Tag: Guðrún frá Lundi

Search my Blog:

Read my Latest Stories

Langbröltið eru krefjandi göngur þar sem áherslan er frekar á lengri göngur en bröttustu fjöllin. Búast má við fjölbreyttum göngum með góðri hækkun í bland við ágætis vegalengdir eins og sést í dagskránni. Það er því fjör framundan.

Á dagskrá eru 17 fjölbreyttar göngur sem skiptast í tólf kvöldgöngur á fimmtudögum og fimm dagsgöngur á laugardögum. Búist er við að þátttakendur geti farið í krefjandi aðstæður út frá veðri og færð og þurfi því að eiga eða hafa aðgang að viðeigandi búnaði. Keðjubroddar (Esjubroddar) eiga að duga í allar göngur en ekki er útilokað að gott sé að hafa öxi og fjallabrodda þó ekki sé stefnt á að nota slíkan búnað.

Leiðsögufólk veitir leiðbeiningar um útbúnað og stofnaður er lokaður Facebook-hópur þar sem hver ganga er kynnt nánar, farið yfir aðstæður, ferðatilhögun og annað sem þarf að hafa í huga.

Gert er ráð fyrir að hver og einn beri ábyrgð á að koma sér á upphafsstað en við stingum upp á stöðum þar sem hægt er að sameinast í bíla.

 

Fararstjórn annast Einar Skúlason og Kristín Silja Guðlaugsdóttir ásamt Jóhönnu Fríðu, Elísabetu Snædísi og öðrum fararstjórum Vesens og vergangs.

Dagskrá

 

Gengið er á fimmtudagskvöldum kl. 18 og farið í dagsgöngur um helgar. Stefnt er á að fara í dagsgöngur á þeim dögum sem merktir eru í dagskránni en aðrir dagar eru til vara ef veður eða aðstæður krefjast breytinga. Hver ganga er tilkynnt í Facebook-hópnum með eins til þriggja daga fyrirvara og leiðir valdar með hliðsjón af veðurspá og aðstæðum.

 

 

1            Thu       20-Aug-26       Opin upphitunarganga

2            Thu       27-Aug-26

3            Thu       03-Sept-26

4            Thu       10-Sept-26

5            Sat        12-Sept-26      Dagsganga

6            Thu       17-Sept-26

7            Thu       24-Sept-26

8            Sat        03-Oct-26        Dagsganga

9            Thu       08-Oct-26

10          Thu       15-Oct-26

11          Sat        24-Oct-26        Dagsganga

12          Thu       29-Oct-26

13          Thu       05-Nov-26

14          Sat        07-Nov-26       Dagsganga

15          Thu       12-Nov-26

16          Sat        21-Nov-26       Dagsganga

17          Thu       26-Nov-26

 

Dagsgöngur

Skyrtunna – 17 km / 1.000 m

Kvígindisfell – 10 km / 650 m

Hestfjallahnúkur – 15 km / 750 m

Vestursúla og Norðursúla – 16,5 km / 1.150 m

Grímsstaðamúli á Mýrum – 12 km / 450 m

 

Athugið að vegalengd og hækkun segja ekki alla söguna, veður og færð hafa töluvert að segja ásamt undirlagi.

Verð og bókanir

  • Allt prógrammið: 73.500 kr.
  • Allt prógrammið með 15% afslætti: 62.500 kr.
  • Einungis kvöldgöngurnar: 48.500 kr.
  • Einungis dagsgöngurnar: 35.500 kr.
  • Bland í poka (tvær dagsgöngur og sex kvöldgöngur að eigin vali): 44.000 kr.

 

Bókanir fara fram í bókunarkerfinu Abler. Þar er hægt að greiða með korti eða greiðsluseðlum og prenta út kvittun til að nýta hjá stéttarfélagi eða vinnustað.

 

Einnig er hægt að greiða með millifærslu. Merkið færsluna „lang“, greiðið inn á reikning 0515-26-530314, kennitala 530314-0650, og sendið staðfestingu á einarskula@hotmail.com. Greiðsla jafngildir bókun.

 

Lágmarksfjöldi í hópnum er 20 en hámarksfjöldi 50.

 

Þegar bókun er lokið er hægt að sækja um aðgang að lokaða Facebook-hópnum. Þau sem taka allt prógrammið og eiga rétt á afslætti (t.d. vegna fyrri þátttöku eða sem elli- og örorkulífeyrisþegar) fá 15% afslátt. Einnig er í boði fjölskylduafsláttur fyrir tvo eða fleiri á sama lögheimili. Afslætti er ekki hægt að leggja saman.

