Hreyfihópar

Hreyfihópar eru fyrir alla

Hver hópur er með sitt erfiðleikastig og gengið er reglulega meginhluta ársins í fjölbreyttum aðstæðum. Vertu með!

Brölthóparnir eru hreyfihópar Vesens og vergangs. Þar eru nokkur erfiðleikastig og hægt að vinna sig smám saman upp í erfiðari göngur ef áhugi er fyrir hendi. Hóparnir eru virkir flesta mánuði ársins en tekið er frí yfir hásumarið og á aðventunni.

Gengið er í hverri viku og allir hóparnir eru með ákveðin markmið og lista yfir gönguleiðir eða fjöll sem stefnt er að því að klára. Fararstjórar fylgjast með veðri, færð og aðstæðum og raða niður göngunum til að hámarka öryggi og um leið ánægju. Auk þess hafa stundum verið sögugönguhópar í samstarfi við Stefán Pálsson sagnfræðing og stök gönguverkefni í samstarfi við SÍBS.

Finna minn hóp

Hvaða hópur hentar þér?

Svaraðu þremur spurningum og fáðu tillögu, eða berðu hópana saman í töflunni. Í fyrsta sinn með okkur? Hér eru svör við algengum spurningum.

Hóparnir bornir saman

Strjúktu töfluna til hliðar til að sjá alla hópana.

AtriðiBröltLéttMillibröltMiðlungsLangbröltKröftugtMeira bröltMestÞjóðleiðirSérstakt
GöngudagarMánudagskvöld kl. 18 og dagsgöngur á sunnudögum um kl. 9Þriðjudags- eða miðvikudagskvöld kl. 18 og dagsgöngur um helgar um kl. 9Fimmtudagskvöld kl. 18 og dagsgöngur á laugardögumDagsgöngur á laugardögum, sunnudagur til vara. Fimmtudagskvöld með Langbrölti ef það er valiðUm það bil einu sinni í mánuði á laugardögum, sunnudagur til vara
TímalengdKvöldgöngur um 2 klst. og dagsgöngur um 4 klst. Getur sveiflast eftir veðri og aðstæðumKvöldgöngur 1½ til 2½ klst.Kvöldgöngur 2 til 3 klst., oftast nær 2Dagsgöngur 5 til 10 klst.Væntanlegt
Vegalengd og hækkunKvöldgöngur 4 til 8 km, oftast um 5 km. Dagsgöngur 5 til 10 km og allt að 350 m hækkunKvöldgöngur 4 til 8 km og 100 til 400 m hækkun. Dagsgöngur 7 til 11,5 km og 250 til 500 m hækkunDagsgöngur 10 til 17 km og 450 til 1.150 m hækkunDagsgöngur að minnsta kosti 15 km og yfir 1.000 m hækkun8,5 til 17,5 km og 240 til 580 m hækkun
UndirlagLáglendi, skógar, strendur og aflíðandi brekkurBæði á stígum og utan þeirra: hraun, melar, móar, hlíðar og fellFell og fjöll, oft í krefjandi aðstæðum vegna veðurs og færðar. Keðjubroddar eiga að dugaHærri og brattari fjöll og jöklagöngur. Ísöxi og jöklabroddarGamlar leiðir milli byggða: kirkjugötur, skörð og heiðar
UndirbúningurEngin krafa um fyrri reynslu, en þú þarft að geta gengið nokkra kílómetra á fjölbreyttu undirlagiGóður grunnur í göngum, fyrir þau sem vilja taka næsta skref eftir BröltÞú þarft að treysta þér í krefjandi aðstæður og hafa aðgang að viðeigandi búnaðiNokkuð gott líkamlegt form og vilji til að komast í enn betra gönguformStyttri þjóðleiðir: þú treystir þér á Úlfarsfell og Helgafell á þínum hraða og getur almennt farið 5 til 15 km í einni göngu. Sumar göngur eru eins og Brölt og rúmlega það. Lengri þjóðleiðir: þú átt gott með að fara upp að Steini á innan við 80 mínútum
VerðHaust 2026: 62.900 kr. fyrir allar göngurnarHaust 2026: 63.900 kr. fyrir allar göngurnarHaust 2026: 73.500 kr. fyrir allt prógrammiðVor 2026: 32.000 kr. fyrir dagsgöngurnar, 69.000 kr. með fimmtudögum Langbrölts2026: 65.000 kr. fyrir allt árið. Hægt er að taka með sér gest í staka göngu fyrir 7.000 kr.
Næsta upphafVorönn 2027 hefst eftir miðjan janúarVorönn 2027 hefst eftir miðjan janúarVorönn 2027 hefst eftir miðjan janúarVorönn 2027 hefst eftir miðjan janúarNýtt misseri hefst í janúar 2027
SkráningEkki opið ennEkki opið ennEkki opið ennEkki opið ennEkki opið enn

