Sumarbröltið er röð þægilegra gönguferða um láglendi og aflíðandi hlíðar í maí og júní. Þetta er eins konar framhald af sama prógrammi í Vesen og brölt en reynir meira á þátttakendur. Það miðast meðal annars við að koma fólki í form fyrir sumargöngur en einnig til að njóta á björtum dögum og kvöldum. Gengið er einu til tvisvar í viku á höfuðborgarsvæðinu og í skynsamri akstursfjarlægð og er miðlað fróðleik um náttúru, umhverfi og útbúnað. Hist er kl. 18 í kvöldgöngum á miðvikudögum en yfirleitt um níuleytið að morgni í dagsgöngum á sunnudögum.
Við erum með lokaðan Facebook hóp fyrir þátttakendur og þar er tilkynnt um hverja göngu með eins til tveggja daga fyrirvara og birtast allar upplýsingar um gönguna, um veðurspá og útbúnað, útskýrt hvernig á að komast á staðinn og ákveðinn staður á höfuðborgarsvæðinu til að hittast og sameinast í bíla.

DAGSKRÁ
Sunnud 10-Maí-26 Dagsferð: Lambeyrarhringur í Hvítársíðu 8-9 km/150-200 m
Miðvikud 20- Maí -26 Kvöldganga: Hópsnes við Grindavík 5-6 km/50-100 m
Miðvikud 27-Maí-26 Kvöldganga: Lyklafell 6-7 km/200 m
Sunnud 31-Maí-26 Dagsferð: Stálpastaðaskógur Skorradal/Krosshólagata 9-11 km/3-400 m
Miðvikud 03-Jún-26 Kvöldganga: Herdísarvík eftir gömlu götunni 7 km/150 m
Sunnud 07-Jún-26 Dagsferð: Upp með Sauðá við Hveragerði 9-10 km/300 m
Miðvikud 10-Jún-26 Kvöldganga: Húshólmi í Ögmundarhrauni 6-7 km/50-100 m
Sunnud 21-Jún-26 Dagsferð: Sogin við Vigdísarvallaveg 8 km/3-400 m
Miðvikud 24-Jún-26 Kvöldganga: Ketilstígur yfir Sveifluháls 5-6 km/200 m
Sunnud 28-Jún-26 Dagsferð: Yfir Reynisfjall í Mýrdal 6-7 km/350-400 m
Athugið að dagskráin er sett fram með fyrirvara um veður og aðstæður. Við áskiljum okkur rétt til að víxla göngum eða fella niður og taka aðrar inn í staðinn og jafnframt fresta göngu og fara á öðrum degi.

UMSJÓN
Gunnar Gunnarsson og Rakel G. Magnúsdóttir stýra prógramminu og leiða göngurnar.
VERÐ OG BÓKANIR
Þetta eru alls tíu göngur, fimm kvöldgöngur og fimm dagsgöngur. Hægt er að taka allt prógrammið (og þá er afsláttur fyrir þau sem voru í vorprógrammi eða eru á lífeyri) eða taka annað hvort kvöldgöngurnar eða dagsgöngurnar og einnig er í boði bland í poka. Hægt verður að kaupa sig inn í stakar göngur (verð kr. 5500 í staka kvöldgöngu og 7500 í staka dagsgöngu).
1. Allur pakkinn 38.000 kr.
2. Allur pakkinn með afslætti 32.300 kr.
3. Aðeins kvöldgöngur 19.500 kr.
4. Aðeins dagsgöngur 24.500 kr.
5. Bland í poka (þrjár dagsgöngur og þrjár kvöldgöngur að eigin vali) 27.000 kr.
Bókanir fara fram á hinu íslenska bókunarkerfi Abler (þið smellið á tengilinn sem merktur er bóka núna, skráið ykkur inn og veljið það námskeið sem passar, greiðið og þá er allt klappað og klárt). Hægt er að prenta út kvittun í kerfinu og nýta til niðurgreiðslu stéttarfélags eða vinnustaðar. Athugið að færslur frá bókunarkerfinu á bankareikningi eru merkt sem „æfingagjöld“.
Þá er einnig mögulegt að greiða með millifærslu. Greiðsla jafngildir bókun og merkið færsluna „sumarbrolt“. Greiðið inn á reikning 0515-26-530314 kt. 530314-0650 og sendið staðfestingu á einarskula@hotmail.com.
Lágmarksfjöldi í hópnum er 20 en hámarksfjöldi 50.
Þegar bókun er lokið er hægt að sækja um aðgang að lokaða hópnum. Þetta er sami lokaði hópur og var í fyrra svo að fleiri verða í hópnum en kaupa aðgang að námskeiðinu.
Afsláttarkjör
Þau sem voru skráð á Vesenisnámskeið vorið 2026 eða eru elli-og örorkulífeyrisþegar. Einnig er fjölskylduafsláttur fyrir meðlim nr. 2 og 3 í fjölskyldu með sama lögheimili (sami afsláttur og fyrrnefndur). Afsláttur er bundinn við allan pakkann. Ekki er afsláttur af blandi í poka eða einungis kvöld- eða dagsgöngum.

SKILMÁLAR
Vesen og vergangur (Vesenisferðir ehf) tryggir hvorki farþega sína né farangur þeirra. Þátttakendur ferðast með á eigin ábyrgð. Félagið hvetur fólk til að kaupa ferða- og slysatryggingar, vera vel útbúið og kynna sér veður áður en lagt er af stað.
Athugið að námskeiðsgjald fæst ekki endurgreitt eftir að námskeið er hafið en hægt er að framselja það til annars.
Fyrirvari er settur um röskun á prógramminu vegna veðurs eða annarra aðstæðna. Ef göngur á reglulegum tímum falla niður þá er réttur áskilinn til að vera með aukagöngur á öðrum vikudögum til að vinna upp tapið og eins að nýta daga í júlí til að klára.
Gert er ráð fyrir að fólk komi sér sjálft á upphafsstað gönguferðanna, en við munum skipuleggja staði til þess að hittast á höfuðborgarsvæðinu svo hægt sé að deila bílum. Fólk deilir svo kostnaði við bílferðirnar.
