Tag: högnhöfði

Search my Blog:

Read my Latest Stories

Vorið kemur snemma á Mýrunum og við nýtum okkur það með því að skipuleggja þriggja daga trússaða göngu yfir sjálfar sumarsólstöðurnar um hinar fallegu vatnaslóðir milli Mýra og Dala. Friðsældin er dásamleg, gróðurinn nýbúinn að taka við sér, fuglalífið og birtan í hámarki. Fyrsta dagleiðin fer í að ganga frá Hlíðarvatni að Hítarvatni, annan daginn er gengið yfir að Langavatni og þriðja daginn klárum við gönguna með því að ganga yfir að Vikravatni og þaðan að Hreðavatni og Bifröst. Við verðum létt á okkur enda aðeins með dagpokann á bakinu og hægt er að velja um að gista í skála eða tjalda og farangur verður fluttur á milli næturstaða. Allar nánari upplýsingar hér að neðan.


DAGSKRÁ

20. júní – föstudagur
Við hittumst í Borgarnesi að morgni og losum trúss í kerru. Keyrum svo að Bifröst við Hreðavatn, skiljum bílana eftir og setjumst í rútu með dagpokana okkar og keyrum yfir að Hallkelsstaðahlíð við Hlíðarvatn. Við göngum af stað og vöðum Fossá, Djúpadalsá og Rögnaá og göngum áfram upp í Hellisdal. Ef veður er gott þá tökum við aukagöngu upp á Rögnamúla (ca 100 m hækkun) og skoðum útsýnið þaðan. Þaðan göngum við yfir í Klifsdal og í Hvítingshjöllum meðfram Klifsgili niður að Hítará og að skálanum. Þar bíður trússið eftir okkur og við gistum í skálanum.
Vegalengd göngu ca 12 km og hækkun ca 500 m.

21. júní – laugardagur
Við tökum daginn snemma, hafragrautur verður í boði og kaffi og eftir frágang göngum við inn með Hólminum og þaðan um Þórarinsdal og upp í Gvendarskarð. Þá niður Hafradalinn og í Langavatnsdal. Vöðum svo Langavatnsdalsána og göngum meðfram vatninu að skálanum Torfhvalastöðum þar sem við gistum.
Vegalengd göngu ca 21 km og hækkun ca 600 m.

22. júní – sunnudagur
Við tökum daginn snemma, hafragrautur verður í boði og kaffi og eftir frágang förum við eftir veginum yfir Beilá og svo upp á Beilárheiði. Staldrað er við hjá hinu fallega Vikravatni og svo gengið meðfram Vikrafelli og raunar hægt að fara upp ef vilji er til. Nú opnast útsýni yfir Norðurárdalinn og Borgarfjörðinn og við lækkum okkur niður að Kiðá og þaðan eftir veginum að Hreðavatni og Bifröst. Gaman væri að borða saman í lok göngu. Trússið bíður okkar svo í Borgarnesi.
Vegalengd göngu ca 15,5 km og hækkun ca 500 m.

 

Skálagisting er fyrir 20 manns og gert er ráð fyrir að 10 manns geti bæst við sem verði í tjöldum. Því geta 30 manns að hámarki tekið þátt í ferðinni. Lágmarksfjöldi er 15 manns.

UMSJÓN
Einar Skúlason annast leiðsögn í þessari ferð. Hann stofnaði Vesen og vergang árið 2011 og Wapp – Walking app árið 2015.

LÍKAMLEGT FORM
Þessi gönguleið flokkast sem meðalþung og er því fyrir flesta í sæmilegu formi og börn í efri bekkjum grunnskóla. Góður undirbúningur er að fara upp að Steini eða sambærilegt tvisvar í viku síðustu þrjár vikur fyrir brottför. Hægt er að miða við að komast upp að Steini á rúmum klukkutíma í sumarfæri án þess að verða úrvinda. Muna að hvíla síðustu tvo dagana fyrir ferð. Útbúnaðarlisti verður settur inn á viðburðinn/Fb hópinn með fyrirvara og við verðum með rafrænan undirbúningsfund í apríl/maí.

VERÐ OG BÓKANIR

Verð með skálagistingu kr. 54.000 m/vsk

Verð miðað við tjaldgistingu kr. 42.000 m/vsk

Innifalið: gisting á dýnu í skála eða tjaldað í grennd við skála, rúta frá Hreðavatni að Hlíðarvatni, trúss, hafragrautur og kaffi á morgnana, fararstjórn. Þess má geta að skálabúar þurfa að hjálpast að við frágang og fleira í tengslum við skálagistingu.
Ekki innifalið: nesti eða kvöldmatur og athugið að fólk þarf að koma sér sjálft upp í Borgarfjörð (við getum sameinast í bíla í lokaða Fb hópnum).