Skilmálar

 

Athugið að námskeiðsgjald fæst ekki endurgreitt eftir að námskeið er hafið en hægt er að framselja það til annars.

 

Vesen og vergangur (Vesenisferðir ehf.) tryggir hvorki farþega sína né farangur þeirra. Þátttakendur ferðast á eigin ábyrgð og hvatt er til þess að kaupa ferða- og slysatryggingar, vera vel útbúin og kynna sér veður áður en lagt er af stað.

 

Fyrirvari er um breytingar á dagskrá vegna veðurs, færðar eða annarra ófyrirséðra aðstæðna en ávallt er stefnt að því að klára tilskilinn fjölda gönguferða.

Millibrölt haust er sería af göngum frá miðjum ágúst og fram í byrjun desember sem hentar þeim sem hafa öðlast góðan grunn í göngum og vilja taka næsta skref. Göngurnar eru meira krefjandi en í Vesen og brölt, bæði hvað varðar undirlag, hækkun og landslag, en áfram er lögð áhersla á góða stemningu, fróðleik og að njóta útiverunnar í góðum félagsskap.

Á dagskrá eru sextán fjölbreyttar göngur sem skiptast í tólf kvöldgöngur á miðvikudögum og fjórar dagsgöngur á laugardögum. Kvöldgöngurnar eru skipulagðar þannig að meirihluti þeirra er snemma á haustinu til að nýta birtuna sem best. Auk hreyfingarinnar er miðlað fjölbreyttum fróðleik um náttúru, sögu, örnefni, útbúnað og göngumennsku.

Þótt göngurnar séu meira krefjandi er áfram lögð áhersla á að njóta útiverunnar, stoppa reglulega til að skoða umhverfið og miðla fróðleik um náttúru, sögu og landslag. Markmiðið er ekki að flýta sér heldur að upplifa fjölbreyttar gönguleiðir og byggja smám saman upp meiri færni og sjálfstraust í ólíku undirlagi.

Þátttakendur koma sér sjálfir á upphafsstað hverrar göngu en fá upplýsingar um tíma og stað í lokaða Facebook-hópnum þar sem jafnframt er hægt að samnýta bíla. Hver ganga er kynnt með eins til tveggja daga fyrirvara ásamt upplýsingum um leiðina, aðstæður og veðurspá.

Hist er síðdegis og gengið af stað um kl. 18 á miðvikudögum og um eða upp úr kl. 9 á laugardagsmorgnum. Ef veður er óhagstætt á laugardegi verður sunnudagur varadagur.

Stofnaður hefur verið lokaður Facebook-hópur fyrir þátttakendur þar sem hver ganga er kynnt með eins til tveggja daga fyrirvara og miðlað ýmiss konar fræðslu. Sækið um aðgang að hópnum þegar skráningu er lokið.

DAGSKRÁ

Mið 19-Aug-26 opin upphitunarganga
Mið 26-Aug-26 Kvöldganga
Lau 05-Sept-26 Dagsganga
Mið 09-Sept-26 Kvöldganga
Mið 16-Sept-26 Kvöldganga
Mið 23-Sept-26 Kvöldganga
Mið 30-Sept-26 Kvöldganga
Mið 07-Oct-26 Kvöldganga
Lau 10-Oct-26 Dagsganga
Mið 14-Oct-26 Kvöldganga
Mið 21-Oct-26 Kvöldganga
Mið 04-Nov-26 Kvöldganga
Lau 07-Nov-26 Dagsganga
Mið 18-Nov-26 Kvöldganga
Lau 28-Nov-26 Dagsganga

 

GÖNGURNAR

Kvöldgöngur: Þær eru að jafnaði 4–8 km að lengd með 100–400 metra hækkun og taka yfirleitt 1½–2½ klukkustund. Gengið er bæði eftir göngustígum og utan þeirra um fjölbreytt landslag, svo sem hraun, mela, móa, hlíðar og fell. Leiðirnar eru valdar með það að markmiði að veita hæfilega áskorun og auka smám saman úthald, öryggi og færni í fjölbreyttu undirlagi. Við metum aðstæður út frá veðri og færð og tilkynnum hverja göngu í lokaða Facebook-hópnum með eins til tveggja daga fyrirvara.

Stefnt er á eftirfarandi dagsgöngur:

  • Hagafell í Þjórsárdal – um 7,5 km og 500 m hækkun.
  • Glymur – um 7 km og 330 m hækkun.
  • Brekkufjall í Borgarfirði – um 8 km og 400 m hækkun.
  • Fagradalsfjall og nágrenni – um 11,5 km og 250 m hækkun.

Ef aðstæður kalla á breytingar geta aðrar sambærilegar göngur komið í stað þeirra sem hér eru nefndar.

