Tag: breiðavík

Search my Blog:

Read my Latest Stories

Vesen og millibrölt sumar er röð gönguferða í tæpa tvo mánuði sem allar fela í sér hækkun og myndu teljast miðlungserfiðar og sumar í efri hluta þess flokks. Það má segja að þetta sé fyrir þau sem gjarnan á Helgafell í Hafnarfirði og svipuð fell og upp að Steini og vilja kynnast nýjum leiðum með hækkandi sól og um leið komast í betra form. Þetta er sérstaklega góður undirbúningur fyrir þau sem hyggja á lengri göngur í sumar eins og Hornstrandir eða Lónsöræfi. Um leið er þetta æfing í að takast á við meiri hækkun og fjölbreyttar aðstæður. Auk þess er miðlað fróðleik um náttúru, sögu, umhverfi og útbúnað.
Stofnaður verður lokaður Facebook hópur fyrir þátttakendur og þar er tilkynnt um hverja göngu með eins til þriggja daga fyrirvara (með hliðsjón af veðurspá). Sjá tengil inn á lokaða hópinn í kafla um verð og bókanir.

Á Vífilsfelli

DAGSKRÁ

Lau 09-Maí-26  Dagsganga: Eyrarfjall og Sandfell í Kjós 9,5/600
Fim 14-Maí-26  Dagsganga: Ármannsfell 9,5 km/ca 700m (uppstigningardagur)
Þri 19-Maí-26  Kvöldganga: Litli Meitill 6/300
Þri 26-Maí-26  Kvöldganga: Jórutindur og Hátindur í Grafningi 5/250
Lau 30-Maí-26  Dagsganga: Hvammsnúpur í Eyjafjöllum 8/460
Þri 02-Jún-26  Kvöldganga: Bjarnarfell í Ölfusi 5,5/300
Þri 09-Jún-26  Kvöldganga: Þúfufjall 5 km 500 m
Þri 16-Jún-26  Kvöldganga: Miðfell og Dagmálafell 8/300
Lau 20-Jún-26  Dagsganga: Þórólfsfell Fljótshlíð 11,5/550
Þri 23-Jún-26  Kvöldganga: Ketilstígur og Miðdegishnúkur 7/350
Lau 27-Jún-26  Dagsganga: Hafnarfjall frá suðri til norðurs 11/800

Athugið að dagskráin er sett fram með fyrirvara um veður og aðstæður. Við áskiljum okkur rétt til að víxla göngum eða fella niður og taka aðrar inn í staðinn.

 

UMSJÓN
Einar Skúlason, Kristín Silja, Elísabet Snædís, Jóhanna Fríða úr hópi fararstjóra Vesens og vergangs.

VERÐ OG BÓKANIR
Þetta eru alls ellefu göngur, sex kvöldgöngur og fimm dagsgöngur. Hægt er að taka allan pakkann (og þá getur afsláttur átt við) eða taka annað hvort kvöldgöngurnar eða dagsgöngurnar eða bland í poka. Hægt verður að kaupa sig inn í stakar göngur (verð kr. 6000 í staka kvöldgöngu og 8000 í staka dagsgöngu).

1. Allur pakkinn 44.000 kr.
2. Allur pakkinn með afslætti 37.400 kr.
3. Aðeins kvöldgöngur 27.000 kr.
4. Aðeins dagsgöngur 27.500 kr.
5. Bland í poka (þrjár dagsgöngur og þrjár kvöldgöngur að eigin vali) 29.000 kr.

Bókanir fara fram á https://www.sportabler.com/shop/vesenisferdir (þið smellið á tengilinn, skráið ykkur inn og veljið það námskeið sem passar, greiðið og þá er allt klappað og klárt). Hægt er að prenta út kvittun í kerfinu og nýta til niðurgreiðslu stéttarfélags eða vinnustaðar. Athugið að færslur frá bókunarkerfinu á bankareikningi eru merkt sem „æfingagjöld“.

Þá er einnig mögulegt að greiða með millifærslu. Greiðsla jafngildir bókun og merkið færsluna „millisumar“. Greiðið inn á reikning 0515-26-530314 kt. 530314-0650 og sendið staðfestingu á einarskula@hotmail.com.
Lágmarksfjöldi í hópnum er 20 en hámarksfjöldi 50 (þau sem taka þátt að hluta teljast sem hálfir).

Þegar bókun er lokið er hægt að sækja um aðgang að lokaða hópnum: https://www.facebook.com/groups/2694476527394856

Afsláttarkjör
Þau sem voru skráð á Vesenisnámskeið vorið 2026 eða eru elli-og örorkulífeyrisþegar. Einnig er fjölskylduafsláttur fyrir meðlim nr. 2 og 3 í fjölskyldu með sama lögheimili (sami afsláttur og fyrrnefndur). Afsláttur er bundinn við allan pakkann. Ekki er afsláttur af blandi í poka eða einungis kvöld- eða dagsgöngum.