Bókanir fara fram á https://www.sportabler.com/shop/vesenisferdir (þið afritið tengilinn og setjið í vafra, skráið ykkur inn og veljið þá gistingu sem passar, veljið greiðslufyrirkomulag og þá er allt klappað og klárt). Það er hægt að dreifa greiðslum á nokkra mánuði og enginn vaxtakostnaður af slíkum ráðstöfunum í Sportabler.

Athugið að ef bókunarkerfið þvælist fyrir ykkur þá er hægt að taka frá pláss í ferðina með því að greiða staðfestingargjald kr. 10.000 inn á reikning: 515-26-530314. Kt. 530314-0650. Senda afrit á einarskula@hotmail.com og merkja „Vatngist“ eða „Vatntjald“ (eftir því hvort þið viljið vera í skála eða tjaldi). Muna að fullgreiða sex vikum fyrir brottför.

Þegar búið er að bóka ferð þá er hægt að sækja um aðgang að lokuðum hóp á Facebook. Þar verða ýmsar praktískar upplýsingar fyrir ferð og fleira.

SKILMÁLAR
Ígildi staðfestingargjalds í þessa ferð er kr. 10.000 og er innifalið í heildarverði ferðarinnar. Aldrei er hægt að fá staðfestingargjald endurgreitt en hægt er að framselja fullgreidda ferð til nýs farþega sem kemur inn og tekur sætið og fylgir þá staðfestingargjaldið með (ferðin þarf að hafa verið greidd að fullu áður).
Fargjald þarf að greiða að fullu a.m.k. 6 vikum fyrir brottför (10. maí). Ef greiðsla hefur ekki borist innan settra tímamarka má búast við að ferðin verði seld öðrum.

Um afbókanir gilda annars eftirfarandi reglur:
Afbókun innan 7 daga frá bókun og meira en 21 degi fyrir brottför: Ferð endurgreidd að staðfestingargjaldi frátöldu.
Afbókun 20-8 dögum fyrir brottför: 50% fargjalds endurgreidd.
Afbókun 7-4 dögum fyrir brottför: 25% fargjalds endurgreidd.
Afbókun 3 dögum fyrir brottför og fram að ferð: Engin endurgreiðsla.
Breytingar: Áskilinn er réttur til að hætta við, fresta ferð eða breyta áætlun vegna veðurs eða annarra utanaðkomandi aðstæðna, svo og ef ekki fæst næg þátttaka. Ef þarf að fella niður ferð er full endurgreiðsla.
Tryggingar: Tryggingar eru fyrir hendi eins og ferðaskrifstofuleyfi gerir ráð fyrir. Farþegar eru engu að síður hvattir til að huga að tryggingarmálum og hafa ferða- og slysatryggingar í lagi.

Þetta er fjögurra daga ferðalag þar sem við förum um stórkostlegt landslag við ystu strandir, jarðtengjum okkur, skoðum og hlustum á náttúruna og fáum ferskt sjávarloft í vitin allan daginn. Við fylgjumst með rebba og ótrúlegu fuglalífi, sjáum öldurnar skella á klettaströndum og setjum okkur í spor þeirra sem bjuggu á þessum slóðum með því að rifja upp sögur af þeim um leið og við göngum. Við göngum dagleið fyrsta daginn í Hornbjargsvita og höldum á nesti til fjögurra daga, svefnpoka og þess háttar en kvöldmatur og morgunmatur er sameiginlegur og bíður okkar í vitanum. Haldinn verður undirbúningsfundur í apríl/maí þar sem farið verður vel yfir dagskrá, undirbúning, búnað og fleira.

DAGSKRÁ

Mánudagur 7. júlí             Bolungarvík – Lónafjörður – Hornbjargsviti

Siglt að morgni frá Bolungarvík í Miðkjós í Lónafirði. Þaðan sem gengin verður yfir Snókaheiði að Hornbjargsvita í Látravík. Munum halda á svefnpoka, fatnaði og nesti til fjögurra daga fyrsta daginn og hafa bækistöð í vitanum í þrjár nætur en léttum pokann fyrir dagsgöngur tveggja daga. Athugið að í boði verður sameiginlegur kvöldmatur og morgunmatur sem verður í skálanum. Þátttakendur í ferðinni skipta með sér verkum í eldamennsku og frágangi.

Vegalengd þennan fyrsta dag er ca 13 km og ca 700m hækkun.

 

Þriðjudagur 8. júlí             Hornbjargsviti – Hornbjarg – Hornvík

Gengið á Hornbjarg og ef vel viðrar er stefnt að því að ganga með endilangri bjargbrúninni. Ef aðstæður eru góðar er boðið upp á aukagöngu á Kálfatind en þaðan er stórfenglegt útsýni í björtu veðri. Það er einnig magnað útsýni af Miðfelli sem er hluti af hringnum okkar. Eftir Hornbjarg er er gengið framhjá Hornbæjunum og til baka í Hornbjargsvita um Almenningaskarð. Þessi dagleið er um 20 km löng og heildar hækkun ríflega 1000m.