 

UMSJÓN

Leiðbeinendur eru Einar Skúlason, Elísabet Snædís, Jóhanna Fríða og Kristín Silja. Þau hafa öll víðtæka reynslu af fararstjórn og leiðsögn og hafa komið að göngum í brölthópunum undanfarin ár.

VERÐ OG BÓKANIR

 

Í boði eru fjórir valkostir:

  • Allar göngurnar verð kr. 63.900
  • Einungis kvöldgöngur kr. 54.315
  • Einungis dagsgöngur kr. 26.000
  • Bland í poka (sex kvöldgöngur og tvær dagsgöngur að eigin vali) kr. 37.000

 

Bókanir fara fram í gegnum íslenska bókunarforritið Abler og einnig er hægt að greiða með millifærslu og greiðsla jafngildir bókun. Þau sem millifæra þurfa að óska eftir reikningi með því að senda á netfangið hér að neðan og tilgreina nafn, kt og hvaða áskrift þau eru með.

Millifærsla: Reikningur: 0515-26-530314. Kennitala: 530314-0650.

Merkið greiðsluna „millimið“ og sendið greiðslustaðfestingu á einarskula@hotmail.com.

 

Afsláttarkjör

  • Þátttakendur sem voru á Vesenisnámskeiði vorið eða sumarið 2026 fá 15% afslátt.
  • Elli- og örorkulífeyrisþegar fá 15% afslátt.
  • Fjölskylduafsláttur er 15% fyrir annan fjölskyldumeðlim með sama lögheimili.
  • Ekki er hægt að leggja saman afslætti.

 

SKILMÁLAR

Þátttakendur taka þátt á eigin ábyrgð.

Vesen og vergangur (Vesenisferðir ehf.) tryggir hvorki þátttakendur né farangur þeirra og mælir með að fólk hafi gildar slysa- og ferðatryggingar.

Þátttakendur bera sjálfir ábyrgð á að mæta með fatnað og búnað sem hæfir aðstæðum hverju sinni.

Vesen og vergangur áskilur sér rétt til að gera breytingar á gönguleiðum og dagskrá ef veður, öryggi eða aðrar ófyrirséðar aðstæður krefjast þess.

Námskeiðsgjald fæst ekki endurgreitt eftir að námskeið er hafið en það er heimilt að framselja skráningu til annars þátttakanda í samráði við Vesen og vergang.

Millibrölt haust er sería af göngum frá miðjum ágúst og fram í byrjun desember sem hentar þeim sem hafa öðlast góðan grunn í göngum og vilja taka næsta skref. Göngurnar eru meira krefjandi en í Vesen og brölt, bæði hvað varðar undirlag, hækkun og landslag, en áfram er lögð áhersla á góða stemningu, fróðleik og að njóta útiverunnar í góðum félagsskap.

Á dagskrá eru sextán fjölbreyttar göngur sem skiptast í tólf kvöldgöngur á þriðjudögum og fjórar dagsgöngur á laugardögum. Kvöldgöngurnar eru skipulagðar þannig að meirihluti þeirra er snemma á haustinu til að nýta birtuna sem best. Auk hreyfingarinnar er miðlað fjölbreyttum fróðleik um náttúru, sögu, örnefni, útbúnað og göngumennsku.

Þótt göngurnar séu meira krefjandi er áfram lögð áhersla á að njóta útiverunnar, stoppa reglulega til að skoða umhverfið og miðla fróðleik um náttúru, sögu og landslag. Markmiðið er ekki að flýta sér heldur að upplifa fjölbreyttar gönguleiðir og byggja smám saman upp meiri færni og sjálfstraust í ólíku undirlagi.

Þátttakendur koma sér sjálfir á upphafsstað hverrar göngu en fá upplýsingar um tíma og stað í lokaða Facebook-hópnum þar sem jafnframt er hægt að samnýta bíla. Hver ganga er kynnt með eins til tveggja daga fyrirvara ásamt upplýsingum um leiðina, aðstæður og veðurspá.

Hist er síðdegis og gengið af stað um kl. 18 á þriðjudögum og um eða upp úr kl. 9 á laugardagsmorgnum. Ef veður er óhagstætt á laugardegi verður sunnudagur varadagur.

Stofnaður hefur verið lokaður Facebook-hópur fyrir þátttakendur þar sem hver ganga er kynnt með eins til tveggja daga fyrirvara og miðlað ýmiss konar fræðslu. Sækið um aðgang að hópnum þegar skráningu er lokið.