SKILMÁLAR
Vesen og vergangur (Vesenisferðir ehf) tryggir hvorki farþega sína né farangur þeirra. Þátttakendur ferðast með á eigin ábyrgð. Félagið hvetur fólk til að kaupa ferða- og slysatryggingar, vera vel útbúið og kynna sér veður áður en lagt er af stað.
Athugið að námskeiðsgjald fæst ekki endurgreitt eftir að námskeið er hafið en hægt er að framselja það til annars.
Fyrirvari er settur um röskun á prógramminu vegna veðurs eða annarra aðstæðna. Ef göngur á reglulegum tímum falla niður þá er réttur áskilinn til að vera með aukagöngur á öðrum vikudögum til að vinna upp tapið og eins að nýta daga í júlí til að klára.
Gert er ráð fyrir að fólk komi sér sjálft á upphafsstað gönguferðanna, en við munum skipuleggja staði til þess að hittast á höfuðborgarsvæðinu svo hægt sé að deila bílum. Fólk deilir svo kostnaði við bílferðirnar.

Dagana 17.-19. ágúst ætlum við í bækistöðvaferð í Dalakofann á syðra Fjallabaki. Svæðið er eitt af fjölbreyttari hálendissvæðum landsins þar sem skiptast á litríkar hlíðar og dalir, gil og hverasvæði. Þótt margir þekki Landmannalaugar hafa færri kynnst þessum slóðum þar sem kyrrðin og víðáttan eru ríkjandi.
Dalakofinn verður bækistöð ferðarinnar og þaðan göngum við um nærliggjandi dali og fjöll og kynnumst landslagi svæðisins. Gengið er með dagpoka og snúum við aftur í skálann á kvöldin þar sem sameiginleg kvöldmáltíð og notaleg kvöldstund bíður hópsins.
Leiðsögn annast Guðrún Frímannsdóttir og fleiri fararstjórar Vesens og vergangs.

DAGSKRÁ

Mánudagur 17. ágúst – Reykjavík – Dalakofi
Brottför rútu verður kl. 9 frá Mjódd / Sambíómegin (einnig hægt að koma upp í á Selfossi eða Hvolsvelli). Þegar komið er í Dalakofann koma þátttakendur sér fyrir í skálanum og að því loknu förum við í stutta göngu um svæðið, um það bil 5 km leið að Nafnlausa fossinum. Gangan er tilvalin til að kynnast svæðinu og teygja úr sér eftir ferðalagið. Um kvöldið er sameiginlegur kvöldmatur og svo kvöldvaka.

Þriðjudagur 18. ágúst – dagsganga í Reykjadali
Eftir morgumat er lagt af stað í göngu dagsins. Byrjað verður á að vaða yfir Blautukvísl og þaðan liggur leiðin inn í einstaklega fallega Vesturdali og Reykjadali. Gengið verður um dali, gil og mela og skoðuð hverasvæði og önnur náttúruundur sem einkenna þessa dásamlegu dali. Gengið verður með dagpoka og nesti og gert er ráð fyrir góðum tíma til að njóta útsýnis og kyrrðar dalanna áður en haldið er aftur í Dalakofann síðdegis. Um kvöldið er sameiginlegur kvöldmatur og svo kvöldvaka.

Miðvikudagur 19. ágúst – morgunganga og heimferð
Þriðja daginn tökum við morgunmat snemma og svo verður tækifæri til að taka tveggja tíma göngu áður en rútan sækir okkur um hádegisbilið. Á heimleiðinni verður stoppað á fallegum stað og ef veður leyfir verður farin stutt ganga áður en haldið er áfram. Komið er síðdegis í bæinn.

MATUR OG AÐSTAÐA
Sameiginlegar kvöldmáltíðir verða bæði kvöldin í Dalakofanum og hafragrautur í morgunmat og kaffi fyrir þá sem það vilja. Hver og einn tekur með sér annan mat, til dæmis morgunmat fyrir þá sem kjósa annað en hafragraut, nesti í göngurnar og eitthvað til hressingar á milli mála. Aðstaða í Dalakofanum er góð. Þar er rennandi vatn og salerni innandyra. Eldað er á gasi, í skálanum er ekkert rafmagn, en lítil rafstöð gefur birtu á kvöldin. Skálinn verður lokaður öðrum gestum meðan á dvöl hópsins stendur.

