Helgarferð í Þórsmörk í lok júní 2025

Síðustu helgina í júní verður farið í Bása á Goðalandi í Þórsmörk. Rúta verður tekin fram og til baka, og í boði er gisting í skála eða tjaldi í Básum. Gengnar verða þægilegar gönguleiðir í nágrenninu, m.a. upp frá Langadal í átt að Rjúpnafelli og jafnvel yfir í Húsadal. Gönguleiðir verða valdar með hliðsjón af veðri, og eru á bilinu 5–10 km á dag. Forðast verður mikinn bratta.
Fararstjóri er Þórdís Sigurgeirsdóttir sem hefur staðið fyrir fjölbreyttum Vesenisgöngum á sunnudögum síðustu tíu ár. Hún höfðar til sífellt stærri hóps sem vill njóta ferðalagsins án þess að flýta sér, og leggur áherslu á að skynja náttúruna og njóta útiverunnar.

 

DAGSKRÁ

 

Föstudagur 27. júní – Reykjavík > Þórsmörk
Rúta fer frá BSÍ kl. 15 og ekur sem leið liggur í Bása. Þar komum við okkur fyrir, og eftir það verður létt kvöldganga um stórbrotið landslag Goðalands.
Athugið: Ef einhver vill fara með rútunni frá BSÍ kl. 7, er hægt að athuga það sérstaklega án aukakostnaðar.

 

Laugardagur 28. júní – Gönguferð um Langadal og Tindfjallahring
Eftir góðan morgunverð er lagt af stað með bakpoka og gönguskó. Gengið verður yfir göngubrúna á Krossá yfir í Langadal, þaðan liggur leiðin um Tindfjallahring og upp á Tindfjallasléttu við Tröllakirkju. Útsýni er yfir Goðaland og Tindfjallajökul. Rjúpnafell blasir við, en ekki verður gengið á það.
Lengd: ca. 10 km – Uppsöfnuð hækkun: ca. 350 m.

 

Sunnudagur 29. júní – Valahnúkur og Húsadalur > Reykjavík
Eftir morgunverð og frágang er gengið upp á Valahnúk, yfir í Húsadal og til baka um Langadal (hringleið).
Lengd: ca. 10 km – Uppsöfnuð hækkun: ca. 300 m.
Eftir gönguna gefst tími til að slaka á í Básum, borða og hvíla sig áður en rúta fer til baka kl. 20.

 

Þarna sést yfir hluta Goðalands

VERÐ OG BÓKANIR

Verð með gistingu í skála: 74.000 kr. m/vsk
Verð án skálagistingar: 45.000 kr. m/vsk

Innifalið: rúta frá Reykjavík til Þórsmerkur og til baka, skálagisting (ef valin), og fararstjórn/leiðsögn.
Ekki innifalið: tjaldsvæðagjöld eða matur.

Afsláttur: 10% fyrir 18 ára og yngri og fyrir elli- og örorkulífeyrisþega.
Bókanir fara fram á: https://www.sportabler.com/shop/vesenisferdir

Einnig er hægt að millifæra: Reikningur: 515-26-530314 – Kt.: 530314-0650
Senda staðfestingu á: einarskula@hotmail.com og merkja „basar“.
Athugið: Ef þið millifærið þá þarf að hafa samband ef óskað er eftir skálagistingu (einarskula hjá gmail.com).

Hámarksfjöldi: 25 manns – Lágmark: 10 manns.

 

NESTI OG ÚTBÚNAÐUR
Takið með mat og nesti fyrir þrjá daga. Stefnt er að því að borða saman á laugardagskvöld, t.d. með því að grilla – hver grillar sitt eigið.

 

ÆFINGAR
Mælt er með að þátttakendur séu í nægilega góðu formi til að ganga alla þrjá dagana. Æfingar geta falið í sér t.d. eitt Úlfarsfell og eitt Helgafell í Hafnarfirði á viku, eða þrjú Úlfarsfell.
Munið að æfa alltaf með bakpoka. Þau sem eru í góðri æfingu njóta ferðarinnar betur.

 

LOKAÐUR FACEBOOK-HÓPUR
Þeir sem bóka ferð geta sótt um aðgang að lokaðum Facebook-hóp þar sem veittar verða praktískar upplýsingar: https://www.facebook.com/groups /1196596981770005

Þarna sést yfir innri hluta Goðalands og upp á brúnir Mýrdalsjökuls

SKILMÁLAR
Staðfestingargjald: 14.000 kr. – innifalið í heildarverði ferðar. Það er ekki endurgreitt en má fylgja með ef ferð er framseld til annars þátttakanda (ferð þarf þá að hafa verið greidd að fullu).
Greiðsluskilmálar: Heildarfargjald þarf að greiða að fullu að minnsta kosti 6 vikum fyrir brottför (miðjan júní). Greiði þátttakandi ekki fyrir þann tíma, getur sætið verið selt öðrum.

Afbókanir:
– Innan 7 daga frá bókun og meira en 21 degi fyrir brottför: Ferð endurgreidd að staðfestingargjaldi frátöldu.
– 20–8 dögum fyrir brottför: Endurgreiðsla 50%.
– 7–4 dögum fyrir brottför: Endurgreiðsla 25%.
– 3 dögum eða skemur fyrir brottför: Engin endurgreiðsla.
Breytingar: Skipuleggjandi áskilur sér rétt til að fresta, breyta eða fella niður ferð vegna veðurs, óviðráðanlegra aðstæðna eða ónógrar þátttöku. Ef ferð er felld niður fæst full endurgreiðsla.
Tryggingar: Ferðin er með lögboðnum tryggingum í samræmi við ferðaskrifstofuleyfi. Þátttakendum er þó eindregið ráðlagt að hafa eigin ferða- og slysatryggingar í lagi.

Share this post

More Stories from Archive

Vesenisferðir ehf

530314-0650
Mávahlíð 33
105 Reykjavík
einarskula hjá gmail.com
Sími: +354 663-2113