DAGSKRÁ

Þri         18-Aug-26       opin upphitunarganga

Þri         25-Aug-26       Kvöldganga

Lau       29-Aug-26       Dagsganga

Þri         01-Sept-26      Kvöldganga

Þri         08-Sept-26      Kvöldganga

Þri         15-Sept-26      Kvöldganga

Þri         22-Sept-26      Kvöldganga

Þri         29-Sept-26      Kvöldganga

Þri         06-Oct-26        Kvöldganga

Lau       10-Oct-26        Dagsganga

Þri         13-Oct-26        Kvöldganga

Þri         20-Oct-26        Kvöldganga

Þri         27-Oct-26        Kvöldganga

Lau       31-Oct-26        Dagsganga

Þri         10-Nov-26       Kvöldganga

Lau       28-Nov-26       Dagsganga

 

GÖNGURNAR

Kvöldgöngur: Þær eru að jafnaði 4–8 km að lengd með 100–400 metra hækkun og taka yfirleitt 1½–2½ klukkustund. Gengið er bæði eftir göngustígum og utan þeirra um fjölbreytt landslag, svo sem hraun, mela, móa, hlíðar og fell. Leiðirnar eru valdar með það að markmiði að veita hæfilega áskorun og auka smám saman úthald, öryggi og færni í fjölbreyttu undirlagi. Við metum aðstæður út frá veðri og færð og tilkynnum hverja göngu í lokaða Facebook-hópnum með eins til tveggja daga fyrirvara.

 

Stefnt er á eftirfarandi dagsgöngur:

  • Hagafell í Þjórsárdal – um 7,5 km og 500 m hækkun.
  • Glymur – um 7 km og 330 m hækkun.
  • Brekkufjall í Borgarfirði – um 8 km og 400 m hækkun.
  • Fagradalsfjall og nágrenni – um 11,5 km og 250 m hækkun.

Ef aðstæður kalla á breytingar geta aðrar sambærilegar göngur komið í stað þeirra sem hér eru nefndar.

UMSJÓN

Leiðbeinendur eru Einar Skúlason, Elísabet Snædís, Gunnar Gunnarsson og Rakel G. Magnúsdóttir. Þau hafa öll víðtæka reynslu af fararstjórn og leiðsögn og hafa komið að göngum í brölthópunum undanfarin ár.

 

VERÐ OG BÓKANIR

 

Í boði eru fjórir valkostir:

 

  • Allar göngurnar verð kr. 63.900
  • Einungis kvöldgöngur kr. 54.315
  • Einungis dagsgöngur kr. 26.000
  • Bland í poka (sex kvöldgöngur og tvær dagsgöngur að eigin vali) kr. 37.000

 

Bókanir fara fram í gegnum íslenska bókunarforritið Abler og einnig er hægt að greiða með millifærslu og greiðsla jafngildir bókun. Þau sem millifæra þurfa að óska eftir reikningi með því að senda á netfangið hér að neðan og tilgreina nafn, kt og hvaða áskrift þau eru með.

Millifærsla: Reikningur: 0515-26-530314. Kennitala: 530314-0650.

Merkið greiðsluna „milliþri“ og sendið greiðslustaðfestingu á einarskula@hotmail.com.

 

Afsláttarkjör

  • Þátttakendur sem voru á Vesenisnámskeiði vorið eða sumarið 2026 fá 15% afslátt.
  • Elli- og örorkulífeyrisþegar fá 15% afslátt.
  • Fjölskylduafsláttur er 15% fyrir annan fjölskyldumeðlim með sama lögheimili.
  • Ekki er hægt að leggja saman afslætti.

 

SKILMÁLAR

Þátttakendur taka þátt á eigin ábyrgð.

Vesen og vergangur (Vesenisferðir ehf.) tryggir hvorki þátttakendur né farangur þeirra og mælir með að fólk hafi gildar slysa- og ferðatryggingar.

Þátttakendur bera sjálfir ábyrgð á að mæta með fatnað og búnað sem hæfir aðstæðum hverju sinni.

Vesen og vergangur áskilur sér rétt til að gera breytingar á gönguleiðum og dagskrá ef veður, öryggi eða aðrar ófyrirséðar aðstæður krefjast þess.

Námskeiðsgjald fæst ekki endurgreitt eftir að námskeið er hafið en það er heimilt að framselja skráningu til annars þátttakanda í samráði við Vesen og vergang.

Vesen og brölt er ætlað þeim sem vilja hreyfa sig reglulega án þess að leggja í erfiðar fjallgöngur. Við göngum á þægilegum hraða um láglendi, skóga, strandir og aflíðandi brekkur og stoppað er reglulega til að njóta útsýnisins og fræðast um náttúruna, söguna og staðina sem verða á vegi okkar.