Við víxlum degi 2 og 3 ef það er hagstætt út frá veðurspá.

 

Miðvikudagur 9. júlí        Hornbjargsviti og nágrenni

Hér er margt að sjá og við eigum eftir að útfæra hvert verður farið miðað við veður. Í nágrenni vitans eru t.d. magnaðar bergmyndanir, eins og Blakkibás, Trogið og Fjalirnar, sem eru 60m háir berggangar sem rísa tígulega upp úr fjörunni. Mögulega tökum við góða göngu yfir í Hornvík og skoðum hana vel og hinn möguleikinn er að ganga um Axarfjall yfir í Hrolleifsvík og út á Bjarnarnes og um leið má ganga að fossinum Drífanda, sem fellur í sjó fram af 50m hárri bjargbrún. Það er því ekki ljóst með vegalengd og hækkun þennan dag.

 

Fimmtudagur 10. júlí       Hornbjargsviti – Veiðileysufjörður

Við göngum frá Hornbjargsvita um Kýrskarð og niður í Hornvík og vöðum Hafnarósinn, sem er sendinn og þægilegur undir fót. Þaðan förum við upp í Hafnarskarð og áfram niður í botn Veiðileysufjarðar þar sem báturinn sækir okkur og skilar til baka á hafnarbakkann í Bolungarvík. Vegalengd þennan dag er 16 km og um 700m hækkun.


LÍKAMLEGT FORM

Hver og einn þarf að koma með svefnpoka og nesti fyrir alla dagana og fyrstu dagleiðina þarf að bera þetta á bakinu í skálann. Trúss er ekki í boði. Þetta er því nokkuð krefjandi ferð og mikilvægt að þátttakendur æfi vel vikurnar á undan. Varðandi æfingar er gott að taka tvær ferðir á viku upp að Steini síðustu sex vikur fyrir göngu eða sambærilegt. Notið bakpokann sem þið farið með á Hornstrandir og hafið a.m.k. 5 kg pokanum (flöskur með vatni til að þyngja pokann og þá er hægtað hella vatninu ef eitthvað kemur upp á).

Umsjón

Einar Skúlason annast leiðsögn í þessari ferð. Hann stofnaði Vesen og vergang árið 2011 og Wapp – Walking app árið 2015 og hefur leitt fjölmargar Hornstrandagöngur og gönguferðir um allt land.

VERÐ OG BÓKANIR

Verð 116.000 m/vsk

Innifalið: sigling, gisting í skála, kvöldmatur þrjú kvöld og hafragrautur og kaffi á morgnana og fararstjórn/leiðsögn.

Bókanir fara fram á https://www.sportabler.com/shop/vesenisferdir (þið afritið tengilinn og setjið í vafra, skráið ykkur inn og veljið þá gistingu sem passar, veljið greiðslufyrirkomulag og þá er allt klappað og klárt). Það er hægt að dreifa greiðslum á nokkra mánuði og enginn vaxtakostnaður af slíkum ráðstöfunum í bókunarkerfinu.

Millifærsla: Athugið að ef bókunarkerfið þvælist fyrir ykkur er hægt að taka frá pláss í ferðina með því að greiða staðfestingargjald kr. 18.000 inn á reikning: 515-26-530314. Kt. 530314-0650. Senda afrit á einarskula@hotmail.com og merkja „hornbjarg“. Muna að fullgreiða í síðasta lagi sex vikum fyrir brottför (26. maí).

Þegar búið er að bóka ferð þá er hægt að sækja um aðgang að lokuðum hóp á Facebook. Þar verða ýmsar praktískar upplýsingar fyrir ferð og fleira.

Í fyrri ferðum hefur verið hægt að lækka verð fyrir aðildarfélaga Ferðafélags Íslands. Það er því miður ekki lengur leyft og því eru allir á sama verði.

SKILMÁLAR

Ígildi staðfestingargjalds í þessa ferð er kr. 18.000 og er innifalið í heildarverði ferðarinnar. Aldrei er hægt að fá staðfestingargjald endurgreitt en hægt er að framselja fullgreidda ferð til nýs farþega sem kemur inn og tekur sætið og fylgir þá staðfestingargjaldið með (ferðin þarf að hafa verið greidd að fullu áður).

Fargjald þarf að greiða að fullu a.m.k. 6 vikum fyrir brottför (26. maí). Ef greiðsla hefur ekki borist innan settra tímamarka má búast við að ferðin verði seld öðrum.

Um afbókanir gilda annars eftirfarandi reglur:

Afbókun innan 7 daga frá bókun og meira en 21 degi fyrir brottför: Ferð endurgreidd að staðfestingargjaldi frátöldu.

Afbókun 20-8 dögum fyrir brottför: 50% fargjalds endurgreidd.

Afbókun 7-4 dögum fyrir brottför: 25% fargjalds endurgreidd.

Afbókun 3 dögum fyrir brottför og fram að ferð: Engin endurgreiðsla.