ÆFINGAR
Gönguleiðirnar eru á færi flestra sem eru í ágætu gönguformi. Gott er að undirbúa sig með reglulegum göngum með dagpoka, til dæmis í fjallgöngum eða lengri gönguferðum á grónu og ójöfnu undirlagi.

UNDIRBÚNINGSFUNDUR
Haldinn verður undirbúningsfundur í gegnum Zoom þar sem farið verður nánar yfir ferðaáætlunina, útbúnað, undirbúning og fleira.

VERÐ OG BÓKANIR

Verð í skála kr. 69.000 á mann m/vsk
Verð í tjaldi kr. 54.000 á mann m/vsk

Innifalið: Undirbúningsfundur, skipulagning og leiðsögn, tvær sameiginlegar kvöldmáltíðir, hafragrautur og kaffi, gisting í Dalakofanum í tvær nætur (eða tjaldsvæði) og akstur á staðinn og aftur í bæinn í lok ferðar.

Smellið á tengil til að komast inn á bókunarkerfið. Athugið að ef bókunarkerfið þvælist fyrir ykkur er hægt að taka frá pláss í ferðina með því að greiða staðfestingargjald kr. 8.300 inn á reikning: 515-26-530314. Kt. 530314-0650. Senda afrit á einarskula@hotmail.com og merkja dalakofi.

Hámarksfjöldi í skálagistingu er 20 manns en líka hægt að vera í tjaldi.

SKILMÁLAR
Ígildi staðfestingargjalds í þessa ferð er kr. 8.300 og er það innifalið í heildarverði ferðarinnar. Aldrei er hægt að fá staðfestingargjaldið endurgreitt en hægt er að framselja fullgreidda ferð til nýs farþega sem tekur sætið.
Fargjald þarf að greiða að fullu a.m.k. sex vikum fyrir brottför.

Um afbókanir gilda annars eftirfarandi reglur:
Afbókun innan 7 daga frá bókun og meira en 21 degi fyrir brottför:
Ferð endurgreidd að staðfestingargjaldi frátöldu.
Afbókun 20–8 dögum fyrir brottför:
50% fargjalds endurgreitt.
Afbókun 7–4 dögum fyrir brottför:
25% fargjalds endurgreitt.

Afbókun 3 dögum fyrir brottför og fram að ferð:
Engin endurgreiðsla.

Breytingar:
Áskilinn er réttur til að hætta við, fresta ferð eða breyta áætlun vegna veðurs eða annarra utanaðkomandi aðstæðna eða ef ekki fæst næg þátttaka.

Tryggingar:
Tryggingar eru fyrir hendi eins og ferðaskrifstofuleyfi gerir ráð fyrir. Farþegar eru engu að síður hvattir til að hafa ferða- og slysatryggingar í lagi.

Víða á Snæfellsnesi er mikil náttúrufegurð og margt að skoða. Landið er mótað af eldvirkni, jökul- og sjávarrofi. Jarðfræði, dýralíf og gróðurfar er fjölbreytt. Í þessari ferð munum við skoða norðanvert Snæfellsnes, nærri Grundarfirði og Stykkishólmi.
Fyrsta daginn munum við ganga meðfram Selvallavatni og Berserkjahrauni og færum við okkur nær sjónum og göngum eftir hinni gömlu Berserkjagötu. Annan daginn verðum við á Vatnaleiðinni þar sem við munum ganga í kringum Hraunsfjarðarvatn. Þriðja daginn ætlum við svo að ganga umhverfis Kirkjufell og að lokum upp að Grundarfossi. Þetta eru alls fimm þægilegar göngur á þremur dögum og hæfir þeim sem líður vel að fara á Úlfarsfellið.
Margt er að skoða á þessum leiðum og margar sögur að segja auk þess að náttúran á svæðinu er stórbrotin. Athugið að fólk kemur á eigin vegum á Snæfellsnes en sjálfsagt er að vera í sambandi fyrir ferð til að deila bílum. Hægt verður að fá gistingu á Staðarstað á hagstæðu verði en þaðan er um 20-45 mínútna keyrsla að upphafsstöðum hvers dags. Auk þessu eru mjög fín tjaldsvæði á Grundarfirði og Stykkishólmi og margvísleg önnur gisting er í boði á svæðinu. Gunnar Gunnarsson sér um leiðsögn.

