Þetta prógramm verður einungis með helgargöngur og á dagskrá er ganga hverja helgi frá 7. janúar. Göngurnar eru í anda millibröltsins eins og kemur fram hér að neðan.
Vesen og millibrölt er námskeið og æfingaáætlun sem passar fyrir þá sem fara gjarnan á Úlfarsfell eða sambærilegt og geta hugsað sér að fara víðar. Gert er ráð fyrir að þátttakendur bæti þolið og styrkist og æfi sig jafnframt í ólíkum aðstæðum á hinum ýmsu fellum og lægri fjöllum í nágrenni höfuðborgarsvæðisins og á suðvesturlandi. Smátt og smátt verða göngurnar örlítið erfiðari til að auka hæfnina og að auki er miðlað fróðleik um náttúru, umhverfi og útbúnað. Við munum kynnast mörgum stórkostlegum svæðum sem eru oft skammt undan.
Eins og fyrr sagði verða helgargöngur allar helgar á vormisseri. Þetta eru helgarnar frá fyrri hluta janúar fram í miðjan maí. Fjölmargar leiðir verða í boði en athugið þó að einhverjar leiðir gætu verið á dagskrá fleiri en eina helgi.
Með þessu fylgir aðgangur að þolæfingum á mánudögum og fimmtudögum sjá nánar neðar í textanum.
DAGSKRÁ
Við erum með pott af mögulegum gönguleiðum og svo verður metið hverju sinni hvaða leiðir er best að taka miðað við veður og færð. Gengið er á laugardögum en sunnudagar eru til vara ef veður kemur í veg fyrir laugardaginn.
Reynivallarháls með Gíslagötu 6km/350m, Vörðufell 9 km/430 m, Miðdegishnúkur í Sveifluhálsi 8,5km/400m, Búrfell í Grímsnesi 7 km/450 m, Stóri-Hrútur við Fagradalsfjall ca 9 km/400m, Hringur við Bláa lónið 8-9 km, Lambafell við Þrengsli 7 km/400 m, Þríhnúkar og Haukafjöll 6 km/350 m, Kirkjustígur yfir Reynivallarháls í Kjós ca 6 km/300m, Prestastígur 16 km/250 m, Lágaskarðsvegur frá Hveradölum í Ölfus 13 km/350m, Skógfellavegur 17 km/270 m
Það er ítrekað að einhverjar leiðir verða á dagskrá tvær helgar.
TEYMIÐ
Teymið sem hefur umsjón með göngunum samanstendur af Einari Skúlasyni, Jóhönnu Fríðu Dalkvist, Birnu María Þorbjörnsdóttur, Elísabet Snædís Jónsdóttir, Gunnar Gunnarsson og Guðný Ragnarsdóttir komið inn í göngur. Þau hafa öll mikla og fjölbreytta reynslu af fjallamennsku og að leiða hópa við ýmsar aðstæður í göngum.
ÞOLÞJÁLFUN INNIFALIN
Þau sem eru í hópnum hafa rétt til að mæta einu sinni í viku í fjölbreytta þolþjálfun og hægt er að velja um annað hvort mánudaga eða fimmtudaga kl. 17:45. Þolþjálfunin tekur klukkutíma í senn og felur m.a. í sér brekkuæfingar. Æft er utandyra á höfuðborgarsvæðin og tilkynnt í hverri viku hvar æfingar verða þá vikuna. Þetta verður kynnt nánar í lokaða hópnum.
VERÐ OG BÓKANIR
Verð: Allar helgargöngur í millibröltinu kr. 55.000
Bókanir fara fram á https://www.sportabler.com/shop/vesenisferdir (þið smellið á tengilinn, skráið ykkur inn og veljið það námskeið sem passar, greiðið og þá er allt klappað og klárt). Hægt er að prenta út kvittun í kerfinu og nýta til niðurgreiðslu stéttarfélags- eða vinnustaðar. Athugið að færslur frá bókunarkerfinu á bankareikningi eru merkt sem „æfingagjöld“.
Þá er einnig mögulegt að greiða með millifærslu. Greiðsla jafngildir bókun og merkið færsluna „millihelg“. Greiðið inn á reikning 0515-26-530314 kt. 530314-0650 og sendið staðfestingu á einarskula@hotmail.com.
Þegar bókun er lokið er hægt að sækja um aðgang að lokaða hópnum á Facebook: https://www.facebook.com/groups/630630852198434
Afsláttarkjör: Hámarksafsláttur er 10% á mann og er í formi endurgreiðslu eftir að námskeið er hafið og búið að gera það upp. Þau sem voru skráð á Vesenisnámskeið haustið 2022 eða til elli-og örorkulífeyrisþega eða fjölskylduafsláttur fyrir meðlim nr. 2 í fjölskyldu með sama lögheimili. Látið vita á einarskula@hotmail.com og sendið með upplýsingar um námskeið, kennitölu og bankaupplýsingar.
SKILMÁLAR
Athugið að Vesen og vergangur (Vesenisferðir ehf) tryggir hvorki farþega sína né farangur þeirra. Þátttakendur ferðast með á eigin ábyrgð. Félagið hvetur fólk til að kaupa ferða- og slysatryggingar, vera vel útbúið og kynna sér veður áður en lagt er af stað. Athugið að námskeiðsgjald fæst ekki endurgreitt eftir að námskeið er hafið en hægt er að framselja það til annars.
Fyrirvari er settur um röskun á prógramminu vegna Covid-19 eða hliðstæðra ástæðna eða veðurs en alltaf stefnt á að klára tilskilinn fjölda af göngum.