Breytingar: Áskilinn er réttur til að hætta við, fresta ferð eða breyta áætlun vegna veðurs eða annarra utanaðkomandi aðstæðna, svo og ef ekki fæst næg þátttaka. Ef þarf að fella niður ferð er full endurgreiðsla.

Tryggingar: Tryggingar eru fyrir hendi eins og ferðaskrifstofuleyfi gerir ráð fyrir. Farþegar eru engu að síður hvattir til að huga að tryggingarmálum og hafa ferða- og slysatryggingar í lagi.

Dagana 15.-18. júlí munum við fara um hin stórkostlegu Lónsöræfi í fjögurra daga gönguferð þar sem skriðjöklar, djúp gil og þröngir dalir blandast saman við litadýrð og fjölbreyttar klettamyndanir. Gengið verður af stað frá Sauðárvatni um efstu drög Víðidals og að Kollumúlavatni þar sem við gistum í tvær nætur og göngum um Víðidal og Tröllakróka. Þaðan göngum við niður í Múlaskála og tökum göngu um hin litríku Víðibrekkusker. Eftir gistingu í Múlaskála er gengið með Jökulsá niður í Lón. Gist verður í skálum og kvöldmatur ásamt hafragraut og kaffi á morgnana innifalinn í verði. Leiðsögn er í höndum Einars Skúlasonar sem hefur leiðsagt margoft um Lónsöræfi og víða um land.

DAGSKRÁ

Mánudagurinn 14. júlí
Athugið að vera komin austur í Lón eða nágrenni mánudagskvöldið 14. júlí. Búið er að bóka gistingu á Stafafelli fyrir þau sem vilja og hægt að vera í uppbúnu eða í svefnpokaplássi (ekki innifalið). Stefnum á að skutla bílum í Smiðjunes um kvöldið.

Þriðjudagurinn 15. júlí
Komum saman snemma við Stafafell í Lóni, skiljum bíla eftir þar (verðum búin að skutla einum eða fleiri bílum upp í Smiðjunes) og tökum rútu kl. 8 um rúmlega fjögurra tíma leið (með stoppum) á Hérað og upp á Fljótsdalsheiði. Hefjum gönguferðina skammt vestan við Sauðárvatn og göngum gamla varðaða leið niður í Víðidalsdrög og vöðum Víðidalsána á Norðlingavaði og göngum að Kollumúlavatni þar sem skálinn Egilssel er og gistum þar næstu tvær nætur. Við eldum okkur sameiginlegan kvöldmat og höldum kvöldvöku.
Vegalengd göngu 17,5 km og ca 500 m heildarhækkun.

Miðvikudagurinn 16. júlí
Eftir frískandi hafragraut og kaffisopa þá tökum við göngu niður í Víðidal, skoðum Náttmálafoss og nýtum okkur nýju göngubrúna til að komast yfir Víðidalsána og skoða tóftir Grundar þar sem búið var um skeið. Við snúum svo aftur í skálann og fáum okkur hressingu. Svo er komið að því að ganga að Tröllakrókum og við göngum fyrst upp á Tröllakrókahnaus og svo meðfram Tröllakrókum og njótum þess stórkostlega útsýnis sem þarna má sjá. Að sjálfsögðu tökum við bara nesti og viðlegubúnað fyrir daginn í þessum göngum svo að bakpokarnir verða léttir. Svo snúum við aftur í Egilssel og eldum kvöldmat og njótum samveru á kvöldvökunni.
Gangan í Víðidal er um 5 km og 350 m heildarhækkun.
Gangan í Tröllakróka er um 9 km og ca 350 m heildarhækkun.

Fimmtudagurinn 17. júlí
Eftir hafragraut og kaffi og frágang skálans þá göngum við niður að Múlaskála á bökkum Jökulsár. Þar léttum við bakpokana og öxlum þá aftur með nesti í dagsgöngu upp að Víðibrekkuskerjum.
Gistum í skálanum um nóttina og er hægt er að fara í sturtu í Múlaskála (kostar kr. 500 og þarf ekki að borga í klinki). Sameiginlegur matur um kvöldið og kvöldvaka.
Vegalengd niður að Múlaskála er 7,5 km og 200 m heildarhækkun (mun meiri lækkun).
Víðibrekkuskerjahringur er ca 10 km og 850 m heildarhækkun.

Föstudagurinn 18. júlí
Eftir graut og kaffi er gengið frá Múlaskáli yfir göngubrúna á Jökulsá og þaðan upp á Illakamb og sem leið liggur í Gvendarnes/Smiðjunes. Þetta er talsvert löng dagleið og auk þess mikið upp og niður en áfram fylgir litadýrðin okkur og gróðurflesjur. Í Smiðjunesi verða einn eða fleiri bílar frá okkur sem við notum til að ferja bílstjóra og sækja bílana við Stafafell. Vegalengd ca 19-21 km og ca 750-900 m heildarhækkun (fer eftir því hvar bílarnir verða).