DAGSKRÁ

Miðvikudagur 8. júlí – Berserkjahraun og Berserkjagata
Við hittumst við gatnamót Vatnaleiðar og Snæfellsnesvegar í Helgafellssveit og og keyrum inn á gamla veginn um Berserkjahraun þar sem gangan hefst. Við göngum suður í átt að Selvallavatni og meðfram því. Hraunjaðrinum er svo fylgt og svo gamla veginum til baka.
Eftir gönguna um Berserkjahraun keyrum við yfir að Bjarnarhafnarvegi og leggjum bílum skammt frá Berserkjagötu og göngum hana og meðfram hraunjaðrinum í hring.
Gangan um Berserkjahraun er um 9 km, uppsöfnuð hækkun um 300 m. Áætlað er að gangan taki um 4-5 tíma.
Gangan eftir Berserkjagötu er um 5 km og hækkun um 50 m. Áætlað er að gangan taki um 2-2,5 tíma.

Fimmtudagur 9. júlí – umhverfis Hraunsfjarðarvatn
Við hittumst á bílastæðinu við Selvallafoss. Þaðan keyrum við í suður Vatnaleiðina (u.þ.b. 3 km) og beygjum útaf til móts við Hraunsfjarðarvatn og á upphafsstað. Við göngum í átt að Baulárvallavatni og meðfram því áður en við færum okkur yfir að Hraunsfjarðarvatni og klárum hringinn aftur að bílunum
Gangan er um 11 km og uppsöfnuð hækkun um 250 m. Áætlað er að gangan taki 5-7 tíma

Föstudagur 10. júlí – Kirkjufell og Grundarfoss
Við hittumst við Fjölbrautaskóla Snæfellinga á Grundarfirði og sameinumst þar í bíla til að fara á sem fæstum bílum að Kirkjufelli þar sem gjaldskylda er á bílastæðinu þar. Við göngum svo eftir veginum að hálsi áður en við komum að göngustígunum sem tekur okkur umhverfis Kirkjufell. Í lok göngunnar gefst tækifæri til að skoða Kirkjufoss.
Þegar göngunni um Kirkjufell er lokið sækjum við bílana og keyrum að bílastæðinu við Grundarfoss og göngum upp með Grundará og að fossinum.
Gangan umhverfis Kirkjufell er um 8-9 km og heildar hækkun undir 100 m. Gangan tekur um 5 tíma.
Gangan að Grundarfossi er um 3 km og hækkun um 70 m. Gangan tekur 1-1,5 tíma

LÍKAMLEGT FORM
Þó að leiðirnar sem slíkar séu ekki krefjandi getur það reynt á að ganga þrjá langa daga í röð. Því getur verið gott að byggja upp gönguform til þess að líða vel í ferðinni. Gott er því að æfa fyrir ferðina og best er að æfa sig í göngu. Upplagt er að ganga reglulega á Úlfarsfellið eða sambærilegt fjall síðustu 4-6 vikurnar fyrir ferð. Þá getur verið gott að vera með bakpokann sem þið áætlið að nota í ferðinni. Síðustu 2-3 daga fyrir ferð er svo gott að hvíla

Selvallavatn og Berserkjahraun

VERÐ OG BÓKANIR

Verð kr. 31.000.

Innifalið: fararstjórn, skipulag og undirbúningsfundur.
Ekki innifalið: gisting, bílfar, matur eða annað.

Bókanir fara fram á https://www.sportabler.com/shop/vesenisferdir (þið smellið á tengilinn, skráið ykkur inn og veljið það námskeið sem passar, greiðið og þá er allt klappað og klárt). Hægt er að prenta út kvittun í kerfinu og nýta til niðurgreiðslu stéttarfélags- eða vinnustaðar. Athugið að færslur frá bókunarkerfinu á bankareikningi eru merkt sem „æfingagjöld“.
Þá er einnig mögulegt að greiða með millifærslu. Greiðsla jafngildir bókun. Greiðið inn á reikning 0515-26-530314 kt. 530314-0650 og sendið staðfestingu merkt „ snæág“ á einarskula@hotmail.com.

Kirkjufell

SKILMÁLAR
Ígildi staðfestingargjalds í þessa ferð er kr. 5.000 og er hluti af verði ferðarinnar. Aldrei er hægt að fá staðfestingargjald endurgreitt en hægt er að framselja bókunina til nýs farþega sem kemur inn og tekur sætið og fylgir þá staðfestingargjaldið með. Fargjald þarf að greiða að fullu a.m.k. sex vikum fyrir brottför (15. maí) Ef greiðsla hefur ekki borist innan settra tímamarka má búast við að ferðin verði seld öðrum.
Afbókanir: Um afbókanir gilda annars eftirfarandi reglur:
Afbókun innan 7 daga frá bókun og meira en 21 degi fyrir brottför: Ferð endurgreidd að staðfestingargjaldi frátöldu.
Afbókun 20-8 dögum fyrir brottför: 50% fargjalds endurgreidd.
Afbókun 7-4 dögum fyrir brottför: 25% fargjalds endurgreidd.
Afbókun 3-0 dögum fyrir brottför: Engin endurgreiðsla.
Breytingar: Áskilinn er réttur til að hætta við, fresta ferð eða breyta áætlun vegna veðurs eða annarra utanaðkomandi aðstæðna, svo og ef ekki fæst næg þátttaka. Ef hætt er við ferð þá fæst full endurgreiðsla.
Tryggingar: Tryggingar eru fyrir hendi eins og ferðaskrifstofuleyfi gerir ráð fyrir. Farþegar eru engu að síður hvattir til að huga að tryggingarmálum og hafa ferða- og slysatryggingar í lagi.

