Ef þú ert að leita að almennilegri áskorun þá er meira bröltið fyrir þig. Prógrammið miðast við að krefjandi göngur á hærri og erfiðari fjöll og fyrir algengustu skipulögðu jöklagöngurnar. Göngurnar miða því við að auka styrk og úthald.
Búast má við því að þátttakendur geti farið í fjölbreyttar aðstæður út frá veðri og færð og gert er ráð fyrir að þátttakendur séu í nokkuð góðu líkamlegu formi og tilbúnir til að verja tíma til að komast í enn betra gönguform. Hver og einn þarf að hafa aðgang að búnaði til samræmis við erfiðleikastig ferðanna. Það á við t.d. um gönguöxi (ísöxi) og fjallabrodda (jöklabrodda). Við eigum nokkur sett sem við getum leigt þátttakendum. Eitt fimmtudagskvöld munum við æfa notkun á gönguöxi og fjallabroddum og jafnframt fjalla um það í ferðunum.
BÚNAÐUR
Leiðsögufólk veitir leiðbeiningar um útbúnað og stofnaður er lokaður Facebook hópur með ýmsum upplýsingum. Þar er hver ganga kynnt með eins til þriggja daga fyrirvara og fjallað um gönguleiðina, veðurspá, aðstæður og ráðlagt með búnað. Varðandi göngur er gert ráð fyrir að hver og einn beri ábyrgð á að koma sér á staðinn en við stingum upp á stöðum til að hittast og sameinast í bíla.
GÖNGURNAR
Í hverjum mánuði eru þrjár til fjórar göngur eða alls þrettán göngur og ein kynningarganga. Hópurinn er rekinn í samstarfi við langbröltið og hægt að komast í fimmtudagsgöngur með langbröltinu að auki ef sá kostur er valinn í áskrift, þá eru göngurnar alls tuttugu. Sjá dagskrána hér að neðan með langbröltsgöngurnar í sviga. Athugið að eftir að þessu prógrammi lýkur taka við sjálfstæðar jöklagöngur í Öræfajökli sem eru með þennan hóp í huga.
DAGSKRÁ
Athugið að helgargöngur eru settar á laugardag og þá er sunnudagur til vara.
- Sun 05-Jan-25Upphitun langbrölt og meira brölt
- 1. Fim 16-Jan-25 Meira brölt kvöldganga
- (Fim 23-Jan-25 Langbrölt kvöldganga)
- 2. Lau 25-Jan-25 Meira brölt helgarganga
- 3. Fim 30-Jan-25 Meira brölt kvöldganga
- (Fim 06-Feb-25 Langbrölt kvöldganga)
- 4. Lau 08-Feb-25 Meira brölt helgarganga
- 5. Fim 13-Feb-25 Meira brölt kvöldganga
- (Fim 20-Feb-25 Langbrölt kvöldganga)
- 6. Fim 27-Feb-25 Meira brölt kvöldganga
- (Fim 06-Mar-25 Langbrölt kvöldganga)
- 7. Lau 08-Mar-25 Meira brölt helgarganga
- 8. Fim 13-Mar-25 Meira brölt kvöldganga
- (Fim 20-Mar-25 Langbrölt kvöldganga)
- 9. Fim 27-Mar-25 Meira brölt kvöldganga
- (Fim 03-Apr-25 Langbrölt kvöldganga)
- 10. Lau 05-Apr-25 Meira brölt helgarganga
- 11. Fim 10-Apr-25 Meira brölt kvöldganga
- 12. Lau 19-Apr-25 Meira brölt helgarganga
- 13. Fim 24-Apr-25 Meira brölt kvöldganga
- (Fim 08-May-25 Langbrölt kvöldganga)
KVÖLDGÖNGUR
Fimmtudagsgöngurnar eru fjölbreyttar og takmarkast af veðri og færð. Við nýtum okkur Esjuna, Akrafjallið, fellin á höfuðborgarsvæðinu, Bláfjallahrygg og nágrenni og aðra fjallshryggi á Reykjanesskaga. Það getur verið að við þurfum að fara sömu leiðir tvisvar enda eru þessar kvöldgöngur í og með æfingagöngur fyrir helgargöngurnar og takmörk fyrir því hvað hægt er að finna margar leiðir með meira en 4-500 m hækkun. Að auki er mælst til þess að þátttakendur hittist síðdegis á þriðjudögum og fari upp að Steini. Fulltrúi fararstjóra mætir í fyrstu Esjugöngurnar. Útbúnir verða viðburðir um þriðjudagsgöngur á Esju frá byrjun árs fram í miðjan mars.