Námskeiðið hefst með opinni upphitunargöngu í miðjum ágúst og stendur fram í byrjun desember. Á dagskrá eru 16 göngur; tólf kvöldgöngur á mánudögum og fjórar lengri dagsgöngur á sunnudögum.

Markmiðið er að byggja upp þol og sjálfstraust í göngum, kynnast nýjum svæðum og njóta útiveru í góðum hópi. Margir þátttakendur hafa gengið með okkur árum saman og nýir þátttakendur eru alltaf hjartanlega velkomnir.

Hvernig virkar námskeiðið?

Kvöldgöngurnar eru yfirleitt 4–8 km að lengd og fara fram á höfuðborgarsvæðinu eða í nágrenni þess. Helgargöngurnar eru ögn lengri og gefa kost á að heimsækja fjölbreytt svæði á Suðvesturlandi.

Göngurnar eru valdar með tilliti til árstíma, birtu og veðurs. Hver ganga er auglýst í lokuðum Facebook-hópi einum til tveimur dögum áður en lagt er af stað. Þar eru einnig birtar upplýsingar um leiðina, veður, útbúnað og ýmislegt fróðlegt um svæðið sem gengið verður um.

Við hvetjum þátttakendur til að sameinast í bíla þegar það á við. Það minnkar akstur, sparar kostnað og hefur reynst frábær leið til að kynnast öðrum í hópnum.

Ef veður hamlar dagsgöngu á sunnudegi er laugardagur til vara.

 

Fyrir hverja er námskeiðið?

Vesen og brölt hentar þeim sem vilja:

  • komast í betra gönguform,
  • hreyfa sig reglulega í góðum félagsskap,
  • kynnast nýjum gönguleiðum,
  • fræðast um náttúru, sögu og örnefni,
  • njóta útiveru án þess að leggja í mjög krefjandi fjallgöngur.

 

Ekki er gerð krafa um fyrri reynslu, en þátttakendur þurfa að geta gengið nokkra kílómetra á fjölbreyttu undirlagi.

Dagskrá

Námskeiðið samanstendur af tólf kvöldgöngum á mánudögum og fjórum lengri dagsgöngum á sunnudögum.

 

Stefnt er á eftirfarandi dagsgöngur:

  • Róleg ganga með Rauðufossum að Auganu (10 km/350m)
  • Herdísarvíkurgata (7-9 km)
  • Akranes á Mýrum (10 km)
  • Haukadalur við Geysi (5-7 km /100m)

 

Kvöldgöngur fara fram á höfuðborgarsvæðinu og í næsta nágrenni þess. Stefnt er á að fara ekki sömu gönguna tvisvar á hverju misseri.

 

1            17. ágúst (mán.)          Opin upphitunarganga

2            24. ágúst (mán.)          Kvöldganga

3            30. ágúst (sun.)            Dagsganga

4            7. september (mán.)     Kvöldganga

5            14. september (mán.)              Kvöldganga

6            21. september (mán.)              Kvöldganga

7            28. september (mán.)              Kvöldganga

8            5. október (mán.)        Kvöldganga

9            12. október (mán.)     Kvöldganga

10          18. október (sun.)       Dagsganga

11          26. október (mán.)     Kvöldganga

12          2. nóvember (mán.)   Kvöldganga

13          9. nóvember (mán.)   Kvöldganga

14          15. nóvember (sun.)  Dagsganga

15          23. nóvember (mán.) Kvöldganga

16          6. desember (sun.)     Lokadagsganga

 

Endanlegt val á gönguleiðum ræðst af veðri, færð og aðstæðum hverju sinni. Hver ganga er kynnt í Facebook-hópnum með eins til tveggja daga fyrirvara.

 

Leiðbeinendur

Leiðbeinendur eru Einar Skúlason, Gunnar Gunnarsson, Rakel G. Magnúsdóttir og Þórdís Sigurgeirsdóttir sem öll hafa víðtæka reynslu af leiðsögn og útivist.

 

Verð og bókanir

Í boði eru fjórir valkostir:

  • Allar göngurnar verð kr. 62.900
  • Einungis kvöldgöngur kr. 46.900
  • Einungis dagsgöngur kr. 26.000
  • Bland í poka (sex kvöldgöngur og tvær dagsgöngur að eigin vali) kr. 37.000

 

Bókun í Abler

Bókanir fara fram í gegnum íslenska bókunarkerfið Abler. Þar er hægt að greiða með greiðslukorti og prenta út kvittun til að sækja um niðurgreiðslu hjá stéttarfélagi eða vinnuveitanda.

Greiðsla með millifærslu: Einnig er hægt að greiða með millifærslu og greiðsla jafngildir bókun. Óski þátttakendur eftir reikningi er hægt að senda beiðni á netfangið hér að neðan.