Hraunsfjarðarvatn og Horn um vetur

Hengilssvæðið er ótrúlega fjölbreytt landsvæði með móbergshryggjum, misgengisdölum og giljum, hveravirkni og grænum blettum sem undirstrika hið dökka berg. Í þessari ferð ætlum við að skoða sýnishorn af þessu öllu og virða fyrir okkur útsýni í átt að Þingvallavatni og fjöllunum umhverfis. Við göngum meðal vindsorfinna móbergskletta, meðfram mosavöxnum og skriðurunnum hlíðum, um hveragil og sandauðnir. Í seinni hluta göngunnar eykst gróður smám saman og við endum í skógi vöxnu umhverfi.

Gangan verður farin á annan í hvítasunnu 25. maí. Tölvupóstur verður sendur þátttakendum síðdegis á föstudegi fyrir ferð með upplýsingum um útbúnað, veðurspá og fleira hagnýtt.
Einar Skúlason leiðir gönguna.

LÝSING Á LEIÐINNI
Við leggjum af stað í Dyradal og fylgjum stikuðum slóða um Dyrnar og Skeggjadal á Kýrdalshrygg, þræðum hlíðar undir Nesjaskyggni og dáumst að útsýni til norðurs yfir Þingvallavatn og nágrenni. Við sjáum hveravirkni í Nesjalaugargili og Hagavíkurlaugum og í framhaldi göngum við meðfram dökkum og vindsorfnum Sandklettunum. Þar er komið inn á gömlu kaupstaðarleið Hagavíkurbænda og henni fylgt nokkurn veginn á leiðarenda. Fyrst um sandauðnina Sandskeið á milli Sandkletta og Krossfjalla og yfir Sandklif í faðm gróðurs milli Stangarhálsins og Hvíthlíðar. Að lokum er gengið um kjarri vaxið umhverfi Lómatjarnar og gangan endar ofan við Hagavík skammt frá Þingvallavatni.
Mögulega munum við ganga í hina áttina og byrja við Hagavík ef vindátt reynist hagstæðari þannig.

VEGALENGD OG TÍMI
Vegalengd göngu er ca 16 km og uppsöfnuð hækkun á leiðinni er ca 400 m. Göngutími með stoppum er ca 6-7 tímar.
Gert er ráð fyrir að þátttakendur séu í æfingu til að takast á við svona göngu. Gott er að miða við að geta farið upp að Steini í sumarfæri á klukkutíma og korter.

BROTTFARARSTAÐUR
Brottför frá Hádegismóum kl. 8:30 (fólk leggur bílum á bak við prentsmiðju Morgunblaðsins).
Rútan skutlar okkur að upphafsstað göngu og sækir okkur á endastað. Hægt er að geyma aukadót eins og t.d. skó, sokka eða önnur föt eða aukanesti í rútunni á meðan við göngum og því hægt að komast í það aftur þegar við komum að rútunni í lokin. Við getum gert ráð fyrir að koma síðdegis í bæinn eftir göngu.

VERÐ OG BÓKANIR

Verð í ferðina er kr. 17.000 m/vsk

Innifalið er rútuferðin fram og til baka frá Reykjavík og leiðsögn.

Bókanir fara fram á https://www.abler.io/shop/vesenisferdir (þið afritið tengilinn og setjið í vafra, skráið ykkur inn, veljið greiðslufyrirkomulag og þá er allt klappað og klárt). Það er hægt að dreifa greiðslum á nokkra mánuði og enginn vaxtakostnaður af slíkum ráðstöfunum í Abler. Ef þið lendið í vandræðum með innskráningu þá eru leiðbeiningar hér.

MILLIFÆRSLA: Það er mögulegt að greiða með millifærslu. Greiðsla jafngildir bókun og merkið færsluna „Dyra“. Greiðið inn á reikning 0515-26-530314 kt. 530314-0650 og sendið staðfestingu á einarskula@hotmail.com. Munið að senda netfangið ykkar svo hægt sé að hafa samband fyrir göngu.
Lágmarksfjöldi 20 manns og hámarksfjöldi 35 manns.