DAGSGÖNGURNAR
Við höfum ákveðið að vera með pott af dagsgöngum til þess að auka líkurnar á að geta staðið við dagsetningar í dagskránni. Stefnt er á fimm af eftirtöldum dagsgöngum. Áætluð vegalengd og hækkun í metrum er við hverja göngu:
• Elliðahamar og Elliðatindar á Snæfellsnesi 13 km/800 m
• Esjuhringur 17km/1000 m
• Hólsfjall, Gráborg, Tröllatindar á Snæfellsnesi 15km/1000 m
• Súlurnar í botni Hvalfjarðar 15 km/11-1200 m
• Snæfellsjökull þveraður upp með Dagverðará, lengd 12 km/1400 m
• Skarðsheiðarbrölt 17km/1200 m
• Ljósufjöll frá Álftafirði eða þverun 15-20 km/1200 m
• Eyjafjallajökull 20 km/1700 m
UMSJÓN
Jón Trausti Bjarnason og Bjarki Valur Bjarnason hafa umsjón með göngunum og stundum koma aðrir fararstjórar Vesens og vergangs við sögu eins og Einar Skúlason og fleiri. Þeir Jón Trausti og Bjarki hafa langa reynslu af fararstjórn í fjölbreyttum ferðum um landið.
VERÐ OG BÓKANIR
- Allur pakkinn: fimmtudagsgöngur og helgargöngur kr. 63.000
- Allur pakkinn og fimmtudagar að auki með langbrölti kr. 70.000
- Aðeins helgargöngurnar kr. 39.000
- Aðeins kvöldgöngurnar kr. 33.000
Bókanir fara fram á https://www.sportabler.com/shop/vesenisferdir (þið smellið á tengilinn, skráið ykkur inn og veljið það námskeið sem passar, greiðið og þá er allt klappað og klárt). Hægt er að prenta út kvittun í kerfinu og nýta til niðurgreiðslu stéttarfélags eða vinnustaðar. Athugið að færslur frá bókunarkerfinu á bankareikningi eru merkt sem „æfingagjöld“.
Þá er einnig mögulegt að greiða með millifærslu. Greiðsla jafngildir bókun og merkið færsluna „meira“. Greiðið inn á reikning 0515-26-530314 kt. 530314-0650 og sendið staðfestingu á einarskula@hotmail.com.
Lágmarksfjöldi í hópnum er 15 en hámarksfjöldi 40 (athugið ef ekki næst í lágmarksfjölda, þá verða þessar fimmtudagsgöngur reknar með langbrölti en helgargöngur halda sér).
Þegar bókun er lokið er hægt að sækja um aðgang að lokaða hópnum (sem er rekinn með langbröltinu): https://www.facebook.com/groups/2286448501702684
Afsláttarkjör eru aðeins fyrir heildarpakka:
Hámarksafsláttur er 10% á mann og er í formi endurgreiðslu eftir að námskeið er hafið og búið að gera það upp. Þau sem voru skráð á Vesenisnámskeið haust 2024 eða til elli-og örorkulífeyrisþega eða fjölskylduafsláttur fyrir meðlim nr. 2 í fjölskyldu með sama lögheimili. Látið vita á einarskula@hotmail.com og sendið með upplýsingar um námskeið, kennitölu og bankaupplýsingar.
SKILMÁLAR
Athugið að Vesen og vergangur (Vesenisferðir ehf) tryggir hvorki farþega sína né farangur þeirra. Þátttakendur ferðast með á eigin ábyrgð. Félagið hvetur fólk til að kaupa ferða- og slysatryggingar, vera vel útbúið og kynna sér veður áður en lagt er af stað.
Athugið að námskeiðsgjald fæst ekki endurgreitt eftir að námskeið er hafið en hægt er að framselja það til annars.
Fyrirvari er settur um röskun á prógramminu veðurs eða annarra aðstæðna en alltaf stefnt á að klára tilskilinn fjölda af göngum.