Reikningur: 0515-26-530314

Kennitala: 530314-0650

Merkið greiðsluna „Brölt“ og sendið greiðslustaðfestingu á einarskula@hotmail.com.

 

Afsláttarkjör

  • Þátttakendur sem voru á Vesenisnámskeiði vorið eða sumarið 2026 fá 15% afslátt.
  • Elli- og örorkulífeyrisþegar fá 15% afslátt.
  • Fjölskylduafsláttur er 15% fyrir annan fjölskyldumeðlim með sama lögheimili.
  • Ekki er hægt að leggja saman afslætti.

Skilmálar

Þátttakendur taka þátt á eigin ábyrgð.

Vesen og vergangur (Vesenisferðir ehf.) tryggir hvorki þátttakendur né farangur þeirra og mælir með að fólk hafi gildar slysa- og ferðatryggingar.

Þátttakendur bera sjálfir ábyrgð á að mæta með fatnað og búnað sem hæfir aðstæðum hverju sinni.

Vesen og vergangur áskilur sér rétt til að gera breytingar á gönguleiðum og dagskrá ef veður, öryggi eða aðrar ófyrirséðar aðstæður krefjast þess.

Námskeiðsgjald fæst ekki endurgreitt eftir að námskeið er hafið en það er heimilt að framselja skráningu til annars þátttakanda í samráði við Vesen og vergang.

Sumarbröltið er röð þægilegra gönguferða um láglendi og aflíðandi hlíðar í maí og júní. Þetta er eins konar framhald af sama prógrammi í Vesen og brölt en reynir meira á þátttakendur. Það miðast meðal annars við að koma fólki í form fyrir sumargöngur en einnig til að njóta á björtum dögum og kvöldum. Gengið er einu til tvisvar í viku á höfuðborgarsvæðinu og í skynsamri akstursfjarlægð og er miðlað fróðleik um náttúru, umhverfi og útbúnað. Hist er kl. 18 í kvöldgöngum á miðvikudögum en yfirleitt um níuleytið að morgni í dagsgöngum á sunnudögum.

Við erum með lokaðan Facebook hóp fyrir þátttakendur og þar er tilkynnt um hverja göngu með eins til tveggja daga fyrirvara og birtast allar upplýsingar um gönguna, um veðurspá og útbúnað, útskýrt hvernig á að komast á staðinn og ákveðinn staður á höfuðborgarsvæðinu til að hittast og sameinast í bíla.

 

DAGSKRÁ

 

Sunnud  10-Maí-26          Dagsferð: Melabakkar og Súlueyri við Grunnafjörð 10 km

Miðvikud  20- Maí -26    Kvöldganga: Hópsnes við Grindavík 5-6 km/50-100 m

Miðvikud  27-Maí-26       Kvöldganga: Lyklafell 6-7 km/200 m

Sunnud  31-Maí-26          Dagsferð: Stálpastaðaskógur Skorradal/Krosshólagata 9-11 km/3-400 m

Miðvikud  03-Jún-26        Kvöldganga: Herdísarvík eftir gömlu götunni 7 km/150 m

Sunnud   07-Jún-26          Dagsferð: Upp með Sauðá við Hveragerði 9-10 km/300 m

Miðvikud  10-Jún-26        Kvöldganga: Húshólmi í Ögmundarhrauni 6-7 km/50-100 m

Sunnud  21-Jún-26           Dagsferð: Sogin við Vigdísarvallaveg 8 km/3-400 m

Miðvikud  24-Jún-26        Kvöldganga: Ketilstígur yfir Sveifluháls 5-6 km/200 m

Sunnud  28-Jún-26           Dagsferð: Yfir Reynisfjall í Mýrdal 6-7 km/350-400 m

 

Athugið að dagskráin er sett fram með fyrirvara um veður og aðstæður. Við áskiljum okkur rétt til að víxla göngum eða fella niður og taka aðrar inn í staðinn og jafnframt fresta göngu og fara á öðrum degi.

UMSJÓN
Gunnar Gunnarsson og Rakel G. Magnúsdóttir stýra prógramminu og leiða göngurnar.

 

VERÐ OG BÓKANIR

Þetta eru alls tíu göngur, fimm kvöldgöngur og fimm dagsgöngur. Hægt er að taka allt prógrammið (og þá er afsláttur fyrir þau sem voru í vorprógrammi eða eru á lífeyri) eða taka annað hvort kvöldgöngurnar eða dagsgöngurnar og einnig er í boði bland í poka. Hægt verður að kaupa sig inn í stakar göngur (verð kr. 5500 í staka kvöldgöngu og 7500 í staka dagsgöngu).