SKILMÁLAR
Ígildi staðfestingargjalds í þessa ferð er kr. 3.000 og er hluti af verði ferðarinnar. Aldrei er hægt að fá staðfestingargjald endurgreitt en hægt er að framselja bókunina/sætið til nýs farþega ef fargjald hefur verið að fullu greitt áður og fylgir þá staðfestingargjaldið með. Ef greiðsla hefur ekki borist innan settra tímamarka má búast við að ferðin verði seld öðrum.

Um afbókanir gilda annars eftirfarandi reglur:
Afbókun innan 7 daga frá bókun og meira en 21 degi fyrir brottför: Ferð endurgreidd að staðfestingargjaldi frátöldu.
Afbókun 20-8 dögum fyrir brottför: 50% fargjalds endurgreidd.
Afbókun 7-4 dögum fyrir brottför: 25% fargjalds endurgreidd.
Afbókun 3-0 dögum fyrir brottför: Engin endurgreiðsla.
Breytingar: Áskilinn er réttur til að hætta við, fresta ferð eða breyta áætlun vegna veðurs eða annarra utanaðkomandi aðstæðna, svo og ef ekki fæst næg þátttaka. Ef ferðin er felld niður er hún endurgreidd.
Tryggingar: Tryggingar eru fyrir hendi eins og ferðaskrifstofuleyfi gerir ráð fyrir. Farþegar eru engu að síður hvattir til að huga að tryggingarmálum og hafa ferða- og slysatryggingar í lagi.

Við verðum með tvær ferðir að Grænahrygg í lok sumars 2026. Í báðum ferðunum ætlum við að skoða Grænahrygg og halda svo áfram göngu inn í Jökulgil og um Uppgönguhrygg og enda gönguna í Landmannalaugum. Ferðirnar eru áætlaðar laugardagana 29. ágúst og 5. september. Báða dagana er sunnudagur til vara ef veður reynist ekki nægilega gott á laugardeginum.

Við tökum rútu frá Reykjavík í bítið og keyrum austur að Fjallabaki og göngum af stað frá Kýlingum. Þaðan er farið um Halldórsgil og Sveinsgil að Grænahrygg. Áfram er haldið meðfram hinum litríku Þrengslum og yfir í Hattver og um Uppgönguhrygg þar sem enn bætir í litadýrðina. Þaðan er farið í hlíðum Skalla og á Reykjakoll þar sem sést í Brandsgilin og yfir Landmannalaugasvæðið. Við lækkum okkur svo niður og göngum á jafnsléttu í lokin inn í Laugar.

BROTTFARARSTAÐUR
Við tökum rútu frá bílastæðinu við prentsmiðju Morgunblaðsins í Hádegismóum og hún leggur af stað kl. 7 að morgni.
Hægt er að koma upp í rútuna við Olís á Selfossi, en þið verðið að láta vita í einarskula hjá hotmail.com.
Athugið að við verðum með rútuna allan daginn, þannig að það er tilvalið að geyma með tösku þar á meðan við göngum. Í þessari aukatösku geta t.d. verið föt og skór, aukanesti og drykkir.

 

VEGALENGD OG TÍMI
Vegalengd: ca 20 km
Heildarhækkun: ca 1100 m
Göngutími með stoppum: ca 10 tímar

UNDIRBÚNINGUR

Það þarf að æfa fyrir göngu sem þessa enda er töluverð hækkun á leiðinni auk vegalengdarinnar og þá þarf jafnframt að vaða. Besta leiðin til að æfa er að stunda göngur á fjöll með góðri hækkun. Esjan er upplögð í æfingar og til dæmis hægt að fara á Móskarðshnúka, Smáþúfur, Kerhólakamb eða einfaldlega upp að Steini. Gott er að miða við að minnsta kosti 500 m hækkun í hvert skipti og fara tvisvar í viku síðustu fimm vikur fyrir ferð. Þá er formið orðið gott og forsendur til að njóta ferðarinnar í botn. Gott er að nota búnaðinn í æfingunum sem þið ætlið að nota í ferðinni og muna að hvíla síðustu tvo til þrjá dagana fyrir ferð.

 

ÚTBÚNAÐUR OG NESTI

Við göngum á slóðum á hryggjum og í grýttu og yfir ár. Þetta er fjölbreytt færi og því er betra að vera í gönguskóm en í léttum hlaupaskóm. En best er að vera í skóm sem ykkur líður vel í en gætið þess þó að botninn á skónum sé grófur. Vaðskór eru nauðsynlegir  (t.d. teva, crocs, gamla strigaskó eða annað sem hentar).