UNDIRBÚNINGUR
Það er nauðsynlegt að undirbúa sig vel líkamlega fyrir gönguna með æfingum með bakpoka. Taka þarf göngur með góðri hækkun og hafa nokkur kíló í bakpokanum (vatnsflöskur). Nánar verður farið yfir útbúnað og fyrirkomulag á undirbúningsfundinum sem verður haldinn í vor.

VERÐ OG BÓKANIR

Verð kr. 84.000 á mann m/vsk

Innifalið: rúta, skálagisting í þrjár nætur með svefnpokaleigu (takið með lakpoka), hafragrautur og kaffi á morgnana og kvöldmatur öll kvöldin (maturinn verður að miklu leyti kominn í skálana), skipulagning og leiðsögn.
Þess má geta að öll þurfa að hjálpast að við eldamennsku, frágang, vatnsburð, kyndingu og fleira í tengslum við skálagistinguna. Fólk sér sjálft um nesti. Það er ekki hægt að vera með trúss á þessari leið. Athugið að fyrir þau sem eru í tjaldi þá er tjaldsvæði og aðstöðugjald í skála innifalið.

Bókanir fara fram á https://www.sportabler.com/shop/vesenisferdir (þið afritið tengilinn og setjið í vafra, skráið ykkur inn og veljið þá gistingu sem passar, veljið greiðslufyrirkomulag og þá er allt klappað og klárt). Það er hægt að dreifa greiðslum á nokkra mánuði og enginn vaxtakostnaður af slíkum ráðstöfunum í sportabler.
Millifærsla: Athugið að ef bókunarkerfið þvælist fyrir ykkur er hægt að taka frá pláss í ferðina með því að greiða staðfestingargjald kr. 14.000 inn á reikning: 515-26-530314. Kt. 530314-0650. Senda afrit á einarskula@hotmail.com og merkja lonsoraefi. Muna að fullgreiða sex vikum fyrir brottför (3. júní).

Þegar búið er að bóka ferð er hægt að sækja um aðild að lokaða hópnum. Þar verða margvíslegar upplýsingar fyrir ferð.
Hámarksfjöldi í ferðina er 19 manns. Lágmarksfjöldi 12 manns.

SKILMÁLAR
Ígildi staðfestingargjalds í þessa ferð er kr. 14.000 og er innifalið í heildarverði ferðarinnar. Aldrei er hægt að fá staðfestingargjald endurgreitt en hægt er að framselja fullgreidda ferð til nýs farþega sem kemur inn og tekur sætið og fylgir þá staðfestingargjaldið með (ferðin þarf að hafa verið greidd að fullu áður).
Fargjald þarf að greiða að fullu a.m.k. 6 vikum fyrir brottför (3. júní). Ef greiðsla hefur ekki borist innan settra tímamarka má búast við að ferðin verði seld öðrum.

Um afbókanir gilda annars eftirfarandi reglur:
Afbókun innan 7 daga frá bókun og meira en 21 degi fyrir brottför: Ferð endurgreidd að staðfestingargjaldi frátöldu.
Afbókun 20-8 dögum fyrir brottför: 50% fargjalds endurgreidd.
Afbókun 7-4 dögum fyrir brottför: 25% fargjalds endurgreidd.
Afbókun 3 dögum fyrir brottför og fram að ferð: Engin endurgreiðsla.
Breytingar: Áskilinn er réttur til að hætta við, fresta ferð eða breyta áætlun vegna veðurs eða annarra utanaðkomandi aðstæðna, svo og ef ekki fæst næg þátttaka. Ef þarf að fella niður ferð er full endurgreiðsla.
Tryggingar: Tryggingar eru fyrir hendi eins og ferðaskrifstofuleyfi gerir ráð fyrir. Farþegar eru engu að síður hvattir til að huga að tryggingarmálum og hafa ferða- og slysatryggingar í lagi.

Leggjabrjótur er gömul og fjölfarin þjóðleið á milli Þingvalla og Hvalfjarðar og við ætlum að fara þessa ferð laugardaginn 28. júní (sunnudagur er til vara vegna veðurs).
Leiðin er vörðuð og vel greiðfær þrátt fyrir nafnið, en um miðbik hennar er nokkur hundruð metra kafli sem er grýttur og er það hinn eiginlegi Leggjabrjótur. Ekki eru mörg dæmi um óhöpp hjá fólki á þessum grýtta kafla en nafnið kemur af því að hestar áttu það til að fótbrotna á þessum kafla ef ekki var farið varlega. Í góðu skyggni er fallegt útsýni yfir Þingvallasvæðið og sömuleiðis er frábært útsýni yfir Hvalfjörðinn. Þetta eru söguslóðir og sagt verður frá ýmsu markverðu og örnefnunum á leiðinni.