1.  Allur pakkinn  38.000 kr.
2.  Allur pakkinn með afslætti  32.300 kr.
3.  Aðeins kvöldgöngur  19.500 kr.
4.  Aðeins dagsgöngur  24.500 kr.
5.  Bland í poka (þrjár dagsgöngur og þrjár kvöldgöngur að eigin vali)  27.000 kr.

Bókanir fara fram á hinu íslenska bókunarkerfi Abler (þið smellið á tengilinn sem merktur er bóka núna, skráið ykkur inn og veljið það námskeið sem passar, greiðið og þá er allt klappað og klárt). Hægt er að prenta út kvittun í kerfinu og nýta til niðurgreiðslu stéttarfélags eða vinnustaðar. Athugið að færslur frá bókunarkerfinu á bankareikningi eru merkt sem „æfingagjöld“.

Þá er einnig mögulegt að greiða með millifærslu. Greiðsla jafngildir bókun og merkið færsluna „sumarbrolt“. Greiðið inn á reikning 0515-26-530314 kt. 530314-0650 og sendið staðfestingu á einarskula@hotmail.com.
Lágmarksfjöldi í hópnum er 20 en hámarksfjöldi 50.

Þegar bókun er lokið er hægt að sækja um aðgang að lokaða hópnum. Þetta er sami lokaði hópur og var í fyrra svo að fleiri verða í hópnum en kaupa aðgang að námskeiðinu.

 

Afsláttarkjör

Þau sem voru skráð á Vesenisnámskeið vorið 2026 eða eru elli-og örorkulífeyrisþegar. Einnig er fjölskylduafsláttur fyrir meðlim nr. 2 og 3 í fjölskyldu með sama lögheimili (sami afsláttur og fyrrnefndur). Afsláttur er bundinn við allan pakkann. Ekki er afsláttur af blandi í poka eða einungis kvöld- eða dagsgöngum.

SKILMÁLAR
Vesen og vergangur (Vesenisferðir ehf) tryggir hvorki farþega sína né farangur þeirra. Þátttakendur ferðast með á eigin ábyrgð. Félagið hvetur fólk til að kaupa ferða- og slysatryggingar, vera vel útbúið og kynna sér veður áður en lagt er af stað.
Athugið að námskeiðsgjald fæst ekki endurgreitt eftir að námskeið er hafið en hægt er að framselja það til annars.
Fyrirvari er settur um röskun á prógramminu vegna veðurs eða annarra aðstæðna. Ef göngur á reglulegum tímum falla niður þá er réttur áskilinn til að vera með aukagöngur á öðrum vikudögum til að vinna upp tapið og eins að nýta daga í júlí til að klára.
Gert er ráð fyrir að fólk komi sér sjálft á upphafsstað gönguferðanna, en við munum skipuleggja staði til þess að hittast á höfuðborgarsvæðinu svo hægt sé að deila bílum. Fólk deilir svo kostnaði við bílferðirnar.

 

Vesen og millibrölt sumar er röð gönguferða í tæpa tvo mánuði sem allar fela í sér hækkun og myndu teljast miðlungserfiðar og sumar í efri hluta þess flokks. Það má segja að þetta sé fyrir þau sem fara gjarnan á Helgafell í Hafnarfirði og svipuð fell og upp að Steini og vilja kynnast nýjum leiðum með hækkandi sól og um leið komast í betra form. Þetta er sérstaklega góður undirbúningur fyrir þau sem hyggja á lengri göngur í sumar eins og Hornstrandir eða Lónsöræfi. Um leið er þetta æfing í að takast á við meiri hækkun og fjölbreyttar aðstæður. Auk þess er miðlað fróðleik um náttúru, sögu, umhverfi og útbúnað.
Stofnaður verður lokaður Facebook hópur fyrir þátttakendur og þar er tilkynnt um hverja göngu með eins til þriggja daga fyrirvara (með hliðsjón af veðurspá). Sjá tengil inn á lokaða hópinn í kafla um verð og bókanir.

