Dagana 17.-19. ágúst ætlum við í bækistöðvaferð í Dalakofann á syðra Fjallabaki. Svæðið er eitt af fjölbreyttari hálendissvæðum landsins þar sem skiptast á litríkar hlíðar og dalir, gil og hverasvæði. Þótt margir þekki Landmannalaugar hafa færri kynnst þessum slóðum þar sem kyrrðin og víðáttan eru ríkjandi.
Dalakofinn verður bækistöð ferðarinnar og þaðan göngum við um nærliggjandi dali og fjöll og kynnumst landslagi svæðisins. Gengið er með dagpoka og snúum við aftur í skálann á kvöldin þar sem sameiginleg kvöldmáltíð og notaleg kvöldstund bíður hópsins.
Leiðsögn annast Guðrún Frímannsdóttir og fleiri fararstjórar Vesens og vergangs.

DAGSKRÁ
Mánudagur 17. ágúst – Reykjavík – Dalakofi
Brottför rútu verður kl. 9 frá Mjódd / Sambíómegin (einnig hægt að koma upp í á Selfossi eða Hvolsvelli). Þegar komið er í Dalakofann koma þátttakendur sér fyrir í skálanum og að því loknu förum við í stutta göngu um svæðið, um það bil 5 km leið að Nafnlausa fossinum. Gangan er tilvalin til að kynnast svæðinu og teygja úr sér eftir ferðalagið. Um kvöldið er sameiginlegur kvöldmatur og svo kvöldvaka.
Þriðjudagur 18. ágúst – dagsganga í Reykjadali
Eftir morgumat er lagt af stað í göngu dagsins. Byrjað verður á að vaða yfir Blautukvísl og þaðan liggur leiðin inn í einstaklega fallega Vesturdali og Reykjadali. Gengið verður um dali, gil og mela og skoðuð hverasvæði og önnur náttúruundur sem einkenna þessa dásamlegu dali. Gengið verður með dagpoka og nesti og gert er ráð fyrir góðum tíma til að njóta útsýnis og kyrrðar dalanna áður en haldið er aftur í Dalakofann síðdegis. Um kvöldið er sameiginlegur kvöldmatur og svo kvöldvaka.
Miðvikudagur 19. ágúst – morgunganga og heimferð
Þriðja daginn tökum við morgunmat snemma og svo verður tækifæri til að taka tveggja tíma göngu áður en rútan sækir okkur um hádegisbilið. Á heimleiðinni verður stoppað á fallegum stað og ef veður leyfir verður farin stutt ganga áður en haldið er áfram. Komið er síðdegis í bæinn.
MATUR OG AÐSTAÐA
Sameiginlegar kvöldmáltíðir verða bæði kvöldin í Dalakofanum og hafragrautur í morgunmat og kaffi fyrir þá sem það vilja. Hver og einn tekur með sér annan mat, til dæmis morgunmat fyrir þá sem kjósa annað en hafragraut, nesti í göngurnar og eitthvað til hressingar á milli mála. Aðstaða í Dalakofanum er góð. Þar er rennandi vatn og salerni innandyra. Eldað er á gasi, í skálanum er ekkert rafmagn, en lítil rafstöð gefur birtu á kvöldin. Skálinn verður lokaður öðrum gestum meðan á dvöl hópsins stendur.
ÆFINGAR
Gönguleiðirnar eru á færi flestra sem eru í ágætu gönguformi. Gott er að undirbúa sig með reglulegum göngum með dagpoka, til dæmis í fjallgöngum eða lengri gönguferðum á grónu og ójöfnu undirlagi.
UNDIRBÚNINGSFUNDUR
Haldinn verður undirbúningsfundur í gegnum Zoom þar sem farið verður nánar yfir ferðaáætlunina, útbúnað, undirbúning og fleira.
VERÐ OG BÓKANIR
Verð í skála kr. 69.000 á mann m/vsk
Verð í tjaldi kr. 54.000 á mann m/vsk
Innifalið: Undirbúningsfundur, skipulagning og leiðsögn, tvær sameiginlegar kvöldmáltíðir, hafragrautur og kaffi, gisting í Dalakofanum í tvær nætur (eða tjaldsvæði) og akstur á staðinn og aftur í bæinn í lok ferðar.
Smellið á tengil til að komast inn á bókunarkerfið. Athugið að ef bókunarkerfið þvælist fyrir ykkur er hægt að taka frá pláss í ferðina með því að greiða staðfestingargjald kr. 8.300 inn á reikning: 515-26-530314. Kt. 530314-0650. Senda afrit á einarskula@hotmail.com og merkja dalakofi.
Hámarksfjöldi í skálagistingu er 20 manns en líka hægt að vera í tjaldi.
SKILMÁLAR
Ígildi staðfestingargjalds í þessa ferð er kr. 8.300 og er það innifalið í heildarverði ferðarinnar. Aldrei er hægt að fá staðfestingargjaldið endurgreitt en hægt er að framselja fullgreidda ferð til nýs farþega sem tekur sætið.
Fargjald þarf að greiða að fullu a.m.k. sex vikum fyrir brottför.
Um afbókanir gilda annars eftirfarandi reglur:
Afbókun innan 7 daga frá bókun og meira en 21 degi fyrir brottför:
Ferð endurgreidd að staðfestingargjaldi frátöldu.
Afbókun 20–8 dögum fyrir brottför:
50% fargjalds endurgreitt.
Afbókun 7–4 dögum fyrir brottför:
25% fargjalds endurgreitt.
Afbókun 3 dögum fyrir brottför og fram að ferð:
Engin endurgreiðsla.
Breytingar:
Áskilinn er réttur til að hætta við, fresta ferð eða breyta áætlun vegna veðurs eða annarra utanaðkomandi aðstæðna eða ef ekki fæst næg þátttaka.
Tryggingar:
Tryggingar eru fyrir hendi eins og ferðaskrifstofuleyfi gerir ráð fyrir. Farþegar eru engu að síður hvattir til að hafa ferða- og slysatryggingar í lagi.