Verð er frá síðustu önn og getur breyst. Nánari lýsingar eru á síðu hvers námskeiðs.

Brölt

Létt

Brölt

Láglendisgöngur og aflíðandi brekkur. Góður staður til að byrja og byggja upp úthald í góðum félagsskap.

Skráning

Ekkert námskeið er opið til skráningar í augnablikinu. Vorönn 2027 hefst eftir miðjan janúar. Skráning opnar um mánaðamótin nóvember og desember.

Viltu vita hvort hægt sé að bætast í hópinn á miðri önn eða prófa eina göngu? Sendu okkur línu á info@vesenisferdir.is.

Yfirstandandi námskeið

Eldri námskeið (10)
Millibrölt

Miðlungs

Millibrölt

Göngur á fellin og lægri fjöllin á suðvesturhorninu og ýmsar þjóðleiðir. Þriðjudags- og miðvikudagshópar.

Skráning

Ekkert námskeið er opið til skráningar í augnablikinu. Vorönn 2027 hefst eftir miðjan janúar. Skráning opnar um mánaðamótin nóvember og desember.

Viltu vita hvort hægt sé að bætast í hópinn á miðri önn eða prófa eina göngu? Sendu okkur línu á info@vesenisferdir.is.

Yfirstandandi námskeið

Eldri námskeið (22)
Langbrölt

Kröftugt

Langbrölt

Hærri og lengri göngur en í millibrölti, en ekki farið á bröttustu fjöllin og ekki stefnt á jökla.

Skráning

Ekkert námskeið er opið til skráningar í augnablikinu. Vorönn 2027 hefst eftir miðjan janúar. Skráning opnar um mánaðamótin nóvember og desember.

Viltu vita hvort hægt sé að bætast í hópinn á miðri önn eða prófa eina göngu? Sendu okkur línu á info@vesenisferdir.is.

Yfirstandandi námskeið

Eldri námskeið (7)
Meira brölt

Mest

Meira brölt

Hærri fjöllin, brattari brekkur og jöklagöngur fyrir þau sem vilja alvöru áskoranir.

Skráning

Ekkert námskeið er opið til skráningar í augnablikinu. Vorönn 2027 hefst eftir miðjan janúar. Skráning opnar um mánaðamótin nóvember og desember.

Viltu vita hvort hægt sé að bætast í hópinn á miðri önn eða prófa eina göngu? Sendu okkur línu á info@vesenisferdir.is.

Eldri námskeið (6)
Þjóðleiðir

Sérstakt

Þjóðleiðir

Gömlu leiðirnar sem voru farnar áður en byrjað var að leggja bílvegi. Saga og náttúra í hverju skrefi.

Skráning

Ekkert námskeið er opið til skráningar í augnablikinu. Nýtt misseri hefst í janúar 2027. Skráning opnar um mánaðamótin nóvember og desember.

Viltu vita hvort hægt sé að bætast í hópinn á miðri önn eða prófa eina göngu? Sendu okkur línu á info@vesenisferdir.is.

Yfirstandandi námskeið

Eldri námskeið (2)