Á Vífilsfelli

DAGSKRÁ

Lau 09-Maí-26  Dagsganga: Eyrarfjall og Sandfell í Kjós 9,5/600
Fim 14-Maí-26  Dagsganga: Ármannsfell 9,5 km/ca 700m (uppstigningardagur)
Þri 19-Maí-26  Kvöldganga: Litli Meitill við Þrengslaveg 6/300
Þri 26-Maí-26  Kvöldganga: Jórutindur og Hátindur í Grafningi 5/250
Lau 30-Maí-26  Dagsganga: Hvammsnúpur í Eyjafjöllum 8/460
Þri 02-Jún-26  Kvöldganga: Bjarnarfell í Ölfusi 5,5/300
Þri 09-Jún-26  Kvöldganga: Þúfufjall í Hvalfirði 5 km 500 m
Þri 16-Jún-26  Kvöldganga: Miðfell og Dagmálafell í Þingvallasveit 8/300
Lau 20-Jún-26  Dagsganga: Þórólfsfell Fljótshlíð 11,5/550
Þri 23-Jún-26  Kvöldganga: Ketilstígur og Miðdegishnúkur á Sveifluhálsi 7/350
Lau 27-Jún-26  Dagsganga: Hafnarfjall frá suðri til norðurs 11/800

Athugið að dagskráin er sett fram með fyrirvara um veður og aðstæður. Við áskiljum okkur rétt til að víxla göngum eða fella niður og taka aðrar inn í staðinn.

 

UMSJÓN
Einar Skúlason, Kristín Silja, Elísabet Snædís, Jóhanna Fríða úr hópi fararstjóra Vesens og vergangs.

VERÐ OG BÓKANIR
Þetta eru alls ellefu göngur, sex kvöldgöngur og fimm dagsgöngur. Hægt er að taka allan pakkann (og þá getur afsláttur átt við) eða taka annað hvort kvöldgöngurnar eða dagsgöngurnar eða bland í poka. Hægt verður að kaupa sig inn í stakar göngur (verð kr. 6000 í staka kvöldgöngu og 8000 í staka dagsgöngu).

1. Allur pakkinn 44.000 kr.
2. Allur pakkinn með afslætti 37.400 kr.
3. Aðeins kvöldgöngur 27.000 kr.
4. Aðeins dagsgöngur 27.500 kr.
5. Bland í poka (þrjár dagsgöngur og þrjár kvöldgöngur að eigin vali) 29.000 kr.

Bókanir fara fram á https://www.sportabler.com/shop/vesenisferdir (þið smellið á tengilinn, skráið ykkur inn og veljið það námskeið sem passar, greiðið og þá er allt klappað og klárt). Hægt er að prenta út kvittun í kerfinu og nýta til niðurgreiðslu stéttarfélags eða vinnustaðar. Athugið að færslur frá bókunarkerfinu á bankareikningi eru merkt sem „æfingagjöld“.

Þá er einnig mögulegt að greiða með millifærslu. Greiðsla jafngildir bókun og merkið færsluna „millisumar“. Greiðið inn á reikning 0515-26-530314 kt. 530314-0650 og sendið staðfestingu á einarskula@hotmail.com.
Lágmarksfjöldi í hópnum er 20 en hámarksfjöldi 50 (þau sem taka þátt að hluta teljast sem hálfir).

Þegar bókun er lokið er hægt að sækja um aðgang að lokaða hópnum: https://www.facebook.com/groups/2694476527394856

Afsláttarkjör
Þau sem voru skráð á Vesenisnámskeið vorið 2026 eða eru elli-og örorkulífeyrisþegar. Einnig er fjölskylduafsláttur fyrir meðlim nr. 2 og 3 í fjölskyldu með sama lögheimili (sami afsláttur og fyrrnefndur). Afsláttur er bundinn við allan pakkann. Ekki er afsláttur af blandi í poka eða einungis kvöld- eða dagsgöngum.

SKILMÁLAR
Vesen og vergangur (Vesenisferðir ehf) tryggir hvorki farþega sína né farangur þeirra. Þátttakendur ferðast með á eigin ábyrgð. Félagið hvetur fólk til að kaupa ferða- og slysatryggingar, vera vel útbúið og kynna sér veður áður en lagt er af stað.
Athugið að námskeiðsgjald fæst ekki endurgreitt eftir að námskeið er hafið en hægt er að framselja það til annars.
Fyrirvari er settur um röskun á prógramminu vegna veðurs eða annarra aðstæðna. Ef göngur á reglulegum tímum falla niður þá er réttur áskilinn til að vera með aukagöngur á öðrum vikudögum til að vinna upp tapið og eins að nýta daga í júlí til að klára.
Gert er ráð fyrir að fólk komi sér sjálft á upphafsstað gönguferðanna, en við munum skipuleggja staði til þess að hittast á höfuðborgarsvæðinu svo hægt sé að deila bílum. Fólk deilir svo kostnaði við bílferðirnar.

FEATURED STORY

Göngur eru fyrir alla

Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Suspendisse varius enim in eros elementum tristique. Duis cursus, mi quis viverra ornare, eros dolor interdum nulla.

Discover My Story Categories

Umgengni og umhverfi

Skilmálar

Hreyfihópar

Heilsa og líðan

Göngur fyrir alla!

Ferðir