Miða þarf fatnað við veðurspá.  Almennt séð er miðað við að taka skelina með (vind- og vatnsþéttar buxur og jakka), vettlinga/hanska og húfu. Gott að vera í ull að ofan en ef þið eruð í göngubuxum þá eru ullarbuxur óþarfar (nema að þið ætlið að ganga í skeljabuxunum og viljið vera í ull þar fyrir innan og sleppa göngubuxum). Takið með göngustafi, góðan dagspoka, aukaúlpu t.d. dún eða primaloft til að klæðast í nesti og aukasokka til að hafa möguleika á að skipta í miðri göngu. Það eru lækir á leiðinni, en gott að hafa hitabrúsa með kakó/te/kaffi, nesti sem er ykkur að skapi og dugar alla gönguna og nasl til að stinga upp í sig á leiðinni (hnetur, rúsínur, súkkulaði).
Takið með plástra og verkjalyf. Gætið þess að pakka í plastpoka eða vatnsþétta poka ofan í bakpokann ef það skyldi rigna.
Þetta er löng ganga og því tökum við að sjálfsögðu nesti tvisvar til þrisvar, stoppum öðru hvoru og gætum þess að fara á skynsamlegum hraða.

 

VERÐ OG BÓKANIR

Verð í ferðina er kr. 30.000 m/vsk

Innifalið: Rúta frá Reykjavík og til baka og leiðsögn.

Bókanir fara fram á Abler (þið smellið á tengilinn, skráið ykkur inn sem notendur og veljið annað hvort 29. ágúst eða 5. sept, ákveðið greiðslufyrirkomulag og þá er allt klappað og klárt). Hægt er að prenta út kvittun í kerfinu og nýta til niðurgreiðslu stéttarfélags- eða vinnustaðar. Athugið að færslur frá bókunarkerfinu á bankareikningi getur verið merkt sem „æfingagjöld“.

Þá er einnig mögulegt að greiða með millifærslu. Greiðsla jafngildir bókun og merkið færsluna með viðeigandi merkingu á borð við: „Græni29ág“ . Greiðið inn á reikning 0515-26-530314 kt. 530314-0650 og sendið staðfestingu á einarskula@hotmail.com.

 

SKILMÁLAR

Ígildi staðfestingargjalds í þessa ferð er kr. 9.500 og er hluti af verði ferðarinnar. Aldrei er hægt að fá staðfestingargjald endurgreitt en hægt er að framselja fullgreidda ferð til nýs farþega sem kemur inn og tekur sætið og fylgir þá staðfestingargjaldið með. Fargjald þarf að greiða að fullu a.m.k. sex vikum fyrir brottför. Ef greiðsla hefur ekki borist innan settra tímamarka má búast við að ferðin verði seld öðrum.

Afbókanir: Um afbókanir gilda annars eftirfarandi reglur:
Afbókun innan 7 daga frá bókun og meira en 21 degi fyrir brottför: Ferð endurgreidd að staðfestingargjaldi frátöldu.
Afbókun 20-8 dögum fyrir brottför: 50% fargjalds endurgreidd.
Afbókun 7-4 dögum fyrir brottför: 25% fargjalds endurgreidd.
Afbókun 3-0 dögum fyrir brottför: Engin endurgreiðsla.
Breytingar: Áskilinn er réttur til að hætta við, fresta ferð eða breyta áætlun vegna veðurs eða annarra utanaðkomandi aðstæðna, svo og ef ekki fæst næg þátttaka. Ef ferð er felld niður kemur fullt endurgjald til farþega.
Tryggingar: Tryggingar eru fyrir hendi eins og ferðaskrifstofuleyfi gerir ráð fyrir. Farþegar eru engu að síður hvattir til að huga að tryggingarmálum og hafa ferða- og slysatryggingar í lagi.

Frá stofnun Vesens og vergangs höfum við yfirleitt farið árlega ferð um Kattartjarnaleiðina og þetta er líklega þrettánda árið sem Vesenisferð er auglýst um þessa fallegu leið sem við förum nú laugardaginn 13. júní. Það er gaman að segja frá því að hún var í fyrsta sinn kölluð Kattartjarnaleið á vettvangi Vesens og vergangs.

Í Tindgili á Kattartjarnaleið

LÝSING Á LEIÐINNI
Gengið er upp með Ölfusvatnsánni og hún vaðin (þægilegt er að vera vaðskó meðferðis, t.d. gamla strigaskó eða crocs). Ölfusvatnsárgljúfrin innihalda fjölbreyttar bergmyndanir, útskot og klettastalla sem gaman er að virða fyrir sér á leiðinni. Svo förum við um fallegt Tindgilið austan megin við Hrómundartind, tökum á okkur krók til að sjá Kattartjarnir og förum svo meðfram Álftatjörn og neðan við Dalaskarðshnúk með útsýni yfir Reykjadal og um Dalaskarð upp á Dalafell til að athuga enn betur með útsýnið. Þaðan yfir Dalafellið og niður Grændalsmegin og göngum undir Eggjum og um falleg hverasvæði þangað til við komum að Grændalsánni rétt ofan við Þrengsli og þaðan niður á Reykjadalsbílastæðið. Að sjálfsögðu verður sagt frá ýmsu athyglisverðu á leiðinni og af nógu að taka.

