Ef þú ert að leita að áskorun þá er meira bröltið fyrir þig. Við leitum uppi skemmtileg og krefjandi fjöll til að toppa og njótum þess að taka á því saman og sigrast á fjölbreyttum hindrunum. Við verðum með nokkrar dagsgöngur í haust og erum svo í samstarfi við langbröltið varðandi kvöldgöngurnar.
Búast má við því að þátttakendur geti farið í krefjandi aðstæður út frá veðri og færð og gert er ráð fyrir að þeir séu í nokkuð góðu líkamlegu formi og tilbúnir til að verja tíma til að komast í enn betra gönguform. Hver og einn þarf að hafa aðgang að búnaði til samræmis við erfiðleikastig ferðanna. Það á við t.d. um gönguöxi (ísöxi) og fjallabrodda (jöklabrodda). Við eigum nokkur sett sem við getum leigt þátttakendum.
Leiðsögufólk veitir leiðbeiningar um útbúnað og stofnaður er lokaður Facebook hópur þar sem hver ganga er kynnt og fjallað um aðstæður. Gert er ráð fyrir að hver og einn beri ábyrgð á að koma sér á upphafsstað göngu en við stingum alltaf upp á bílastæðum í útjaðri höfuðborgarsvæðis til að hittast og sameinast í bíla.
Hópurinn er rekinn í samstarfi við langbröltið og hægt að komast í fimmtudagsgöngur með langbröltinu ef sá kostur er valinn í áskrift. Sjá dagskrána hér að neðan með langbröltsgöngurnar í sviga.

DAGSKRÁ
Athugið að helgargöngur eru settar á laugardag og þá er sunnudagur til vara.
Fimmtud 14-Aug-25 opin upphitunarganga kvöldganga langbrölts
Fimmtud 21-Aug-25 Kvöldganga langbrölts
Fimmtud 28-Aug-25 Kvöldganga langbrölts
1 Laugard 30. ágúst DAGSGANGA MEIRA BRÖLTS
Fimmtud 04-Sep-25 Kvöldganga langbrölts
Fimmtud 11-Sep-25 Kvöldganga langbrölts
(Laugard 13-Sep-25 Dagsganga langbrölts)
Fimmtud 18-Sep-25 Kvöldganga langbrölts
2 Laugard 20. sept DAGSGANGA MEIRA BRÖLTS
Fimmtud 25-Sep-25 Kvöldganga langbrölts
(Laugard 04-Oct-25 Dagsganga langbrölts)
Fimmtud 09-Oct-25 Kvöldganga langbrölts
3 Laugard 11. okt DAGSGANGA MEIRA BRÖLTS
Fimmtud 16-Oct-25 Kvöldganga langbrölts
(Laugard 25-Oct-25 Dagsganga langbrölts)
Fimmtud 30-Oct-25 Kvöldganga langbrölts
Fimmtud 06-Nov-25 Kvöldganga langbrölts
4 Laugard 8. nóv DAGSGANGA MEIRA BRÖLTS
Fimmtud 13-Nov-25 Kvöldganga langbrölts
(Laugard 22-Nov-25 Dagsganga langbrölts)
Fimmtud 27-Nov-25 Kvöldganga langbrölts
(Laugard 06-Dec-25 Dagsganga langbrölts)
DAGSGÖNGURNAR
Við erum með pott af mögulegum göngum fyrir dagsgöngurnar. Auðvitað er alltaf nokkur óvissa með veður og færð. Gera má ráð fyrir að göngum með að minnsta kosti 15 km vegalengd og yfir 1000 m uppsafnaða hækkun.
Högnhöfði og Brúarárskörð – Jarlhettur – Hrútfell á Kili – Laufafell og nágrenni – Tröllakirkja í Kolbeinsstaðarfjalli – Stóra-Björnsfell við Þórisjökul – Ævintýri norðan Eyjafjallajökuls – Ein af Skarðsheiðarleiðum
KVÖLDGÖNGUR
Fimmtudagsgöngurnar hjá langbrölti eru fjölbreyttar og takmarkast af veðri og færð. Við nýtum okkur Esjuna, Akrafjallið, fellin á höfuðborgarsvæðinu, Bláfjallahrygg og nágrenni og aðra fjallshryggi á Reykjanesskaga. Það getur verið að við þurfum að fara sömu leiðir tvisvar enda eru þessar kvöldgöngur í og með æfingagöngur fyrir helgargöngurnar og takmörk fyrir því hvað hægt er að finna margar leiðir með meira en 4-500 m hækkun. Að auki er mælst til þess að þátttakendur hittist síðdegis á þriðjudögum og fari upp að Steini. Ekki er gert ráð fyrir að fararstjórar mæti sérstaklega í þær göngur.
UMSJÓN
Jón Trausti Bjarnason og Bjarki Valur Bjarnason hafa umsjón með göngunum og stundum koma aðrir fararstjórar Vesens og vergangs við sögu. Þeir Jón Trausti og Bjarki hafa langa reynslu af fararstjórn í fjölbreyttum ferðum um landið.

VERÐ OG BÓKANIR
- Dagsgöngur meira brölts kr. 27.000
- Dagsgöngur og fimmtudagar að auki með langbrölti kr. 65.000
Bókanir fara fram á https://www.sportabler.com/shop/vesenisferdir (þið smellið á tengilinn, skráið ykkur inn og veljið það námskeið sem passar, greiðið og þá er allt klappað og klárt). Hægt er að prenta út kvittun í kerfinu og nýta til niðurgreiðslu stéttarfélags eða vinnustaðar. Athugið að færslur frá bókunarkerfinu á bankareikningi eru merkt sem „æfingagjöld“.
Þá er einnig mögulegt að greiða með millifærslu. Greiðsla jafngildir bókun og merkið færsluna „meira“. Greiðið inn á reikning 0515-26-530314 kt. 530314-0650 og sendið staðfestingu á einarskula@hotmail.com.
Lágmarksfjöldi í hópnum er 10 en hámarksfjöldi 35
Þegar bókun er lokið er hægt að sækja um aðgang að lokaða hópnum (sem er rekinn með langbröltinu).
Afsláttarkjör: Hámarksafsláttur er 10% á mann og er í formi endurgreiðslu eftir að námskeið er hafið og búið að gera það upp. Þau sem voru skráð á Vesenisnámskeið vor/sumar 2025 eða til elli-og örorkulífeyrisþega eða fjölskylduafsláttur fyrir meðlim nr. 2 í fjölskyldu með sama lögheimili. Látið vita á einarskula@hotmail.com og sendið með upplýsingar um námskeið, kennitölu og bankaupplýsingar.
SKILMÁLAR
Athugið að Vesen og vergangur (Vesenisferðir ehf) tryggir hvorki farþega sína né farangur þeirra. Þátttakendur ferðast með á eigin ábyrgð. Félagið hvetur fólk til að kaupa ferða- og slysatryggingar, vera vel útbúið og kynna sér veður áður en lagt er af stað. Athugið að námskeiðsgjald fæst ekki endurgreitt eftir að námskeið er hafið en hægt er að framselja það til annars.
Fyrirvari er settur um röskun á prógramminu veðurs eða annarra aðstæðna en alltaf stefnt á að klára tilskilinn fjölda af göngum.
