Vesen og millibrölt sumar er röð gönguferða í tæpa tvo mánuði sem allar fela í sér hækkun og myndu teljast miðlungserfiðar og sumar í efri hluta þess flokks. Það má segja að þetta sé fyrir þau sem gjarnan á Helgafell í Hafnarfirði og svipuð fell og upp að Steini og vilja kynnast nýjum leiðum með hækkandi sól og um leið komast í betra form. Þetta er sérstaklega góður undirbúningur fyrir þau sem hyggja á lengri göngur í sumar eins og Hornstrandir eða Lónsöræfi. Um leið er þetta æfing í að takast á við meiri hækkun og fjölbreyttar aðstæður. Auk þess er miðlað fróðleik um náttúru, sögu, umhverfi og útbúnað.
Stofnaður verður lokaður Facebook hópur fyrir þátttakendur og þar er tilkynnt um hverja göngu með eins til þriggja daga fyrirvara (með hliðsjón af veðurspá). Sjá tengil inn á lokaða hópinn í kafla um verð og bókanir.

DAGSKRÁ
Lau 09-Maí-26 Dagsganga: Eyrarfjall og Sandfell í Kjós 9,5/600
Fim 14-Maí-26 Dagsganga: Ármannsfell 9,5 km/ca 700m (uppstigningardagur)
Þri 19-Maí-26 Kvöldganga: Litli Meitill 6/300
Þri 26-Maí-26 Kvöldganga: Jórutindur og Hátindur í Grafningi 5/250
Lau 30-Maí-26 Dagsganga: Hvammsnúpur í Eyjafjöllum 8/460
Þri 02-Jún-26 Kvöldganga: Bjarnarfell í Ölfusi 5,5/300
Þri 09-Jún-26 Kvöldganga: Þúfufjall 5 km 500 m
Þri 16-Jún-26 Kvöldganga: Miðfell og Dagmálafell 8/300
Lau 20-Jún-26 Dagsganga: Þórólfsfell Fljótshlíð 11,5/550
Þri 23-Jún-26 Kvöldganga: Ketilstígur og Miðdegishnúkur 7/350
Lau 27-Jún-26 Dagsganga: Hafnarfjall frá suðri til norðurs 11/800
Athugið að dagskráin er sett fram með fyrirvara um veður og aðstæður. Við áskiljum okkur rétt til að víxla göngum eða fella niður og taka aðrar inn í staðinn.
UMSJÓN
Einar Skúlason, Kristín Silja, Elísabet Snædís, Jóhanna Fríða úr hópi fararstjóra Vesens og vergangs.

VERÐ OG BÓKANIR
Þetta eru alls ellefu göngur, sex kvöldgöngur og fimm dagsgöngur. Hægt er að taka allan pakkann (og þá getur afsláttur átt við) eða taka annað hvort kvöldgöngurnar eða dagsgöngurnar eða bland í poka. Hægt verður að kaupa sig inn í stakar göngur (verð kr. 6000 í staka kvöldgöngu og 8000 í staka dagsgöngu).
1. Allur pakkinn 44.000 kr.
2. Allur pakkinn með afslætti 37.400 kr.
3. Aðeins kvöldgöngur 27.000 kr.
4. Aðeins dagsgöngur 27.500 kr.
5. Bland í poka (þrjár dagsgöngur og þrjár kvöldgöngur að eigin vali) 29.000 kr.
Bókanir fara fram á https://www.sportabler.com/shop/vesenisferdir (þið smellið á tengilinn, skráið ykkur inn og veljið það námskeið sem passar, greiðið og þá er allt klappað og klárt). Hægt er að prenta út kvittun í kerfinu og nýta til niðurgreiðslu stéttarfélags eða vinnustaðar. Athugið að færslur frá bókunarkerfinu á bankareikningi eru merkt sem „æfingagjöld“.
Þá er einnig mögulegt að greiða með millifærslu. Greiðsla jafngildir bókun og merkið færsluna „millisumar“. Greiðið inn á reikning 0515-26-530314 kt. 530314-0650 og sendið staðfestingu á einarskula@hotmail.com.
Lágmarksfjöldi í hópnum er 20 en hámarksfjöldi 50 (þau sem taka þátt að hluta teljast sem hálfir).
Þegar bókun er lokið er hægt að sækja um aðgang að lokaða hópnum: https://www.facebook.com/groups/2694476527394856
Afsláttarkjör
Þau sem voru skráð á Vesenisnámskeið vorið 2026 eða eru elli-og örorkulífeyrisþegar. Einnig er fjölskylduafsláttur fyrir meðlim nr. 2 og 3 í fjölskyldu með sama lögheimili (sami afsláttur og fyrrnefndur). Afsláttur er bundinn við allan pakkann. Ekki er afsláttur af blandi í poka eða einungis kvöld- eða dagsgöngum.

SKILMÁLAR
Vesen og vergangur (Vesenisferðir ehf) tryggir hvorki farþega sína né farangur þeirra. Þátttakendur ferðast með á eigin ábyrgð. Félagið hvetur fólk til að kaupa ferða- og slysatryggingar, vera vel útbúið og kynna sér veður áður en lagt er af stað.
Athugið að námskeiðsgjald fæst ekki endurgreitt eftir að námskeið er hafið en hægt er að framselja það til annars.
Fyrirvari er settur um röskun á prógramminu vegna veðurs eða annarra aðstæðna. Ef göngur á reglulegum tímum falla niður þá er réttur áskilinn til að vera með aukagöngur á öðrum vikudögum til að vinna upp tapið og eins að nýta daga í júlí til að klára.
Gert er ráð fyrir að fólk komi sér sjálft á upphafsstað gönguferðanna, en við munum skipuleggja staði til þess að hittast á höfuðborgarsvæðinu svo hægt sé að deila bílum. Fólk deilir svo kostnaði við bílferðirnar.