Vegalengd : um 17 km
Hækkun: 450 m (hæsti punktur á leið er 500 m)
Göngutími: ca 6 tímar

Brynjudalur og Hvalfjörður

FYRIRKOMULAGIÐ
Við tökum rútu við prentsmiðju Morgunblaðsins í Hádegismóum kl. 8:30. Rútan skutlar okkur að upphafsstað og sækir okkur á áfangastað. Hægt er að geyma aukadót eins og t.d. skó, sokka eða önnur föt eða aukanesti í rútunni á meðan við göngum og því hægt að komast í það aftur þegar við komum að rútunni í lokin. Við komum aftur í bæinn síðdegis.

UNDIRBÚNINGUR OG ÚTBÚNAÐUR
Gert er ráð fyrir að þátttakendur séu í æfingu til að takast á við svona göngu. Gott er að fara tvær ferðir upp að Steini síðustu tíu dagana fyrir ferð en hvíla einn til tvo daga fyrir sjálfa ferðina.
Verið klædd eftir veðri og takið með næringarríkt nesti. Það verður hægt að fylla á vatnsflöskur á leiðinni. Á fimmtudegi fyrir göngu verður sendur tölvupóstur á þátttakendur með upplýsingum um veðurhorfur og ráðleggingum varðandi búnað.

Öxará og Þingvallavatn

VERÐ OG BÓKANIR

Verð í ferðina er kr. 14.000 m/vsk

Innifalin er rútuferðin fram og til baka og leiðsögn.

Bókanir fara fram á https://www.sportabler.com/shop/vesenisferdir (þið skráið ykkur inn og greiðslufyrirkomulag og þá er allt klappað og klárt). Athugið að það er ekki í boði að bóka ferð með því að greiða einungis staðfestingargjald. Það er hins vegar hægt að dreifa greiðslum á nokkra mánuði og enginn vaxtakostnaður af slíkum ráðstöfunum í sportabler.
Ef þið lendið í vandræðum með sportabler þá er hægt að senda póst á einarskula@gmail.com til að fá bankaupplýsingar vegna millifærslu.

Fossarnir í Hvalskarðsá og Botnssúlur

 

SKILMÁLAR

Ígildi staðfestingargjalds í þessa ferð er kr. 4.000 og er hluti af verði ferðarinnar. Aldrei er hægt að fá staðfestingargjald endurgreitt en hægt er að framselja fullgreidda ferð til nýs farþega sem kemur inn og tekur sætið og fylgir þá staðfestingargjaldið með. Fargjald þarf að greiða að fullu a.m.k. 6 vikum fyrir brottför. Ef greiðsla hefur ekki borist innan settra tímamarka má búast við að ferðin verði seld öðrum.

Um afbókanir gilda annars eftirfarandi reglur:
Afbókun innan 7 daga frá bókun og meira en 21 degi fyrir brottför: Ferð endurgreidd að staðfestingargjaldi frátöldu.
Afbókun 20-8 dögum fyrir brottför: 50% fargjalds endurgreidd.
Afbókun 7-4 dögum fyrir brottför: 25% fargjalds endurgreidd.
Afbókun 3-0 dögum fyrir brottför: Engin endurgreiðsla.
Breytingar: Áskilinn er réttur til að hætta við, fresta ferð eða breyta áætlun vegna veðurs eða annarra utanaðkomandi aðstæðna, svo og ef ekki fæst næg þátttaka. Ef ferð er felld niður kemur full endurgreiðsla.
Tryggingar: Tryggingar eru fyrir hendi eins og ferðaskrifstofuleyfi gerir ráð fyrir. Farþegar eru engu að síður hvattir til að huga að tryggingarmálum og hafa ferða- og slysatryggingar í lagi.

Grýtti kaflinn sem gaf leiðinni nafn sitt.

Frá stofnun Vesens og vergangs höfum við yfirleitt farið árlega ferð um Kattartjarnaleiðina og þetta er líklega þrettánda árið sem Vesenisferð er auglýst um þessa fallegu leið. Það er gaman að segja frá því að hún var í fyrsta sinn kölluð Kattartjarnaleið á vettvangi Vesens og vergangs.

Í Tindgili á Kattartjarnaleið

LÝSING Á LEIÐINNI
Gengið er upp með Ölfusvatnsánni og hún vaðin (þægilegt er að vera vaðskó meðferðis, t.d. gamla strigaskó eða crocs). Ölfusvatnsárgljúfrin innihalda fjölbreyttar bergmyndanir, útskot og klettastalla sem gaman er að virða fyrir sér á leiðinni. Svo förum við um fallegt Tindgilið austan megin við Hrómundartind, tökum á okkur krók til að sjá Kattartjarnir og förum svo meðfram Álftatjörn og neðan við Dalaskarðshnúk með útsýni yfir Reykjadal og um Dalaskarð upp á Dalafell til að athuga enn betur með útsýnið. Þaðan yfir Dalafellið og niður Grændalsmegin og göngum undir Eggjum og um falleg hverasvæði þangað til við komum að Grændalsánni rétt ofan við Þrengsli og þaðan niður á Reykjadalsbílastæðið. Að sjálfsögðu verður sagt frá ýmsu athyglisverðu á leiðinni og af nógu að taka.

