í boði styttri og lengri aukagöngur eftir veðri og aðstæðum eins og sést í dagskránni.

Undirbúningur

Sameiginlegur undirbúningsfundur fyrir ferðina verður haldinn í apríl. Þar verður farið yfir dagskrá, göngur, fatnað og búnað, farangur, nesti, aðstæður á Grænlandi og annað sem gott er að vita fyrir ferðina.

Þátttakendur eru hvattir til að undirbúa sig með reglulegum göngum vikurnar fyrir ferð og ganga skóna vel til. Gott er að æfa sig með 20 til 30 lítra dagpoka og nokkur kíló í pokanum.

Nánari búnaðarlisti verður sendur þátttakendum fyrir ferð.

Innifalið í ferðaverði

  • Flug með Icelandair frá Keflavík til Qaqortoq og til baka og farangur samkvæmt farangursheimild flugfélagsins.
  • Fjórar nætur í gistingu.
  • Morgunmatur alla morgna.
  • Kvöldmatur í Tasiusaq og Igaliku.
  • Bátsferð til Qalerallit-jöklanna.
  • Allar aðrar bátsferðir samkvæmt dagskrá.
  • Farangursflutningar samkvæmt dagskrá.
  • Flutningar til og frá flugvelli og í bátum milli staða samkvæmt dagskrá.
  • Fararstjórn og leiðsögn.
  • Undirbúningsfundur í apríl.

Ekki innifalið

  • Hádegismatur.
  • Kvöldmatur í Narsaq og Qaqortoq og aðrar máltíðir sem ekki eru sérstaklega tilgreindar sem innifaldar.
  • Drykkir og persónuleg útgjöld.
  • Persónulegar ferða-, slysa- og forfallatryggingar.
  • Valfrjáls þjónusta eða aðgangseyrir sem ekki er sérstaklega tilgreindur sem innifalinn.

Verð og bókun

429.500 kr. á mann

Staðfestingargjald við bókun er 75.000 kr. Eftirstöðvar, 354.500 kr., greiðast í síðasta lagi 1. apríl 2027. Sé bókað eftir 1. apríl greiðist ferðin að fullu við bókun.

Lágmarksfjöldi er 8 þátttakendur.
Hámarksfjöldi er 17 þátttakendur.

Bókun

Bókað er með því að fylla út bókunarform ferðarinnar. Þar eru skráðar nauðsynlegar upplýsingar um þátttakanda, óskir um gistingu, mataræði og upplýsingar sem máli skipta vegna öryggis í ferðinni.

Við bókun er hægt að velja um greiðslu staðfestingargjalds með greiðslukorti eða millifærslu.

Bókun telst staðfest þegar bókunarform hefur verið sent inn og staðfestingargjald greitt.

Afbókun

Við afbókun gilda eftirfarandi afbókunargjöld:

  • Meira en 70 dögum fyrir brottför: staðfestingargjald.
  • 43 til 70 dögum fyrir brottför: 40% af ferðaverði.
  • 12 til 42 dögum fyrir brottför: 75% af ferðaverði.
  • 11 dögum eða skemur fyrir brottför: 100% af ferðaverði.

Að öðru leyti gilda ferðaskilmálar Vesenisferða ehf. um pakkaferðir.

Veður og aðstæður

Ferðalög á Suður-Grænlandi ráðast að nokkru af veðri, sjólagi og ís í fjörðum. Tímasetningar siglinga, gönguleiðir eða röð dagskrár geta því breyst ef aðstæður krefjast þess.

Ákvarðanir um siglingar eru teknar með öryggi hópsins að leiðarljósi og í samráði við staðbundna bátaaðila. Leitast verður við að halda efni og upplifun ferðarinnar eins óbreyttri og kostur er þótt færa þurfi einstaka dagskrárliði.

Á slóðum ferðarinnar

Myndir frá Suður-Grænlandi

Hópur göngufólks við Hvalseyjarkirkju, fjörðurinn í baksýn
Hópurinn við Hvalseyjarkirkju
Hópur göngufólks við grænt hús í byggð á Suður-Grænlandi, fjörður með ís í baksýn
Göngukona á rauðum kletti tekur mynd yfir fjörð með ísjökum
Á leiðinni frá Igaliku
Norrænar rústir við Sissarlutoq og göngufólk í fjarska
Norrænar rústir við Sissarlutoq
Gömul steinhleðsla á heiði
Loðskór á bekk við bláan timburvegg
Í Qaqortoq

Fleiri ferðir

Skoðaðu líka

Allar ferðir