Toppar á Snæfellsnesi 7.-9. ágúst 2026

Við ætlum í þriggja daga krefjandi ferð með allt á bakinu um hálendi Snæfellsness 7.-9. ágúst og munum safna toppum á leiðinni. Við verðum mestalla ferðina í þeirri hæð að útsýni verður stórfenglegt bæði út á Breiðafjörð og Faxaflóa, en einnig yfir dali, tinda, gil og láglendið fyrir neðan.

Meðal tinda sem við gætum toppað eru Rjúpnaborgir, Einbúi, Böðvarskúla og Helgrindur, Rauðakúlur, Hvítihnúkur, Svartihnúkur, Hólahlíðareggjar, Hólstindar og Tröllatindar svo eitthvað sé nefnt. Fleiri toppar gætu bæst við og einhverjir dottið út, allt eftir aðstæðum og veðri.

Vegalengd í heildina er áætluð um 45 km og hækkun um 2500 m. Þar sem við verðum með allt á bakinu þá erum við sveigjanleg með lengd dagleiða og getum lagað ferðina jafnóðum að veðri og aðstæðum. Undirlag er mjög fjölbreytt en að jafnaði eru það melar, grýttir kaflar og bæði aflíðandi og bratt. Við munum sneiða hjá miklum bratta eins og kostur er.

Upphafsstaður er við Hraunsfjarðarvatn á Vatnaleiðinni og lokastaður á Fróðárheiði. Við víxlum upphafs- og lokastað ef vindátt gefur ástæðu til.

Haustmynd tekin af Horni við Vatnaleið. Horft í suðvestur í áttina að Tröllatindum.

DAGSKRÁ

Haldinn verður undirbúningsfundur í maí þar sem fjallað verður nánar um ferðina, útbúnað, undirbúning og fyrirkomulag. Fararstjórn er í höndum Einars Skúlasonar og Jóns Trausta.

Við þurfum að áætla fjölda bíla út frá stærð hópsins í aðdraganda ferðar. Lagt verður af stað frá höfuðborgarsvæðinu kl. 9 á föstudagsmorgni. Bílar verða skildir eftir á Fróðárheiði, ekið yfir að Vatnaleið og gengið af stað þaðan.

Föstudagur 7. ágúst
Áætluð vegalengd: um 11 km
Áætluð hækkun: um 900 m

Laugardagur 8. ágúst
Áætluð vegalengd: um 17 km
Áætluð hækkun: um 700 m

Sunnudagur 9. ágúst
Áætluð vegalengd: um 17 km
Áætluð hækkun: um 900 m

Í lok ferðar þarf að skutla bílstjórum til að sækja bíla áður en haldið verður suður aftur.

Þarna sést í Kirkjufellið úr skarðinu sem ber ólík nöfn eftir því hvort þú ert sunnan eða norðan megin.

UNDIRBÚNINGUR

Það er mikilvægt að æfa sig fyrir ferðina enda eru þetta þrír krefjandi göngudagar í röð með allt á bakinu og vöðvar og liðir þurfa að vera tilbúnir til að takast á við álagið. Takið einhvers konar prógramm vikurnar fyrir ferð með góðri hækkun. Það má til dæmis taka tvær ferðir á viku upp að Steini í Esju í nokkrar vikur fyrir ferð með vaxandi þyngd í bakpokanum.  Miða skal við að vera ekki lengur en klukkutíma og tíu mínútur að ná upp að Steini og líða þá vel og vera til í að ganga lengra upp.

Vetrarmynd tekin sunnan undir Helgrindum. Horft í vestur í átt að Snæfellsjökli.

VERÐ OG BÓKANIR

 

Verð kr. 46.000 á mann m/vsk

Innifalið: skipulagning og leiðsögn.

 

Bókun fer fram í Abler  (Skráið ykkur inn sem notendur, veljið ferðina og greiðslufyrirkomulag og þá er bókunin klár).

Athugið að ekki er í boði að bóka ferðina með því að greiða eingöngu staðfestingargjald í bókunarkerfinu. Hins vegar er hægt að dreifa greiðslum á nokkra mánuði.

Millifærsla
Ef bókunarkerfið þvælist fyrir er hægt að tryggja sér pláss með því að greiða staðfestingargjald, kr. 9.600, inn á reikning:

  • Reikningur: 515-26-530314
  • Kt.: 530314-0650

Senda þarf staðfestingu á greiðslu á einarskula@hotmail.com og merkja „toppar“.

Athugið að fullgreiða þarf ferðina sex vikum fyrir brottför, eða fyrir 26. júní.

Hámarksfjöldi þátttakenda: 25    Lágmarksfjöldi: 10

 

Vetrarmynd tekin af Hvítahnúki og horft í vestur. Snæfellsjökull sést og Grundarfjörður.

SKILMÁLAR

Ígildi staðfestingargjalds í þessa ferð er kr. 9.600 og er innifalið í heildarverði ferðarinnar. Aldrei er hægt að fá staðfestingargjald endurgreitt en hægt er að framselja fullgreidda ferð til nýs farþega sem kemur inn og tekur sætið og fylgir þá staðfestingargjaldið með (ferðin þarf að hafa verið greidd að fullu áður).

Fargjald þarf að greiða að fullu a.m.k. 6 vikum fyrir brottför (26. júní). Ef greiðsla hefur ekki borist innan settra tímamarka má búast við að ferðin verði seld öðrum.

 

Um afbókanir gilda annars eftirfarandi reglur:

Afbókun innan 7 daga frá bókun og meira en 21 degi fyrir brottför: Ferð endurgreidd að staðfestingargjaldi frátöldu.

Afbókun 20-8 dögum fyrir brottför: 50% fargjalds endurgreidd.

Afbókun 7-4 dögum fyrir brottför: 25% fargjalds endurgreidd.

Afbókun 3 dögum fyrir brottför og fram að ferð: Engin endurgreiðsla.

Breytingar: Áskilinn er réttur til að hætta við, fresta ferð eða breyta áætlun vegna veðurs eða annarra utanaðkomandi aðstæðna, svo og ef ekki fæst næg þátttaka. Ef þarf að fella niður ferð er full endurgreiðsla.

Tryggingar: Tryggingar eru fyrir hendi eins og ferðaskrifstofuleyfi gerir ráð fyrir. Farþegar eru engu að síður hvattir til að huga að tryggingarmálum og hafa ferða- og slysatryggingar í lagi.

Share this post

More Stories from Archive

Vesenisferðir ehf

530314-0650
Mávahlíð 33
105 Reykjavík
einarskula hjá gmail.com
Sími: +354 663-2113