 

VEGALENGD OG TÍMI
Vegalengd göngu er ca 16,5 km og uppsöfnuð hækkun á leiðinni er ca 500 m. Göngutími með stoppum er ca 6 tímar.

Þessi ganga verður laugardaginn 14. júní. Til vara er sunnudagurinn ef veður reynist slæmt á laugardeginum. Gert er ráð fyrir að ganga af stað Grafningsmegin. Ef vindur blæs að sunnan eða austan þá gæti göngu verið snúið við til að hafa vindinn í bakið.

Gert er ráð fyrir að þátttakendur séu í æfingu til að takast á við svona göngu. Gott er að miða við að geta farið upp að Steini í sumarfæri á klukkutíma.

BROTTFARARSTAÐUR
Brottför frá Hádegismóum kl. 8:30 (fólk leggur bílum á bak við prentsmiðju Morgunblaðsins).

Rútan skutlar okkur að upphafsstað og sækir okkur á áfangastað. Hægt er að geyma aukadót eins og t.d. skó, sokka eða önnur föt eða aukanesti í rútunni á meðan við göngum og því hægt að komast í það aftur þegar við komum að rútunni í lokin. Við getum gert ráð fyrir að koma síðdegis (um fimmleytið) í bæinn eftir göngu.

 

VERÐ OG BÓKANIR

Verð í ferðina er kr. 14.000 m/vsk

Innifalið er rútuferðin fram og til baka frá Reykjavík og leiðsögn.

Bókanir fara fram á https://www.sportabler.com/shop/vesenisferdir (þið afritið tengilinn og setjið í vafra, skráið ykkur inn, veljið greiðslufyrirkomulag og þá er allt klappað og klárt). Það er hægt að dreifa greiðslum á nokkra mánuði og enginn vaxtakostnaður af slíkum ráðstöfunum í sportabler.

Þá er einnig mögulegt að greiða með millifærslu. Greiðsla jafngildir bókun og merkið færsluna „Kattar“. Greiðið inn á reikning 0515-26-530314 kt. 530314-0650 og sendið staðfestingu á einarskula@hotmail.com.

Lágmarksfjöldi 20 manns og hámarksfjöldi 35 manns.

Þarna sjást Kattartjarnirnar báðar.

SKILMÁLAR
Ígildi staðfestingargjalds í þessa ferð er kr. 3.000 og er hluti af verði ferðarinnar. Aldrei er hægt að fá staðfestingargjald endurgreitt en hægt er að framselja bókunina/sætið til nýs farþega ef fargjald hefur verið að fullu greitt áður og fylgir þá staðfestingargjaldið með. Ef greiðsla hefur ekki borist innan settra tímamarka má búast við að ferðin verði seld öðrum.

Um afbókanir gilda annars eftirfarandi reglur:

Afbókun innan 7 daga frá bókun og meira en 21 degi fyrir brottför: Ferð endurgreidd að staðfestingargjaldi frátöldu.

Afbókun 20-8 dögum fyrir brottför: 50% fargjalds endurgreidd.

Afbókun 7-4 dögum fyrir brottför: 25% fargjalds endurgreidd.

Afbókun 3-0 dögum fyrir brottför: Engin endurgreiðsla.

Breytingar: Áskilinn er réttur til að hætta við, fresta ferð eða breyta áætlun vegna veðurs eða annarra utanaðkomandi aðstæðna, svo og ef ekki fæst næg þátttaka. Ef ferðin er felld niður er hún endurgreidd.

Tryggingar: Tryggingar eru fyrir hendi eins og ferðaskrifstofuleyfi gerir ráð fyrir. Farþegar eru engu að síður hvattir til að huga að tryggingarmálum og hafa ferða- og slysatryggingar í lagi.

 

Við ætlum að ganga Fimmvörðuháls laugardaginn 12. júlí (sunnudagurinn 13. júlí er til vara ef veðurspá er slæm fyrir laugardaginn).

Mjög vinsælt er að ganga frá Skógum milli Eyjafjallajökuls og Mýrdalsjökuls yfir Fimmvörðuháls yfir í Goðaland og Þórsmörk. Nafnið er dregið af fimm vörðum er stóðu þar nokkuð þétt til að vísa leiðina í dimmviðri. Fyrrum ráku bændur undir Austurfjöllum ær sínar þarna um yfir í grösuga sumarhaga en því var hætt árið 1917. Að mestu leyti er þó gott að fara Fimmvörðuhálsinn og stálpuð börn fara gjarnan þessa gönguleið með foreldrum sínum. Vorið 2010 gaus á Fimmvörðuhálsi og mynduðust gígarnir Magni og Móði og rann hraun yfir gamla slóðann. Sá nýi liggur um hraunið og hægt er að fara upp á annan eða báða gígana. Stórkostlegt útsýni opnast þegar leiðin fer að lækka niður í Þórsmörk og lætur fáa ósnortna.