 

VEGALENGD OG TÍMI
Vegalengd göngu er ca 16,5 km og uppsöfnuð hækkun á leiðinni er ca 500 m. Göngutími með stoppum er ca 6 tímar.

Þessi ganga verður laugardaginn 13. júní. Til vara er sunnudagurinn ef veður reynist slæmt á laugardeginum. Gert er ráð fyrir að ganga af stað Grafningsmegin. Ef vindur blæs að sunnan eða austan þá gæti göngu verið snúið við til að hafa vindinn í bakið.

Gert er ráð fyrir að þátttakendur séu í æfingu til að takast á við svona göngu. Gott er að miða við að geta farið upp að Steini í sumarfæri á klukkutíma.

BROTTFARARSTAÐUR
Brottför frá Hádegismóum kl. 8:30 (fólk leggur bílum á bak við prentsmiðju Morgunblaðsins).

Rútan skutlar okkur að upphafsstað og sækir okkur á áfangastað. Hægt er að geyma aukadót eins og t.d. skó, sokka eða önnur föt eða aukanesti í rútunni á meðan við göngum og því hægt að komast í það aftur þegar við komum að rútunni í lokin. Við getum gert ráð fyrir að koma síðdegis (um fimmleytið) í bæinn eftir göngu.

 

VERÐ OG BÓKANIR

Verð í ferðina er kr. 17.000 m/vsk

Innifalið er rútuferðin fram og til baka frá Reykjavík og leiðsögn.

Bókanir fara fram á https://www.sportabler.com/shop/vesenisferdir (þið afritið tengilinn og setjið í vafra, skráið ykkur inn, veljið greiðslufyrirkomulag og þá er allt klappað og klárt). Það er hægt að dreifa greiðslum á nokkra mánuði og enginn vaxtakostnaður af slíkum ráðstöfunum í sportabler. Ef þið lendið í vandræðum með innskráningu þá eru leiðbeiningar hér.

Þá er einnig mögulegt að greiða með millifærslu. Greiðsla jafngildir bókun og merkið færsluna „Kattar“. Greiðið inn á reikning 0515-26-530314 kt. 530314-0650 og sendið staðfestingu á einarskula@hotmail.com.

Lágmarksfjöldi 20 manns og hámarksfjöldi 35 manns.

Þarna sjást Kattartjarnirnar báðar.

SKILMÁLAR
Ígildi staðfestingargjalds í þessa ferð er kr. 3.000 og er hluti af verði ferðarinnar. Aldrei er hægt að fá staðfestingargjald endurgreitt en hægt er að framselja bókunina/sætið til nýs farþega ef fargjald hefur verið að fullu greitt áður og fylgir þá staðfestingargjaldið með. Ef greiðsla hefur ekki borist innan settra tímamarka má búast við að ferðin verði seld öðrum.

Um afbókanir gilda annars eftirfarandi reglur:

Afbókun innan 7 daga frá bókun og meira en 21 degi fyrir brottför: Ferð endurgreidd að staðfestingargjaldi frátöldu.

Afbókun 20-8 dögum fyrir brottför: 50% fargjalds endurgreidd.

Afbókun 7-4 dögum fyrir brottför: 25% fargjalds endurgreidd.

Afbókun 3-0 dögum fyrir brottför: Engin endurgreiðsla.

Breytingar: Áskilinn er réttur til að hætta við, fresta ferð eða breyta áætlun vegna veðurs eða annarra utanaðkomandi aðstæðna, svo og ef ekki fæst næg þátttaka. Ef ferðin er felld niður er hún endurgreidd.

Tryggingar: Tryggingar eru fyrir hendi eins og ferðaskrifstofuleyfi gerir ráð fyrir. Farþegar eru engu að síður hvattir til að huga að tryggingarmálum og hafa ferða- og slysatryggingar í lagi.

FEATURED STORY

Göngur eru fyrir alla

Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Suspendisse varius enim in eros elementum tristique. Duis cursus, mi quis viverra ornare, eros dolor interdum nulla.

Discover My Story Categories

Umgengni og umhverfi

Skilmálar

Hreyfihópar

Heilsa og líðan

Göngur fyrir alla!

Ferðir