Berserkir, vötn og fossar – þrír dagar á Snæfellsnesi 8.-10. júlí 2026

Víða á Snæfellsnesi er mikil náttúrufegurð og margt að skoða. Landið er mótað af eldvirkni, jökul- og sjávarrofi. Jarðfræði, dýralíf og gróðurfar er fjölbreytt. Í þessari ferð munum við skoða norðanvert Snæfellsnes, nærri Grundarfirði og Stykkishólmi.
Fyrsta daginn munum við ganga meðfram Selvallavatni og Berserkjahrauni og færum við okkur nær sjónum og göngum eftir hinni gömlu Berserkjagötu. Annan daginn verðum við á Vatnaleiðinni þar sem við munum ganga í kringum Hraunsfjarðarvatn. Þriðja daginn ætlum við svo að ganga umhverfis Kirkjufell og að lokum upp að Grundarfossi. Þetta eru alls fimm þægilegar göngur á þremur dögum og hæfir þeim sem líður vel að fara á Úlfarsfellið.
Margt er að skoða á þessum leiðum og margar sögur að segja auk þess að náttúran á svæðinu er stórbrotin. Athugið að fólk kemur á eigin vegum á Snæfellsnes en sjálfsagt er að vera í sambandi fyrir ferð til að deila bílum. Hægt verður að fá gistingu á Staðarstað á hagstæðu verði en þaðan er um 20-45 mínútna keyrsla að upphafsstöðum hvers dags. Auk þessu eru mjög fín tjaldsvæði á Grundarfirði og Stykkishólmi og margvísleg önnur gisting er í boði á svæðinu. Gunnar Gunnarsson sér um leiðsögn.

DAGSKRÁ

Miðvikudagur 8. júlí – Berserkjahraun og Berserkjagata
Við hittumst við gatnamót Vatnaleiðar og Snæfellsnesvegar í Helgafellssveit og og keyrum inn á gamla veginn um Berserkjahraun þar sem gangan hefst. Við göngum suður í átt að Selvallavatni og meðfram því. Hraunjaðrinum er svo fylgt og svo gamla veginum til baka.
Eftir gönguna um Berserkjahraun keyrum við yfir að Bjarnarhafnarvegi og leggjum bílum skammt frá Berserkjagötu og göngum hana og meðfram hraunjaðrinum í hring.
Gangan um Berserkjahraun er um 9 km, uppsöfnuð hækkun um 300 m. Áætlað er að gangan taki um 4-5 tíma.
Gangan eftir Berserkjagötu er um 5 km og hækkun um 50 m. Áætlað er að gangan taki um 2-2,5 tíma.

Fimmtudagur 9. júlí – umhverfis Hraunsfjarðarvatn
Við hittumst á bílastæðinu við Selvallafoss. Þaðan keyrum við í suður Vatnaleiðina (u.þ.b. 3 km) og beygjum útaf til móts við Hraunsfjarðarvatn og á upphafsstað. Við göngum í átt að Baulárvallavatni og meðfram því áður en við færum okkur yfir að Hraunsfjarðarvatni og klárum hringinn aftur að bílunum
Gangan er um 11 km og uppsöfnuð hækkun um 250 m. Áætlað er að gangan taki 5-7 tíma

Föstudagur 10. júlí – Kirkjufell og Grundarfoss
Við hittumst við Fjölbrautaskóla Snæfellinga á Grundarfirði og sameinumst þar í bíla til að fara á sem fæstum bílum að Kirkjufelli þar sem gjaldskylda er á bílastæðinu þar. Við göngum svo eftir veginum að hálsi áður en við komum að göngustígunum sem tekur okkur umhverfis Kirkjufell. Í lok göngunnar gefst tækifæri til að skoða Kirkjufoss.
Þegar göngunni um Kirkjufell er lokið sækjum við bílana og keyrum að bílastæðinu við Grundarfoss og göngum upp með Grundará og að fossinum.
Gangan umhverfis Kirkjufell er um 8-9 km og heildar hækkun undir 100 m. Gangan tekur um 5 tíma.
Gangan að Grundarfossi er um 3 km og hækkun um 70 m. Gangan tekur 1-1,5 tíma

LÍKAMLEGT FORM
Þó að leiðirnar sem slíkar séu ekki krefjandi getur það reynt á að ganga þrjá langa daga í röð. Því getur verið gott að byggja upp gönguform til þess að líða vel í ferðinni. Gott er því að æfa fyrir ferðina og best er að æfa sig í göngu. Upplagt er að ganga reglulega á Úlfarsfellið eða sambærilegt fjall síðustu 4-6 vikurnar fyrir ferð. Þá getur verið gott að vera með bakpokann sem þið áætlið að nota í ferðinni. Síðustu 2-3 daga fyrir ferð er svo gott að hvíla

Selvallavatn og Berserkjahraun

VERÐ OG BÓKANIR

Verð kr. 31.000.

Innifalið: fararstjórn, skipulag og undirbúningsfundur.
Ekki innifalið: gisting, bílfar, matur eða annað.

Bókanir fara fram á https://www.sportabler.com/shop/vesenisferdir (þið smellið á tengilinn, skráið ykkur inn og veljið það námskeið sem passar, greiðið og þá er allt klappað og klárt). Hægt er að prenta út kvittun í kerfinu og nýta til niðurgreiðslu stéttarfélags- eða vinnustaðar. Athugið að færslur frá bókunarkerfinu á bankareikningi eru merkt sem „æfingagjöld“.
Þá er einnig mögulegt að greiða með millifærslu. Greiðsla jafngildir bókun. Greiðið inn á reikning 0515-26-530314 kt. 530314-0650 og sendið staðfestingu merkt „ snæág“ á einarskula@hotmail.com.

Kirkjufell

SKILMÁLAR
Ígildi staðfestingargjalds í þessa ferð er kr. 5.000 og er hluti af verði ferðarinnar. Aldrei er hægt að fá staðfestingargjald endurgreitt en hægt er að framselja bókunina til nýs farþega sem kemur inn og tekur sætið og fylgir þá staðfestingargjaldið með. Fargjald þarf að greiða að fullu a.m.k. sex vikum fyrir brottför (15. maí) Ef greiðsla hefur ekki borist innan settra tímamarka má búast við að ferðin verði seld öðrum.
Afbókanir: Um afbókanir gilda annars eftirfarandi reglur:
Afbókun innan 7 daga frá bókun og meira en 21 degi fyrir brottför: Ferð endurgreidd að staðfestingargjaldi frátöldu.
Afbókun 20-8 dögum fyrir brottför: 50% fargjalds endurgreidd.
Afbókun 7-4 dögum fyrir brottför: 25% fargjalds endurgreidd.
Afbókun 3-0 dögum fyrir brottför: Engin endurgreiðsla.
Breytingar: Áskilinn er réttur til að hætta við, fresta ferð eða breyta áætlun vegna veðurs eða annarra utanaðkomandi aðstæðna, svo og ef ekki fæst næg þátttaka. Ef hætt er við ferð þá fæst full endurgreiðsla.
Tryggingar: Tryggingar eru fyrir hendi eins og ferðaskrifstofuleyfi gerir ráð fyrir. Farþegar eru engu að síður hvattir til að huga að tryggingarmálum og hafa ferða- og slysatryggingar í lagi.

Hraunsfjarðarvatn og Horn um vetur

Share this post

Vesenisferðir ehf

530314-0650
Mávahlíð 33
105 Reykjavík
einarskula hjá gmail.com
Sími: +354 663-2113