Við tökum rútu frá Reykjavík (Hádegismóum við prentsmiðju Morgunblaðsins) kl. 7 að morgni og göngum upp frá Skógum. Í Básum bíður rúta og við komum því aftur í bæinn um kvöldið. Reynslan sýnir að við komum á bilinu kl. 22 til miðnættis í bæinn.


UNDIRBÚNINGUR

Gangan frá Skógum og yfir Fimmvörðuháls að Básum er ca 23 km, uppsöfnuð hækkun ca 1100 m og göngutími 9-12 tímar (fer eftir aðstæðum). Það segir sig sjálft að fólk þarf að vera líkamlega tilbúið í svona áreynslu, sem samsvarar því að ganga tvisvar í röð upp að Steini í Esjunni og bæta nokkurri vegalengd við það í snjó. Þannig að æfingar eru nauðsynlegar fyrir ferðina og best að æfa sig í göngu. Upplagt er að fara fimm sinnum upp að Steini eða sambærilegt síðustu þrjár til fjórar vikurnar fyrir ferð. Munið að hvíla síðustu tvo dagana fyrir ferð.

 

NESTI OG ÚTBÚNAÐUR

Takið með ykkur gott nesti og fínt að hafa viðbótarbita í rútunni til að eiga eftir göngu (að auki má geyma aukaskó og föt í rútunni til að eiga eftir göngu). Einnig þarf að vera vel útbúin, í góðum skóm sem þola að ganga í blautum snjó, vera með skel í bakpokanum sem þolir vind og vætu, vera með einangrandi millilag og með góða húfu og vettlinga. Takið með aukapeysu eða létta úlpu til að klæðast í nestinu. Göngustafir geta gagnast enda draga þeir úr álagi á hné og mjaðmir.

VERÐ OG BÓKANIR

Verð í ferðina er kr. 25.000 m/vsk.

Innifalið: Rúta frá Reykjavík og til baka og leiðsögn.

Bókanir fara fram á https://www.sportabler.com/shop/vesenisferdir (þið smellið á tengilinn, skráið ykkur inn og veljið það námskeið sem passar, greiðið og þá er allt klappað og klárt). Hægt er að prenta út kvittun í kerfinu og nýta til niðurgreiðslu stéttarfélags- eða vinnustaðar. Athugið að færslur frá bókunarkerfinu á bankareikningi eru merkt sem „æfingagjöld“.

Þá er einnig mögulegt að greiða með millifærslu. Greiðsla jafngildir bókun. Greiðið inn á reikning 0515-26-530314 kt. 530314-0650 og sendið staðfestingu merkt „5vörðu12“ á einarskula@hotmail.com.

SKILMÁLAR

Ígildi staðfestingargjalds í þessa ferð er kr. 7.200 og er hluti af verði ferðarinnar. Aldrei er hægt að fá staðfestingargjald endurgreitt en hægt er að framselja fullgreidda ferð til nýs farþega sem kemur inn og tekur sætið og fylgir þá staðfestingargjaldið með. Fargjald þarf að greiða að fullu a.m.k. sex vikum fyrir brottför. Ef greiðsla hefur ekki borist innan settra tímamarka má búast við að ferðin verði seld öðrum.

Afbókanir: Um afbókanir gilda annars eftirfarandi reglur:
Afbókun innan 7 daga frá bókun og meira en 21 degi fyrir brottför: Ferð endurgreidd að staðfestingargjaldi frátöldu.
Afbókun 20-8 dögum fyrir brottför: 50% fargjalds endurgreidd.
Afbókun 7-4 dögum fyrir brottför: 25% fargjalds endurgreidd.
Afbókun 3-0 dögum fyrir brottför: Engin endurgreiðsla.

Breytingar: Áskilinn er réttur til að hætta við, fresta ferð eða breyta áætlun vegna veðurs eða annarra utanaðkomandi aðstæðna, svo og ef ekki fæst næg þátttaka. Ef ferð er felld niður er full endurgreiðsla til farþega.

Tryggingar: Tryggingar eru fyrir hendi eins og ferðaskrifstofuleyfi gerir ráð fyrir. Farþegar eru engu að síður hvattir til að huga að tryggingarmálum og hafa ferða- og slysatryggingar í lagi.

Einn af fjölmörgum fossum í Skógá er Skálabrekkufoss sem sést þarna í sinni glæsilegu umgjörð.

FEATURED STORY

Göngur eru fyrir alla

Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Suspendisse varius enim in eros elementum tristique. Duis cursus, mi quis viverra ornare, eros dolor interdum nulla.

Discover My Story Categories

Umgengni og umhverfi

Skilmálar

Hreyfihópar

Heilsa og líðan

Göngur fyrir alla!

Ferðir

More Stories from Archive